Skessuhorn


Skessuhorn - 04.09.2019, Page 14

Skessuhorn - 04.09.2019, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 201914 Járngerðarhátíðin var haldin á Eiríksstöðum í Dölum dagana 30. ágúst til 1. september sl. Eiríksstaðir ásamt Hurstwic buðu gestum að koma á hátíðina þar sem þeim gafst tækifæri til að kynnast lífi fólks á víkingaöld með því að sjá, snerta, prófa og gera hluti á þann hátt sem fólk gerði fyrir þúsund árum. Járn úr mýrarrauða var til dæm- is búið til í fyrsta sinn í þúsund ár á hátíðinni. Auk þess má nefna glerperlugerð, vattarsaum og flatbrauðsbakstur en einnig fræðsla hjá Ásatrúarfélaginu. Hátíð þessi var nú haldin í fyrsta skipti og var sótt af handverksáhugafólki og sérfræðingum bæði frá Íslandi og útlöndum auk ann- arra gesta. Ásamt tilraunastarfsemi með ofna til járngerðar var á staðnum hópur af sérfróðum aðilum sem kynntu hand- verk og matargerð ásamt því að kynna menningu víkin- ga. Undirbúningur að hátíðinni hefur staðið yfir um langt skeið og sumarið fór í að búa til kol úr viði úr Vaglaskógi, safnað var mýrarrauða til járngerðar og gerðar tilraun- ir með leir úr íslenskri jörð til ofnagerðar. Byggt var á fornleifafundum og vitneskju um Landnámstímann og eftirmynd aðferða þeirrar tíðar þannig endursköpuð. Að sögn forsvarsmanna og gesta á hátíðinni þótti hún takast vel til. mm/ Ljósm. Steinunn Matthíasdóttir og Joesefina Morell Járngerðarhátíð á Eiríksstöðum í Haukadal Jacob Isbosethsen sendiherra Grænlands heimsótti Eiríksstaði á laugardaginn. Jacob er fyrsti sendiherra Grænlands á Ís- landi. Frá vinstri: Reynir Óskarsson sem er einn af skipuleggjendum hátíðarinnar, Jacob Isbosethsen sendiherra, Bjarnheiður Jóhannsdóttir rekstraraðili Eiríksstaða og skipuleggjandi hátíðarinnar og Birta Jóhannesdóttir aðstoðarmaður sendiherra. Unnið úr afrakstri laugardagsins í járngerðinni. Á föstudeginum var unnið íslen- skt járn úr mýrarrauða en markmiðið var að búa til járn eins og það var gert fyrir um þúsund árum. Það ríkti mikil gleði meðal járngerðarmanna þegar frumraunin tókst á föstudaginn og afraksturinn alíslenskt járn að fornum sið. Ljósm. sm. Margrét Hrönn Hallmundardóttir fornleifafræðingur hefur unnið að fornleifauppgreftri í Arnarfirði og m.a. fundið fornminjar sem gefa vísbendin- gar um hvernig járn var unnið á Íslandi til forna. Um helgina var járnvinnsla gerð eftir þeim vísbendingum þar sem alíslensk járnbræðsla var gerð í torfofni og m.a. unnið með Dalaleir frá Höllu Steinólfsdóttur í Fagradal. Ljósm. sm. Skógræktin lagði til heilt tonn af kolum fyrir hátíðina. Menn unnu hörðum hön- dum að því að höggva kolin í minni einingar fyrir brennsluna. Ljósm. sm. Unnið var úr járni á staðnum og hér má m.a. sjá James Austin járnsmið og sér- fræðing í axarsmíði vinna víkingaöxi. Ljósm. sm. Nýhamrað íslenskt járn! Það var mikil ánægja með árangurinn en hér má sjá Dr. William R. Short framkvæm- dastjóra Hurstwic og skipuleggjanda hátíðarinnar, Svavar Gestsson fyrrum ráðherra, Bjarnheiði Jóannsdóttur rekstraraðila Eiríksstaða og Kristján Sturluson sveitarstjóra Dalabyggðar. Ljósm. Guðrún Ágústsdóttir. Fanndís Huld Valdimarsdóttir gler- listarkona vann glerperlur að hætti víkinga og bauð gestum upp á að útbúa sínar eigin glerperlur. Ljósm. sm. Á laugardeginum var járn brætt í ofni líkum þeim sem fundist hafa í Skandi- navíu og tókst vel til. Ljósm. sm. Svipmynd frá hátíðinni á laugardaginn. Ljósm. sm. Skartgripir unnir með aldagamalli aðferð. Ljósm. jm.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.