Skessuhorn - 04.09.2019, Síða 4
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 20194
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.280 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.840. Rafræn áskrift kostar 2.570 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.370 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Með áleggin
í sömu körfu
Oft hefur verið varað við því að setja of mörg egg í sömu körfuna. Ef hras-
að er gætu eggin öll brotnað. Mér varð hugsað til þessa gamla vísdóms í
síðustu viku. Þannig er að sveitarstjórnir Akraneskaupstaðar og Hvalfjarð-
arsveitar tóku höndum saman og sendu frá sér sameiginlega áskorun til
hvorki meira né minna en ríkisstjórnar Íslands. Út af fyrir sig eru það tíð-
indi að þessar tvær hreppsnefndir snúi bökum saman. Tilefnið nú er stór-
iðjan á Grundartanga og sú ógn sem sveitarfélögin sjá að steðjar að þeim
fjölmörgu vinnustöðum sem á Tanganum eru. Atvinnustefna svæðisins hef-
ur verið fremur fábrotin af þeim sökum að menn hafa treyst á endalausa
uppbyggingu á Grundartanga og ekki þurft að huga að öðru. Menn hafa
því ástæðu til að óttast hið versta, en vona hið besta. Að grunni til eru tvö
stóriðjuver á Grundartanga og fjölmörg smærri fyrirtæki sem mörg þjóna
þeim stóru. Að auki er þar fóðurblöndunarstöð og önnur hafnsækin starf-
semi. Stóriðjan treystir á raforku á samkeppnishæfu verði sem svikalaust
hefur fengist fram til þessa. En nú hrannast upp ský á himni.
Fram hefur komið að rekstrarskilyrði orkufreks iðnaðar hér á landi hafa
daprast og því er jafnvel haldið fram að það samkeppnisforskot sem áður
var í formi lágs raforkuverðs sé að mestu eða öllu leyti horfið. Því fara fyrr-
greindar sveitarstjórnir fram á að ríkið, eigandi hlutabréfsins í Landsvirkj-
un, setji eigendastefnu og það án tafar. Það hefur lengi legið í loftinu að
farið er leynt með það verð sem stóriðjan þarf að greiða fyrir rafmagnið.
Fróðir menn segja að það viti þrír menn. Þeir eru fjármálaráðherrann, for-
stjóri Landsvirkjunar og sá sem skrifar út reikningana fyrir Landvirkjun.
Ráðherra orkumála greindi frá því á fundi sem haldinn var á Akranesi fyrr
í sumar að hún hefði ekki hugmynd um hvað stóriðjan væri að borga fyrir
strauminn. Menn setti hljóða, en þetta eru víst ekki ný tíðindi, en dæma-
laust undarleg. Á sama fundi kom skýrt fram að það skortir samræmda
orkustefnu til að stjórnvöld gætu ákveðið hvort framleiða ætti meira raf-
magn, hvar eða hvort ætti að virkja, hvenær og hvernig. Meðan Íslandi
skorti stefnu í orkumálum væri þess ekki að vænta að teknar yrðu bestu
ákvarðanirnar. Þess má geta að fundur þessi snerist að stórum hluta um
þriðja orkupakkann og öllum ætti að vera ljóst að óttast er um lagningu sæ-
strengs í beinu framhaldi, að orkan verði seld úr landi og eftir sæti landinn
með súrt enni og himinháan rafmagnsreikning. Ég ætla hins vegar ekki að
fara nánar út í þá sálma hér, enda er búið að samþykkja þennan blessaða
orkupakka á Alþingi.
Framtíð 1200 manna vinnustaða á Grundartanga, með nærfellt öðru
eins í afleiddum störfum, er í húfi. Vegna þess að ríkið hefur enga stefnu
í orkumálum og alls enga stefnu varðandi eylandið Landsvirkjun. Hratt
og örugglega hefur Landsvirkjun þróast á svipaðan hátt og Íslandspóstur.
Opinbert hlutafélag sem ræður sér sjálft án þess að eigandinn hafi nokkuð
um það að segja. Ég nefni Íslandspóst því í tilfelli hans hafa menn einmitt
nýverið ákveðið að grípa í taumana á augljósum stjórnendavanda og því
mætti segja að nú sé röðin komin að Landsvirkjun. Stjórnmálamönnum
virðist hins vegar skorta áræði, eða er hátt raforkuverð kannski meðvituð
ákvörðun sem rekja má til blautra drauma um Þjóðarsjóð og útflutning á
orku? Nei, ég segi bara svona.. Við Íslendingar eigum Landsvirkjun og
verðum að sporna við áður en í óefni verður komið. 80% þeirrar orku sem
framleidd er hér á landi er seld til sjö stóriðjufyrirtækja sem skapa landi og
þjóð miklar tekjur. Ef stefnan er sú að hrekja þessi fyrirtæki úr landi, vegna
þess að rafmagnið til þeirra er látið kosta of mikið, þarf að stoppa við og
ræða málin. Gott hjá Skagamönnum og nærsveitungum að benda á þetta
og vonandi mæta þessar hreppsnefndir skilningi sunnan flóans.
Magnús Magnússon
Kynningar- og fjáröflunarátakið Á
allra vörum hófst í níunda sinn með
viðburði í Hallgrímskirkju á sunnu-
daginn. Þar var tilkynnt að forvarn-
ar- og fræðsluátakið Eitt líf muni
njóta ágóða söfnunarinnar í ár. Á
allra vörum var stofnað árið 2008 af
Gróu Ásgeirsdóttur, Guðnýju páls-
dóttur og Elísabetu Sveinsdóttur í
þeim tilgangi að velja eitt málefni
árlega og vekja á því athygli og að-
stoða. Einar Darri Óskarsson lést
á heimili sínu í Hvalfjarðarsveit í
fyrravor eftir að hafa tekið of stór-
an skammt af lyfseðilsskyldum lyfj-
um. Í kjölfarið stofnuðu aðstand-
endur Einars Darra Minningar-
sjóð í hans nafni. Þá fór fjölskylda
hans af stað með þjóðarátakið „Eitt
líf“ með það markmið að sporna
gegn og draga úr misnotkun lyf-
seðilsskyldra lyfja og fíkniefna með
fræðslu og almennri vitundarvakn-
ingu í þjóðfélaginu.
Líkt og áður verður athygli vak-
in á málefninu með sölu á varasetti
Á allra vörum, gloss og varalitur
verða saman í pakka. Ágóði sölunn-
ar mun renna til Eins lífs auk þess
sem hægt verður að styrkja málefn-
ið beint með að hringja í styrktar-
númer. Þá hvetja Gróa, Guðný og
Elísabet alla til að kaupa varasettið
og þá sérstaklega hvetja þær fyrir-
tæki í landinu til að kaupa settið
fyrir starfsfólk og þar með styrkja
gott málefni og um leið gleðja
starfsfólk.
arg
Símon Sigurmonsson í Görð-
um í Staðarsveit er látinn, 85 ára
að aldri. Símon var fæddur í Ein-
arsnesi í Borgarhreppi, sonur
hjónanna Sigurmons Símonarson-
ar og Jórunnar Helgadóttur. Hann
bjó um tíma á Akranesi en fluttist
þá á Snæfellsnes. Símon og Svava
Guðmundsdóttir eiginkona hans
voru brautryðjendur í ferðaþjón-
ustu bænda á Vesturlandi, hófu
árið 1977 uppbyggingu og rekstur
Gistihússins Langaholts. Þau voru
meðal stofnaðila í Ferðaþjónustu
bænda á níunda áratugnum, hand-
hafar hlutabréfs númer tvö í fyrir-
tækinu. Fljótlega eftir að þau hófu
rekstur gistiheimilis og matsölu
hættu þau hefðbundnum búskap
á jörð sinni. Í Görðum er nú hin
myndarlegasta aðstaða fyrir ferða-
fólk í gistingu og mat. Á þessum
fallega stað í Staðarsveit geta gest-
ir notið náttúrunnar, með Snæ-
fellsjökulinn blasandi við í allri
sinni dýrð, strönd Faxaflóa og
fjallgarðinn. Símon og Svava seldu
Gistihúsið Langaholt til sonar
síns Þorkels og Rúnu konu hans.
Hafa þau á undanförnum árum
búið í Borgarnesi en slitu þó aldrei
tengslin við Garða og hafa dvalið
þar á sumrin til aðstoðar yfir há-
önn ferðatímabilsins.
Síðustu ár hafði Símon í Görð-
um ýmislegt til afþreyingar, meðal
annars setti hann saman vísur og
gaf út ljóðabækur. Í ljóðabók hans;
Myndir, er meðals annars þessi
vísa:
Ljósblik frá langri ævi
lifnar í minni mínu
máninn á kyrru kvöldi
kveikir á silfri sínu.
Símon í Görðum hafði í gegn-
um tíðina góð tengsl við ritstjórn
Skessuhorns. Að leiðarlokum er
honum þakkað fyrir samskiptin í
áranna rás. Svövu, börnum og fjöl-
skyldu Símonar eru sendar sam-
úðarkveðjur. Útför Símonar frá
Görðum verður gerð frá Borgar-
neskirkju föstudaginn 6. septem-
ber klukkan 14.
mm
And lát:
Símon Sigurmonsson
Eitt líf nýtur stuðnings Á allra vörum
Andrea Ýr Arnarsdóttir, Kristján Hölluson og Bára Tómasdóttir frá Minningarsjóði
Einars Darra ásamt Guðnýju Pálsdóttur, eins stofnanda Á allra vörum.
Ljósm. Eitt líf.
Sala á varasetti
Á allra vörum
hófst á
sunnudaginn.
Hægt er að styrkja Eitt líf með að hringja í styrktarnúmer.