Skessuhorn


Skessuhorn - 30.01.2019, Page 22

Skessuhorn - 30.01.2019, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 201922 Skagastúlkurnar og frænk- urnar Rósa Kristín Hafsteins- dóttir og Demi van den Berg dönsuðu til verðlauna ásamt dansfélögum sínum á Reykja- vík International Games um helgina. Rósa Kristín og Aron Logi Hrannarsson, sem dansa fyrir Dansíþróttafélag Hafnar- fjarðar, sigruðu í latindönsum í flokki unglinga II - meistara- flokki og þau Demi og Aldas Zgirskis úr Dansfélagi Bílds- höfða, höfnuðu þar í öðru sæti. Demi og Aldas kepptu einnig í standarddönsum þar sem þau höfnuðu í öðru sæti og stóðu uppi sem stigahæstu dansarar mótsins. kgk/ Ljósm. aðsendar. Dönsuðu til sigurs á Reykjavíkurleikunum Skagastúlkan Rósa Kristín og Aron Logi sigruðu í latin dönsum í unglingaflokki II - meistaraflokki. Demi van den Berg og Aldas Zgirskis höfnuðu í öðru sæti í latin og standard í flokki unglinga II - meistaraflokki og stóðu uppi sem stigahæstu dansarar mótsins. Á föstudagskvöld fengu Snæfell- ingar loks leikinn sem þeir hafa beðið eftir í allan vetur, þegar þeir tóku á móti Sindra í 1. deild karla í körfuknattleik. Hólmarar léku afar vel og höfðu heldur yfirhönd- ina þó leikurinn hafi verið mjög jafn og spennandi á löngum köflum. Að lokum fór svo að Snæfellingar höfðu betur með 89 stigum gegn 79 og kræktu þar með í fyrstu stig vetrarins. Jafnræði var með liðunum í upp- hafi leiks. Snæfellingar náðu undir- tökunum um miðjan fyrsta leikhluta og leiddu með fimm stigum að hon- um loknum, 25-20. Gestirnir svör- uðu fyrir sig í öðrum fjórðungi og jöfnuðu metin. Eftir það var leikur- inn æsispennandi allt þar til flautað var til hálfleiks. Liðin skiptust á að leiða með örfáum stigum en það var Sindri sem var yfir í hléinu, 38-43. Snæfellingar voru mjög öflug- ir í upphafi síðari hálfleiks og voru fljótir að gera forystu gestanna að engu. Þeir léku áfram vel, komust yfir og góður endasprettur skilaði þeim tíu stiga forskoti fyrir loka- fjórðunginn, 70-60. Tilraunir gest- anna til að minnka muninn í loka- fjórðungnum báru ekki árangur. Snæfellingar svöruðu hverri körfu, héldu gestunum í skefjum og unnu að lokum langþráðan sigur, 89-79. Dominykas Zupkauskas átti stór- leik fyrir Snæfell, skoraði 36 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoð- sendingar. Ísak Örn Baldursson skoraði 23 stig, Aron Ingi Hinriks- son skoraði 14 stig og reynslubolt- inn Darrel Flake skoraði tíu stig og tók 13 fráköst. Matic Macek skoraði 15 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoðsend- ingar í liði Sindra. Gísli Þórarinn Hallsson skoraði 15 stig einnig, Árni Birgir Þorvarðarson var með 13 stig og átta fráköst, Hallmar Hallsson skoraði tólf stig og þeir Ivan Kekic og Nikolas Susa skor- uðu tíu stig hvor. Snæfell og Sindri hafa tvö stig hvort lið á botni deildarinnar, en Snæfell á þó leik til góða á Horn- firðinga. Næst leika Snæfellingar föstudaginn 1. febrúar næstkom- andi, þegar þeir mæta liði Vestra á Ísafirði. kgk Fyrsti sigur Snæfells í höfn Hinn ungi og efnilegi Ísak Örn Baldursson átti skínandi fínan leik í fyrsta sigri Snæfells í vetur. Ljóms. sá. Snæfellskonur þurftu að játa sig sigraðar eftir æsispennandi fram- lengdan leik gegn Stjörnunni í Domino‘s deild kvenna á mið- vikudagskvöld, 88-87. Leikið var í Garðabæ. Stjarnan hafði undirtökin í fyrsta leikhluta og níu stiga forskot að honum loknum, 22-13. Snæfells- konur byrjuðu annan fjórðung- inn af miklum krafti og minnkuðu muninn í eitt stig áður en hann var hálfnaður, 26-25. Þá tók Stjarnan góða rispu sem skilaði átta stiga forskoti í hléinu, 38-30. Snæfellskonur mættu inn í síð- ari hálfleikinn af miklum krafti og höfðu minnkað í tvö stig þegar leik- hlutinn var hálfnaður. Þeim tókst þó ekki að taka forystuna í leiknum og Stjarnan leiddi með fimm stig- um fyrir lokafjórðunginn. Þar lék Snæfell vel og þjarmaði verulega að Stjörnunni. Hólmarar náðu góðum kafla seint í leiknum, komust yfir og leiddu með sex stigum þegar rúm mínúta lifði leiks. Stjarnan minnk- aði muninn í eitt stig, sendi Snæ- fell á vítalínuna og munurinn þrjú stig með tíu sekúndur á klukkunni. Stjarnan stillti upp í þriggja stiga skot til að jafna leikinn og ofan í fór það. Staðan 73-73 eftir venjulegan leiktíma og því varð að framlengja. Stjarnan náði forystunni snemma í framlengingunni og hafði þriggja stiga forskot á lokasekúndum leiks- ins. Þær brutu síðan á Kristen McCarthy í þriggja stiga skoti með eina sekúndu á klukkunni. Fyrsta vítaskot hennar geigaði hins veg- ar og úrslitin þar með ráðin. Hún setti næstu tvö niður og lokatölur því eins stigs tap Snæfells eft- ir mikinn spennuleik, 88-87. Kristen McCarthy átti stórleik fyr- ir Snæfell, skoraði 37 stig og reif niður 22 fráköst. Angelika Kowalska var með 14 stig, Gunnhildur Gunnarsdóttir 13 og Helga Hjördís Björg- vinsdóttir skoraði ell- efu stig og gaf fimm stoðsendingar. Danielle Rodrigu- ez setti upp mynd- arlega þrennu í liði Stjörnunnar, skoraði 25 stig, tók tólf frá- köst og gaf tólf stoð- sendingar. Ragna Margrét Brynjars- dóttir var með 15 stig og níu fráköst, Auður Íris Ólafsdóttir skor- aði 14 stig, Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði tólf stig og tók sex fráköst og Ragnheið- ur Benónísdóttir var með tíu stig og ellefu fráköst. Snæfell situr í þriðja sæti deildar- innar með 22 stig, jafn mörg og Valur í sætinu fyrir neðan en tveimur stig- um á eftir KR og fjórum stigum á eftir toppliði Keflavíkur. Næsti leikur Snæfells er stórleikur gegn KR á útivelli í kvöld, miðvikudag- inn 30. janúar. kgk Eins stigs tap í dramatískum leik Kristen McCarthy átti stórleik fyrir Snæfell. Ljósm. sá. Á föstudagskvöld fengu Snæfelling- ar loks leikinn sem þeir hafa beðið eftir í allan vetur, þegar þeir tóku á móti Sindra í 1. deild karla í körfu- knattleik. Hólmarar léku afar vel og höfðu heldur yfirhöndina þó leikur- inn hafi verið mjög jafn og spenn- andi á löngum köflum. Að lokum fór svo að Snæfellingar höfðu betur með 89 stigum gegn 79 og kræktu þar með í fyrstu stig vetrarins. Jafnræði var með liðunum í upp- hafi leiks. Snæfellingar náðu und- irtökunum um miðjan fyrsta leik- hluta og leiddu með fimm stigum að honum loknum, 25-20. Gestirn- ir svöruðu fyrir sig í öðrum fjórð- ungi og jöfnuðu metin. Eftir það var leikurinn æsispennandi allt þar til flautað var til hálfleiks. Liðin skiptust á að leiða með örfáum stig- um en það var Sindri sem var yfir í hléinu, 38-43. Snæfellingar voru mjög öflugir í upphafi síðari hálfleiks og voru fljótir að gera forystu gestanna að engu. Þeir léku áfram vel, komust yfir og góður endasprettur skilaði þeim tíu stiga forskoti fyrir loka- fjórðunginn, 70-60. Tilraunir gest- anna til að minnka muninn í loka- fjórðungnum báru ekki árangur. Snæfellingar svöruðu hverri körfu, héldu gestunum í skefjum og unnu að lokum langþráðan sigur, 89-79. Dominykas Zupkauskas átti stór- leik fyrir Snæfell, skoraði 36 stig, tók sex fráköst og gaf fimm stoð- sendingar. Ísak Örn Baldursson skoraði 23 stig, Aron Ingi Hinriks- son skoraði 14 stig og reynslubolt- inn Darrel Flake skoraði tíu stig og tók 13 fráköst. Matic Macek skoraði 15 stig, tók fimm fráköst og gaf fimm stoð- sendingar í liði Sindra. Gísli Þórar- inn Hallsson skoraði 15 stig einnig, Árni Birgir Þorvarðarson var með 13 stig og átta fráköst, Hallmar Hallsson skoraði tólf stig og þeir Ivan Kekic og Nikolas Susa skor- uðu tíu stig hvor. Snæfell og Sindri hafa tvö stig hvort lið á botni deildarinnar, en Snæfell á þó leik til góða á Horn- firðinga. Næst leika Snæfellingar föstudaginn 1. febrúar næstkom- andi, þegar þeir mæta liði Vestra á Ísafirði. kgk Fyrsti sigur Snæfells í höfn Hinn ungi og efnilegi Ísak Örn Baldursson átti skínandi fínan leik í fyrsta sigri Snæfells í vetur. Ljóms. sá.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.