Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 24
SANDBLÁSTUR
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Ráðgjöf
Tilboð
Hönnun
Uppsetning
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
K Ö R F U B O LT I Kör f ubolt a s a m-
band Íslands hefur hafið rannsókn
á meintu veðmálasvindli í leik
Tindastóls og ÍR í Domino´s-deild
karla í körfubolta sem fram fór á
f immtudagskvöldið síðastliðið.
Það eru leikmenn Skagfirðinga sem
liggja undir grun í málinu en visir.is
greindi frá því.
Tindastóll laut í lægra haldi í
leiknum en fyrir leik var óeðlilega
háum fjárhæðum veðjað á leikinn
og veðmálasíður f lögguðu leikinn
sem grunsamlegan. Ekki liggur fyrir
um hvaða leikmenn Tindastólsliðs-
ins er að ræða í þessu máli.
Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ,
staðfesti það í samtali við visir.is að
sambandið hefði fengið veður af því
að grunur væri um að maðkur væri
í mysunni hvað fyrrgreindan leik
varðar og málið væri til skoðunar.
Ingólfur Jón Geirsson, formaður
körfuboltadeildar Tindastóls, var í
áfalli þegar Fréttablaðið bar þessar
ásakanir á hendur leikmönnum
liðsins undir hann.
Stjórn körfuboltadeildar Tinda-
stóls sendi síðan frá sér yfirlýsingu
síðdegis í gær þar sem fram kemur
að stjórnin trúi því að leikmenn
liðsins séu saklausir í þessu máli.
Félagið vonast enn fremur til þess
að rannsókn KKÍ verði bæði víðtæk
og öflug og þar muni sannleikurinn
koma í ljós sem allra fyrst.
Forráðamenn félagsins líta málið
alvarlegum augum og heita því
að veita KKÍ alla þá aðstoð sem þeir
geta við rannsóknina. – hó
Mikið áfall að heyra þessar ásakanir
Leikmenn Tindastóls liggja undir grun um veðmálasvindl. MYND/TINDASTÓLL
KÖRFUBOLTI „Ég er ekkert ánægður
með leikinn í heild sem lið. Við
erum ekkert að spila vel og erum
illa skipulagðir núna. Hluti af því
eru meiðsli. En persónulega var gott
að detta inn á góðan skotleik og mér
leið vel. Hitti úr fyrstu skotunum og
þá fer maður í ákveðinn gír,“ segir
Helgi Már Magnússon, leikmaður
KR, sem bar meiðslahrjáð lið KR á
herðunum í sigri á Val á fimmtudag.
Helgi skoraði 21 stig sem er það
mesta sem hann hefur skorað í
vetur og spilaði í 35 mínútur. Hann
hefur verið með 8,1 stig að meðaltali
í vetur. Þetta var fyrsti sigurleikur
meistaranna í þremur leikjum
en mikil meiðsli hafa hrjáð liðið.
Þannig eru Jón Arnór Stefánsson og
Kristófer Acox frá og sumir nánast
á annarri löppinni. „Crayon er að
harka sig í gegnum þessa leiki og
ætti í raun ekkert að vera að spila.
Björn sömuleiðis. Við erum búin að
kalla Finn bróður inn í liðið sem er
frábært en við þurfum einfaldlega
að trukka okkur í gegnum þessa
leiki sem eftir eru fram að jólum og
ná sigri – hvernig sem þeir líta út.“
Hann segist vona að þessu
meiðslatímabili fari að ljúka sem
fyrst svo álagið dreifist betur og
yngri leikmenn taki við keflinu en
Helgi er 37 ára gamall og hefur verið
einn besti körfuboltaleikmaður
landsins í langan tíma. „Ég byrjaði
þennan leik á því að setja niður þrjú
fyrstu skotin og þá kemst maður í
ákveðinn gír. Það er alltaf gaman
að eiga einn og einn góðan leik en
við sem erum eldri eigum að vera að
styðja við bakið á þeim yngri sem
eru drifkrafturinn í liðinu, Crayon,
Kristó, Matti og Brynjar. Þannig lít
ég á hlutina. Við eigum ekkert að
vera að bera eitthvað uppi en stað-
an er þannig að við erum fáliðaðir
og það féll þannig gegn Val að við
Brynjar vorum að skora.“
Helgi hefur verið heppinn með
meiðsli í gegnum ferilinn og hugsar
vel um sig. Hann segist hafa lagst á
koddann um miðnætti og sofnað
enda eigi hann börn sem vakni
snemma – nánast á ókristilegum
tíma. „Ég er laus við að vera vakandi
lengi eftir leiki. Ég er með þrjú börn
sem vakna snemma. Sú yngsta,
sem er eins og hálfs árs, vaknaði
um fimmleytið. Ég kom heim eftir
leik og fór í nuddgræju sem KR á
og ég hef afnot af, í 40 mínútur. Allt
sem getur hjálpað – maður stekkur
á það. Borðaði og var sofnaður um
miðnætti.
Skrokkurinn er alveg lúinn. Ég
spilaði mikið en ég finn að maður
þarf að passa vel upp á sig, verandi
Körfubolti og snyrtivöruheimurinn
Helgi Már Magnússon leikmaður KR var frábær gegn Val á fimmtudag. Skoraði 21 stig og bar meiðslahrjáð lið KR á herðunum.
Helgi er viðskiptastjóri hjá ORF líftækni sem framleiðir meðal annars EGF dropana sem allir vilja nota – ungir sem aldnir.
Helgi Már Magnússon Helgi skoraði 21 stig gegn Val sem er það mesta sem hann hefur skorað í vetur og spilaði 35
mínútur. Hann hefur verið með 8,1 stig að meðaltali í vetur. Hann fer í hot yoga daginn eftir leik. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ORF Líftækni framleiðir sérvirk prótein sem notuð eru sem innihaldsefni í
Bioeffect húðvörurnar sem eru vinsælar í klefa KR. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hæð 197 sm Þyngd 93 kg
Helgi í vetur
Mínútur 23:21
Fráköst 3,9
Stoðsendingar 1,8
Framlagspunktar 9,3
Stig 8,1
Helgi gegn Val
Mínútur 35:20
Fráköst 5
Stoðsendingar 4
Framlagspunktar 21
Stig 21
kominn á þennan aldur. Ég reyni
t.d. alltaf að komast í hot yoga hjá
Iceland Power Yoga daginn eftir
leik sem endurheimt. Ég mæli ein-
dregið með því. Ég hef hingað til
sloppið þokkalega við meiðsli. Ég
segi nú yfirleitt að það sé út af leik-
stílnum. Ég er ekkert sá hraðasti eða
með mesta sprengikraftinn þannig
að það er minna álag á öll liðamót.“
Vinsælar vörur í klefa KR
Helgi starfar hjá ORF Líftækni sem
alþjóðlegur viðskiptastjóri fyrir
Bioeffect húðvörurnar. Hann hefur
þar sjö markaði í Evrópu á sinni
könnu en vörur fyrirtækisins eru
seldar í 28 löndum og hafa fengið
fjölda viðurkenninga.
„EGF Serum droparnir eru flagg-
skipið okkar og er stór hluti af okkar
sölu. Þeir hafa slegið í gegn víðs-
vegar um heiminn en við erum líka
með fleiri frábærar vörur og förum
sístækkandi.
Ég nota t.d. sjálfur mest EGF Day
Serum. Þetta er vara sem hefur
mjög létta gel áferð og gengur beint
inn í húðina eftir notkun. Þetta er
vinsælt inn í KR klefanum og svín-
virkar eins og sést,“ segir hann og
hlær.
„Karfan er orðin auka hjá mér,
vinnan gengur fyrir á þessum tíma-
punkti lífs míns. En ég er með mjög
skilningsríka yfirmenn sem veita
mér svigrúm þegar þess þarf til að
fara á æfingar og í leiki svo framar-
lega sem maður skilar sínu vinnu-
lega þá er allt í góðu hér. Þetta er
frábær vinnustaður og gott starfs-
umhverfi. Ég gæti ekki beðið um
meira.“ benediktboas@frettabladid.is
✿ Helgi Már Magnússon
Ég reyni t.d. alltaf
að komast í hot
yoga hjá Iceland Power Yoga
daginn eftir leik sem endur-
heimt. Ég mæli eindregið
með því.
Helgi Magnússon