Skessuhorn - 30.01.2019, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 21
Borgarbyggð -
miðvikudagur 30. janúar
Skallagrímskonur taka á
móti Stjörnunni í Domino‘s
deildinni. Leikurinn hefst
kl. 19:15 í íþróttahúsinu í
Borgarnesi.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 30. janúar
Grundfirðingar mæta
Haukum B í 3. deild karla
í körfuknattleik. Leikurinn
hefst kl. 20:15 í íþróttahúsinu í
Grundarfirði.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 31. janúar
Borgarnes borðar saman, í
Landnámssetrinu kl. 18:00.
Borgnesingar hittast og
borða góðan mat í góðum
félagsskap. Á matseðlinum
er kjúklingabaunapottréttur,
grísapottrétur, salat og brauð.
Dótahornið verður á sínum
stað - því fleiri börn því
skemmtilegra. Viðburðurinn
er fyrst og fremst hugsaður til
að auðvelda barnafjölskyldum
lífið, sem tækifæri til
að gera sér dagamun í
skammdeginu og deila
máltíð með fólki sem annars
myndi ekki hittast. Mikilvægt
er að senda tölvupóst á
borgarnesbordarsaman@
gmail.com til að vita um það bil
hversu margir ætla að mæta.
Akranes -
fimmtudagur 31. janúar
ÍA mætir Ármanni í 2. deild
karla í körfuknattleik. Leikið
verður í íþróttahúsinu við
Vesturgötu frá kl. 20:30.
Borgarbyggð -
föstudagur 1. febrúar
Skallagrímur tekur á móti
Breiðabliki í Domino‘s deild
karla í körfuknattleik. Leikurinn
hefst kl. 19:15 í íþróttahúsinu í
Borgarnesi.
Dalabyggð - föstudagur 1.
febrúar
Keppt verður í Smala í
Nesoddahöllinni kl. 20:00. Að
Smalanum loknum fer fram
keppni í skemmtitölti. Keppt
verður í pollaflokki, barnaflokki,
sameinuðum unglinga- og
ungmennaflokki og opnum
flokki. Brautin verður tilbúin
kl. 17:00 á mótsdag svo
að keppendur geti prófað
hana fyrir sjálfa keppnina.
Upplýsingar um skráningu
og fleira tengt keppninni
má nálgast á heimasíðu
Hestamannafélagsins Glaðs,
www.gladur.is.
Borgarbyggð -
föstudagur 1. febrúar
„Farðu á þinn stað“ á
Sögulofti Landnámssetursins
í Borgarnesi. Teddi lögga
tekur sjálfan sig til kostanna í
sjáfsævilegum einleik þar sem
ferðast er frá Kínahverfinu
í Borgarnesi og alveg út á
Ystu Nöf, þar sem hann á
heima. Höfundurinn, Theodór
Kristinn Þórðarson, betur
þekktur sem Teddi lögga,
rekur í máli og myndum
ýmis atvik í samskiptum
sínum við samferðafólk sitt,
allt frá barnæsku og fram til
vorra daga. Miðasala á www.
landnam.is. Miðaverð kr. 3.000.
Snæfellsbær -
föstudagur 1. febrúar
Hljómsveitin Valdimar blæs til
tónleika í Frystiklefanum í Rifi
kl. 20:00. Miðasala og nánari
upplýsingar á www.tix.is.
Borgarbyggð -
föstudagur 1. febrúar
Þorrablót í Lyngbrekku. Húsið
opnar 20:30 og borðhald
hefst stundvíslega kl. 21:00.
Að venju verða heimatilbúin
skemmtiatriði að hætti
Mýramanna. Hljómsveitin
Meginstreymi leikur síðan fyrir
dansi fram eftir nóttu. Nánar á
Facebook-síðu viðburðarins.
Hvalfjarðarsveit -
laugardagur 2. febrúar
Þorrablót í Fannahlíð. Húsið
opnar kl. 20:00. Þorramatur frá
Galito. Hljómsveitin Durtarnir
leikur fyrir dansi. Nánari
upplýsingar á Facebook-síðu
viðburðarins.
Borgarbyggð -
laugardagur 2. febrúar
Auður Djúpúðga - Sagan
öll laugardaginn 2. febrúar
kl. 20:00 og sunnudaginn 3.
febrúar kl. 16:00. Það er hinn
vinsæli rithöfundur Vilborg
Davíðsdóttir sem stígur á stokk
á Sögulofti Landnámssetursins
í Borgarnesi og segir söguna
alla af konunni sem á enga sína
líka í landnámssögunni. Vilborg
lauk þríleik sínum um Auði
djúpúðgu síðasta haust með
bókinni Blóðug jörð og hafa
gagnrýnendur og lesendur
hlaðið verkið lofi. Miðaverð kr.
3.500 og miðasala er á www.
landnam.is.
Borgarbyggð -
sunnudagur 3. febrúar
Þjóðahátíð í Borgarnesi.
Félag nýrra Íslendinga gengst
árlega fyrir þjóðahátíð sem
að þessu sinni verður haldin
í Hjálmakletti í Borgarnesi kl.
14:00 til 17:00. Sjá nánar frétt í
Skessuhorni vikunnar.
Borgarbyggð -
mánudagur 4. febrúar
Tolkien og íslenskar
miðaldabókmenntir. Námskeið
í Snorrastofu í Reykholti kl.
20:00 til 22:00. Fjórða kvöldið
af sex. Efni námskeiðsins
að þessu sinni er; Tolkien
og draugar - Grettissaga og
Bjólfskviða. Leiðbeinandi er dr.
Ármann Jakobsson.
Stykishólmur -
miðvikudagur 6. janúar
Vesturlandsslagur í
körfunni! Snæfell tekur á
móti Skallagrími í Domino‘s
deild kvenna. Leikið verður í
íþróttahúsinu í Stykkishólmi frá
kl. 19:15.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 7. febrúar
Alzheimerkaffi í
Borgarbyggð. Berglind
Indriðadóttir hjá Farsæl
Öldrun-þekkingarmiðstöð
kemur og fjallar um mikilvægi
virkni í daglegu lífi með
heilabilun. Kaffiveitingar,
söngur og gleði. Vonumst til
að sjá sem flesta. Guðný & Ólöf
tenglar Alzheimersamtakanna í
Borgarbyggð Kaffigjald 500 kr.
Allir velkomnir.
Nýfæddir Vestlendingar
Á döfinni
23. janúar. Drengur. Þyngd:
4.340 gr. Lengd: 51 cm.
Foreldrar: Hekla Haraldsdóttir
og Ómar Logi Þorbjörnsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Hrafnhildur
Ólafsdóttir.
25. janúar. Stúlka. Þyngd: 3.068
gr. Lengd: 48 cm. Foreldrar:
Ingibjörg Ólafsdóttir og Valdimar
Hjaltason, Akranesi. Ljósmóðir:
Ásthildur Gestsdóttir.
Brúarás leitar að starfsfólki
Brúarás leitar að matráið eða
vönum manni/konuí eldhús
og starfsmanni í sal frá 1. maí
til 31. október 2019. Brúarás er
veitinga- og kaffihús í glæsilegu
umhverfi í uppsveitum
Borgarfjarðar. Áhugasamir hafi
í síma 435-1270 eða á bruaras@
geocenter.is.
Íbúð í Borgarnesi
Par leitar að íbúð til leigu í eða
kringum Borgarnes í sumar, frá
ca. 1. júlí til 1. ágúst. Erum 35 ára
par með einn tæplega tveggja
ára gutta. Ef einhver vill hafa
tekjur af íbúðinni sinni endilega
hafið samband, Árni og Harpa.
arnikristjans.arkandi@gmail.
com.
Markaðstorg Vesturlands
AtvinnA í boði
27. janúar. Drengur. Þyngd:
3.262 gr. Lengd: 52 cm. Foreldrar:
Ásta Sæunn Ingólfsdóttir og
Ásgeir Örn Arnarson, Akranesi.
Ljósmóðir: Jenný Inga Eiðsdóttir.
LEiGUMARKAðUR