Skessuhorn


Skessuhorn - 04.09.2019, Page 21

Skessuhorn - 04.09.2019, Page 21
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 2019 21 ÍSLENSK HÖNNUN SMÁRATORGI KRINGLAN GLERÁRTORGI LINDESIGN.IS Mosató Málverk eftir Þórunni Báru Björnsdóttur listmálara í Bókasafni Akraness Sýningin opnar föstudaginn 6. sept kl. 16 og er síðan opin á afgreiðlsutíma safnsins til 27. september. Allir hjartanlega velkomnir Bókasafn Akraness • Dalbraut 1 • s. 433 1200 bokasafn.akranes.is • bokasafn@akranessofn.is SK ES SU H O R N 2 01 9 Tveir af stærstu göngustígum Stykkishólms voru malbikaðir núna fyrir síðustu helgi auk eins lítils. Fyrst ber að nefna göngustíg- inn frá Aðalgötu að Grunnskólan- um í Stykkishólmi, með tengingu við íþróttamiðstöðina og áhorf- endastúku íþróttavallarins. „Síð- an var malbikaður stígurinn sem tengir saman Nes- og Áshverfin, sem er frekar langur og fjölfarinn og að lokum var malbikaður stíg- urinn sem tengir saman Lágholt og Árnatún. Þannig er stórum áfanga náð í átt að bættum samgöngum fyrir gangandi og hjólandi vegfar- endur í Stykkishólmi og á komandi árum er gert ráð fyrir að enn betur verði gert hvað varðar göngustíga og gönguleiðir í Stykkishólmi.“ segir Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri í samtali við Skessu- horn. „Að frátöldum stígnum sem ten- gir Lágholt og Árnatún eru þet- ta sennilega stærstu göngustígar- nir bæði að flatarmáli og lengd hér í Stykkishólmi og jafnframt mjög fjölfarnir stígar sem munu án efa nýtast bæjarbúum enn betur mal- bikaðir,“ segir hann og bætir við að áberandi hafi verið í umhverfisgön- gunum fyrir skemmstu hvað bæjar- búar kölluðu sterkt eftir bættum göngustígum og ljóst að það skiptir íbúa miklu máli að hafa góða gön- gustíga inn í bænum og bæjarland- inu. Það voru starfsmenn Malbi- kunar Akureyrar sem önnuðust malbikunina en BB og synir sáu um undirlagið. Verkið var unnið hratt og örugglega á fimmtudag og föstudag. „Farið var af stað og lagt undirlag á fimmtudag og fram á föstudag. Síðan hófst mal- bikunin sjálf á föstudaginn og þet- ta var allt saman klárað á tveimur dögum. Þetta gekk allt mjög vel og var fagmannlega unnið,“ segir bæ- jarstjórinn. Aðspurður segir hann að ekki verði meira malbikað í Stykkishól- mi þetta sumarið. „Þessar fram- kvæmdir nú voru aðeins eitt skre- fið að bættum samgöngum á milli hverfa í Stykkishólmi, en lögð hefur verið áhersla á að bæta göngustíga líkt og við höfum verið að gera hér í Stykkishólmi í sumar, bæði í bæ- num og í jaðri hans. Fyrr í sumar var m.a. uppgerður göngustígur sem liggur í gegnum Grensásinn og undirbúningur hófst að opnum gamla Stykkishólmsvegarins. Síðan voru þessir stígar malbikaðir núna. Eftir standa sumir minni göngustí- gar í bænum, en þeir eru minni og styttri en þessir sem voru teknir núna og ætti að vera hægara um vik og ódýrara að malbika þá þegar þar að kemur,“ segir Jakob Björgvin að endingu. kgk/ Ljósm. sá. „Við vorum í tvo daga í Þverá í Borgarfirði og fengum 25 laxa,“ sagði Stefán Sigurðsson þegar tíð- indamaður Skessuhorns heyrði í honum hljóðið á veiðislóðum. Þá var Stefán að vísu kominn í Grímsá. Veiðin hefur aðeins tekið kipp eft- ir að fór að rigna undir lok ágúst en fiskurinn nýtti sér aukið vatn og hefur verið að ganga í árnar. „Þverá gaf vel og við vorum að fá væna laxa. Síðan fórum við í Grímsá og fengum fyrsta daginn 15 laxa sem er bara býsna gott,“ sagðið Stefán. Leirá í Leirársveit er einnig far- in að gefa fiska og sjóbirtingurinn er að byrjaður að ganga í ána þessa dagana. Ágæt veiði hefur jafnframt verið í Langá þar sem vatnið hefur aukist til muna og fiskurinn er byrj- aður að taka hjá veiðimönnum. gb Stórlax úr Þverá, en áin er nú að komast í 850 laxa. Ljósm. Stefán. Þverá að komast í 850 laxa veiði Göngustígar í Stykkishólmi malbikaðir

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.