Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 46

Læknablaðið - sep. 2019, Blaðsíða 46
406 LÆKNAblaðið 2019/105 „Vel er hægt er að byggja upp meira sér- nám en við höfum séð hér á landi og ég tel að við munum sjá meira af skipulögðu sérnámi í náinni framtíð,“ segir Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga á Landspítala. Spítalinn hlaut í sumar viðurkenningu mats- og hæfisnefndar heilbrigðisráðu- neytisins til að veita fullt sérnám í bráða- lækningum. Kennt er í náinni samvinnu við Royal College of Emergency Medicine í Bretlandi og er námið byggt á námsskrá og ePortfolio þeirra. Reynir Tómas Geirs- son leiddi nefnd um hæfnismatið. „Við stóðumst fyllilega þær kröfur og fengum að mér skilst eina bestu útkomu á mati á sérnámskennslu lækna sem veitt hefur verið námsleið hér á Íslandi,“ segir Hjalti. Þrettán í náminu Um 20 starfa sem bráðalæknar hér á landi og stunda 13 sérnámið hér um þessar mundir. „Þrír eru á fyrsta ári, sex á leið á annað ár og fjórir á því þriðja,“ segir Hjalti. Með tímanum verði nægilega margir bráðalæknar á landinu en miðað sé við einn á hverja 10.000 íbúa. „Ísland er þó strjálbýlla en mörg önnur lönd og því þyrftu þeir að vera rétt fleiri hér á landi.“ Hjalti nefnir marga kosti við að kenna sérfræðigreinina hér heima en hingað til hefur meginþorri lækna lært sérgrein sína utan landssteinanna. „Það er nýtt í íslensku heilbrigðiskerfi og læknasamfé- laginu að læknar taki stóran hluta af sínu sérnámi á Íslandi,“ segir Hjalti og bendir á að mikil pressa hafi verið á íslenska lækna að fara utan og sækja nýja þekkingu. „En þetta hugarfar hefur verið að breytast,“ segir Hjalti og nefnir kostina og aðal- ástæður þess að hægt sé að bjóða sérnám- ið hér á landi: „Í fyrsta lagi hefur með tilkomu netsins orðið auðveldara að sækja sér þekkingu. Hægt er að kynna sér bestu fyrirlestra í heimi í stofunni heima. Í öðru lagi flæða upplýsingar á milli landa og því auð- veldara að taka upp erlent sérnám en verið hefur,“ segir hann og bætir við: „Í þriðja lagi hefur fagleg þjálfun á læknum aukist, sérstaklega í okkar fagi, og því auðveldara að veita fulla kennslu. Í fjórða lagi er það þannig að til þess að starfa sem sérfræðilæknir í ákveðnu landi er mjög æskilegt að sérnámið hafi lagt áherslu á þau vandamál sem hafa verið í þínu nærsamfélagi,“ segir hann og bendir á að hann hafi lært í Bandaríkjunum þar sem mikil áhersla hafi verið lögð á með- höndlun skotsára og sjúkdóma sem sjáist almennt ekki á Íslandi. „Það er því þjálfun sem gagnast mér lítið hér á landi.“ Hann nefnir fleiri kosti þess að bjóða sérnám hér á landi. „Í fimmta lagi er líka kostur að hafa reynda sérnámslækna á spítalanum,“ segir hann og bendir á ákveðna vankanta á ís- lenska heilbrigðiskerfinu. „Það hefur verið byggt upp af reyndum sérfræðilæknum og kandídötum og þeim sem eru að byrja sérnám. Í kerfið hefur vantað sérnáms- lækna sem eru lengra komnir, sem bæði létta álagi af öðrum sérfræðilæknum og hægt er að treysta fyrir viðameiri verk- Með toppeinkunn fyrir sérnám á Landspítala „Af reynslu minni og störfum sem bráðalæknir erlendis tel ég bráðalækninganám á Landspítala fyllilega sambærilegt við það sem gerist í öðrum löndum,“ segir Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga á Landspítalanum, en Heilbrigðisráðuneytið hefur veitt leyfi til fulls sérnáms í bráðalækningum við spítalans. Meginþorri íslenskra lækna hefur hingað til stundað sérnám erlendis. ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Gefandi álagsstarf að vera bráðalæknir „Það er álagsstarf að vera bráðalæknir og fáir sem endast í 40 ár. Það er því algengt að þeir sem vinna við bráðalækningar fari yfir í stjórnunarstörf og rannsóknir og kennslu upp úr fimmtugu. Við þurfum því fleiri bráðalækna til að veita samfellda bráðaþjónustu um allt land, allan sólarhringinn,“ segir Hjalti Már Björnsson bráða- læknir. Hann segir að þrátt fyrir álagið séu bráðalækningar skemmtilegasta sérfræðigrein- in og gefandi vinna. „Það fylgir þessari sérgrein að vinna þétt með mörgum öðrum heilbrigðisstéttum. Reynslan í Bandaríkjunum er að þeir sem hafa farið í stjórnunar- störf þar hafa notið þess að vera með bakgrunn í bráðalækningum ólíkt þeim sem eru í mjög þröngum sérgreinum sem hafa ekki eins mikla snertifleti við heilbrigðiskerfið eins og bráðalækningar hafa,“ segir hann. Spurður hvers vegna hann hafi valið bráðalækningar á sínum tíma segist hann hafi unnið í 9 ár ár hinum ýmsu deildum Landspítala áður en bráðalækningar urðu fyrir valinu. „Ég komst að því að bráðalækningar og það sem fór fram á bráðamóttöku er alltaf það skemmtilegasta í ferlinu. Það er að taka á móti einstaklingum með bráð einkenni og vita ekki hvað er að og komast að því – eða í það minnsta komast af stað með að sjá hvað veldur einkennunum,“ segir Hjalti.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.