Skessuhorn


Skessuhorn - 04.09.2019, Page 26

Skessuhorn - 04.09.2019, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 4. SEpTEMBER 201926 MT: Stefán Gísli með verðlauna- gripinn síðastliðinn sunnudag. Hvað myndir þú velja að spyrja um í spurningu vik- unnar í Skessuhorni? Spurni g vikunnar (Spurt í FVA) Nikulás Ísar Bjarkason „Hvað er uppáhalds útihátíðin þín á Íslandi?“ Róbert Rögnvaldsson „Hvað er uppáhalds maturinn þinn?“ Steindór Mar Gunnarsson „Hver er uppáhalds íslenski tón- listarmaðurinn þinn?“ Mariyam Anwar Nassar „Hvað finnst ykkur um Skessu- horn?“ Aldís Mjöll Hlynsdóttir „Hvað er uppáhalds nammið þitt?“ Haustleikar Umf. Íslendings voru haldnir í blíðskaparveðri á Hvann- eyri á sunnudaginn. Þar komu sam- an afar, ömmur, foreldrar og börn og öttu kappi í ýmsum greinum en keppt var í pokahlaupi, hjólböruleikni, stíg- vélakasti með óhefðbundinni aðferð og fótbolta. Keppnin snérist fyrst og fremst um gleði. „Það var ekkert að- alatriði að kasta lengst eða vera fyrst- ur heldur fengu allir jafn mikið klapp og þetta snérist bara um að hafa gaman,“ segir Borgar páll Bragason í samtali við Skessuhorn. „Stemn- ingin var virkilega góð og að keppni lokinni voru grillaðar pylsur og hald- ið áfram að hafa gaman. Svo fóru all- ir glaðir heim,“ bætir hann við. arg/ Ljósm. Oddný Kristín Guðmundsdóttir. Síðastliðinn laugardag var Vin- arklúbbakeppni karla, milli golf- klúbbanna Mostra í Stykkishólmi og Vestarr í Grundarfirði. Leik- ið var á Bárarvelli. Þetta var seinni leikur keppninnar. Í vor var leikið á Víkurvelli hjá Mostra. Eftir þann leik áttu Mostramenn sjö vinninga í forskot. Í hverri keppni eru spil- aðar þrjár umferðir. Í fyrsta leik dagsins var spilaður Texas. Vestarr menn stóðu sig vel þar og náðu að vinna fjóra vinninga til baka. Næst var Greensome en þar náðu Vest- arr menn að minnka muninn nið- ur í einn vinning og staðan bjartari fyrir síðasta leik en þar var spilað tvímenningur. Í boði voru 11 vinn- ingar og fóru leikar jafnt. Mostra- menn unnu því leikinn með einum vinningi. Í mótslok var grillað lambakjöt og mótið gert upp með skemmti- sögum og ábendingum um hvar menn gátu gert betur á vellinum. Veðrið lék við leikmenn og dagur- inn var góður að sögn Svans Garð- arssonar. sk Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallýi; Rallý Reykjavík, hófst á fimmtudag og lauk á laugardag- inn. Ekið var víða í þessari löngu keppni, meðal annars um Berserkja- hraun og Jökulháls á Snæfellsnesi, Mýrar og Kaldadal í Borgarfirði, en keppnin var ræst og endaði í Reykjavík. Keppendur fengu allar útgáfur af veðri; m.a. sól, rigningu, 1-2 stiga hiti á Jökulhálsinum og lítils háttar snjókomu. Keppnin var sem fyrr haldin af Bifreiðaíþrótta- klúbbi Reykjavíkur. Þetta var jafn- fram stærsta keppni Íslandsmótsins í sumar, en eknir voru rúmlega þús- und kílómetrar, þar af tæplega 300 km. á sérleiðum. Einungis 13 áhafnir hófu keppni á fimmtudaginn, færri en undanfarin ár. Alls luku átta þeirra keppni, sem einnig er mjög lítið miðað við und- anfarin ár. Tölurnar segja að ýmis- legt hafi gengið á, þar á meðal þrjár veltur. Í einni þeirra var Borgfirð- ingurinn í hópnum í hlutverki að- stoðarökumanns; Aðalsteinn Sím- onarson sem ók með Valdimar Jóni Sveinssyni á MMC Lancer Evo 7 undir stýri. Eins og sjá má verður bíll þeirra ekki til stórræðanna á næstunni. Aðalsteinn og Valdimar sluppu með skrekkinn úr veltunni sem varð á Tröllhálsi, en veltibúr bílsins varði þá, jafnvel þótt búrið sjálft hafi bognað í átökunum. Leikar fóru þannig að Baldur Arnar og Heimir Snær báru sigur úr býtum, Skafti Svavar og Gunn- ar urðu í öðru sæti og Halldór Vil- berg og Valgarður Thomas þriðju. Hörð barátta var um verðlaunasæt- in sem og dýrmæt stig til Íslands- meistara en þar sem þessi keppni er lengri en aðrar þá gildir hún 1,5-falt í stigafjölda. Með sigri á laugardaginn tryggðu Baldur Arn- ar og Heimir sér Íslandsmeistara- titilinn þar sem helstu keppinaut- ar þeirra féllu úr keppni og fóru stigalausir heim. Þrátt fyrir að ein umferð sé eftir þá er titill þeirra í höfn. Loks má geta þess að allar áhafn- ir kusu að vekja athygli á átakinu „Ég á bara eitt líf“ og óku því með slíka límmiða á bílum sínum. mm/ Ljósm. Guðný Guðmarsdóttir.Illa leikinn bíll Valdimars og Aðalsteins eftir veltuna á Tröllhálsi. Rallað víða um Vesturlands í stærstu keppni ársins Íslandsmeistararnir Baldur Arnar og Heimir Snær á fullri ferð. Gunnar Björn Guðmundsson liðsstjóri Mostra tekur við bikarnum úr hendi Garðars Svanssonar, liðsstjóra Vestarrs. Mostramenn sigruðu vinaklúbbakeppnina með minnsta mun Að keppni lokinni voru grillaðar pylsur. Haustleikar sem snérust um að hafa gaman Hér má sjá flotta takta í hjólböruleikni.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.