Skessuhorn


Skessuhorn - 04.09.2019, Page 16

Skessuhorn - 04.09.2019, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 201916 Ef þú póstar því ekki á Facebook þá gerðist það ekki. Ef þú tekur ekki upp vídeó og setur í „storyið“ á In- stagram þá ertu ekki spennandi og ef þú kíkir ekki á nýjustu færslur allra samfélagsmiðla heims þá veistu ekkert hvað er í gangi. Þetta eru kannski fullýkt tilfelli en eflaust eru margir búnir að tengja. Svona er hugsunarhátturinn hjá flestum í dag þó við viljum ekki viðurkenna það - og oftar en ekki eru þessi tæki; snjallsímar og tölvur, farin að láta okkur líða verr frekar en að bæta líðanina. Ekkert nema endalaus samanburður við hvert annað og stöðugt áreiti símtækja allan sólar- hringinn, eða hvað? Borgnesingur- inn Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir hefur mikið velt vöngum yfir öll- um þeim áhrifum sem samfélags- miðlar geta haft á daglegt líf og hef- ur hún brugðið á það ráð að taka sér reglulegar pásur frá samfélags- miðlum. Blaðamaður Skessuhorns hitti Jóhönnu á kaffihúsi í Vesturbæ Reykjavíkur einn morguninn í lið- inni viku til að ræða málin nánar, en hún er nú búsett í höfuðborginni ásamt kærasta sínum. Forvitin að prófa „Ég er ekki sú fyrsta til að gera þetta, bara svo það sé á hreinu,“ seg- ir Jóhanna í upphafi samtals okkar, en hún var sjálf stödd í miðri sam- félagsmiðlapásu þegar blaðamaður hitti á hana. „Ég var búin að heyra af þessu og fannst þetta pínulítið bull í fyrstu. Ég hugsaði að sumir þyrftu á þessu að halda, en ekki ég, að ég væri bara góð. Nema svo varð ég forvitin. Ég hef alltaf passað mig ógeðslega mikið á að vera ekki háð neinu og pæli mikið í því reglulega. Ég er reyndar háð kaffi.“ Hér stopp- ar hún og hlær og fær sér sopa af myndarlegum bolla fullum af latte. „En svo hugsaði ég; hvað myndi svona pása gera fyrir mig? Ég hafði heyrt að svona samfélagsmiðlapásur virkuðu sem kvíðameðöl á suma og minnka jafnvel stress og streitu hjá öðrum,“ segir Jóhanna. Um svipað leiti þegar Jóhanna var að íhuga að prófa þetta fyrst þá vildi svo til að hún fór í leikhús með einni góðvinkonu sinni sem hún hafði ekki hitt í einhvern tíma. „Hún var í símanum allt kvöldið fy- rir utan þegar leikritið var í gangi. Hún var með mér en ekki með mér, hún var í rauninni með einhver- jum allt öðrum þarna. Það er ekki skemmtileg tilfinning. Á móti ke- mur líka að ég held við séum flest sek um að vera þessi aðili líka. Það er, þessi einstaklingur sem er stans- laust í símanum í stað þess að vera á staðnum með vinum eða fjölskyl- Tekur reglulegar samfélagsmiðlapásur Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir segir áhrifin góð að kúpla sig út du,“ bætir hún við. Jóhanna íhugaði vandlega hvernig hún ætti að nál- gast það að fara í svona samfélags- miðlapásu og vissi að til þess að það bæri árangur væri mikilvægt að hafa gott plan frá upphafi svo ekki væri hægt að freistast til þess að svindla á sjálfum sér. Ef það er á dagskránni, þá er það að fara að gerast „Ég byrjaði að taka fyrstu sam- félagsmiðlapásuna fyrir rúmum tveimur árum síðan. Á þeim tíma var mamma mín nýbúin að segja mér sögu af sjálfri mér frá því ég var lítil og það gaf mér hugmyndina að því hvernig ég myndi nálgast þessa áskorun,“ segir Jóhanna. Þegar Jóhanna var lítil þá fannst henni svakalega leiðinlegt að fara í bað, hún gjörsamlega hataði það og kvöld eftir kvöld þurfti móðir Jóhönnu að tuða í dóttur sinni sem aldrei vildi fara í bað. „Það er eitt með mig, það er hvað ég er ótrúle- ga samviskusöm. Mamma setti bað- ferðirnar inn í stundatöfluna mína. Það stóð þá skírt, að á þessum tíma þá færi Jóhanna í bað. Þegar þetta er komið svona á dagskrána þá er ég mun meðtækilegri. Ég hugsaði alltaf; oh, ég þarf að fara í bað, en af því það var á dagskrá, þá fór ég all- taf í bað,“ útskýrir hún. „Þetta vir- kar á mig. Þegar ég er búin að negla eitthvað niður þá er ég að fara að gera það. Ég setti fyrstu samfélags- miðlapásuna mína inn í dagatalið mitt, mánuð fram í tímann og viku í senn. Svo setti ég alla mánuði, hálft ár fram í tímann, inn í dagatalið. Þá er þetta þarna, svart á hvítu og þú getur ekki svikið sjálfan þig,“ bætir hún við. Aðspurð segir Jóhanna að hún hafa eingöngu tvisvar á þessum tveimur árum tekið pásu frá pásu en fyrir utan þessi tvö skipti þá hefur hún samviskusamlega staðið við sitt og tekið sér viku samfélagsmiðlapá- su á fjögurra til fimm vikna fresti. Með góða sjálfstjórn Áður en Jóhanna byrjaði að taka sér pásur þá var hún búin að minnka áreitið frá símanum umtalsvert. „Ég var áður búin að stilla símann þannig að ég fengi ekki „notifica- tions“. Var búin að slökkva á öllu svoleiðis þannig að það eina sem ég sá voru SMS eða ef einhver þurfti hreinlega að hringja í sím- ann til að ná í mig. Í fyrstu vikunni í samfélagsmiðlapásunni þá skráði ég mig út af Facebook, Facebook Messenger, Instagram og Snapchat en áttaði mig fljótt á að það gengi ekki alveg upp. Ég var bara farin að missa af barnaafmælum og slíku með því að vera ekki á Facebook. Auk þess er Facebook mikið not- að með skólanum til að eiga í sam- skiptum við samnemendur og kennara í þar til gerðum Facebo- ok-grúbbum,“ útskýrir Jóhanna. Í annað skiptið sem Jóhanna tók sér samfélagsmiðlapásu þá hliðraði hún örlítið til og hélt Facebook inni en sama fyrirkomulagi, að hafa slökkt á „notifications“. „Ég er með ágæta sjálfstjórn og er með öll þessi öpp í símanum hjá mér, ég bara skrái mig út af þeim hver- ju sinni þegar kemur að pásunni,“ bætir hún við. „Af hverju er ég að fylgja þessum?“ Eftir fyrstu samfélagsmiðlapás- una sína fór Jóhanna að íhuga það hvernig hún gæti bætt þessa miðla og nýtt þá til að láta gott af sér leiða en hún hefur ávallt talað í einlægni um að vera trú sjálfri sér sama hvað. „Ég er eiginlega bara svona. Ég er alin þannig upp að það hefur aldrei reynst mér erf- itt að tala opinskátt um hlutina en það er einmitt það sem hjálpar ekki bara okkur sjálfum, heldur oft á tíðum líka öðrum. pabbi er með bilaðslegt hlaupablogg og mamma setur allt sem hún gerir á Facebo- ok. Ég er bara svolítið með þetta í mér,“ segir Jóhanna hreinskilin. „Ég hef fengið rosalega jákvæð við- brögð við þessu sem er bara gaman. Sama hver þú ert, þá geta allir haft áhrif á einhvern. Svo er líka mikil- vægt að spyrja sig; af hverju er ég að fylgja þessum einstaklingi, þekki ég hann, er ég að fá hugmyndir af „outfitum“, eða innblástur hvern- ig ég gæti raðað upp heima hjá sér, er ég að elta einstaklinginn því mér finnst gaman að tala um hann, hvað er þessi einstaklingur að gefa mér á móti, er það jákvætt eða nei- kvætt, og þar fram eftir götunum. Ég elska fallegar myndir og mér finnst geggjað gaman þegar vinir mínir setja gordjöss myndir af sér inn á Instagram. Ég er sú fyrsta til að líka við myndina og kommenta,“ útskýrir Jóhanna. Ef myndin er góð þá verður hún póstuð Jóhanna hefur unnið markvisst að því að efla sjálfstraustið hjá sér með sérstökum æfingum sem að hennar sögn er ógeðslega erf- itt, sérstaklega það að læra að vera alveg sama um álit annarra. Hún segir áhrifin við það að kúpla sig svona reglulega út séu svakalega góð og ætlar hún að halda sam- viskusamlega áfram á sömu braut, þetta er jú í dagbókinni. „Í dag nota ég í rauninni sam- félagsmiðla eins og hálfgerða dagbók. Eftir að hafa tekið svona hlé þá er ég ekkert að spá í fjöl- da „like um“ á myndunum sem ég birti á þessum miðlum. Maður he- fur heyrt af því að fólk sé að eyða myndum því það var að fá svo lí- tið af „likeum“. Ég hef hins ve- gar oft spáð í því hvers vegna ein mynd fær svona mörg „like“ og önnur kannski þrefalt meira. En þegar öllu er á botninn hvolft, svo lengi sem mér finnst myndin ge- ggjuð, þá set ég hana inn,“ segir Jóhanna að lokum, rétt áður en blaðamaður tekur nokkrar myn- dir af henni. glh Áskorun Jóhönnu til lesenda Skessuhorns Hvernig líður þér þegar þú skoðar samfélagsmiðla? Hvernig viltu láta þér líða? Hvernig getur þú stjórnað notkuninni og því sem þú sérð? Góð ráð þegar gera skal hlé á samfélagsmiðlanotkun: Ákveddu hversu lengi þú vilt taka pásu (eru það þrír dagar, vika..?) Settu pásuna inn í dagatalið! Hvaða samfélagsmiðla ætlar þú að hvíla? Eru einhverjir sem þú getur hugsað þér að kveðja endanlega? Láttu nánustu fjölskyldu og vini vita af pásunni og hvernig sé best að ná í þig. Með því að láta fleiri vita þá færðu líka betra aðhald og ert lí- klegri til að halda hana út. Hugsaðu hvort það sé eitthvað ákveðið sem þú vilt fá út úr pásunni. Er það minna stress, meiri tími, langar þig að vera minna háð/ur þes- sum miðlum. Hvað er það? Taktu stöðuna að pásu liðinni og farðu yfir hverju það breytti fyrir þitt daglega líf. Hvers sakna ég ekki? Hvernig breyttist dagleg notkun mín af miðlinum eftir á? Hvernig get ég bætt upplifun mína og annarra af miðlinum? Ykkar, Jójó Jóhanna Stefáns Bjarkardóttir hefur tekið reglulegar samfélagsmiðlapásur í rúm tvö ár.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.