Fréttablaðið - 14.12.2019, Side 62
Við hjá Kletti – sölu og þjónustu óskum eftir
að ráða ábyrgðarfullan og drífandi rekstrarstjóra
hjólbarðadeildar Kletts.
Starfið felur í sér daglegan rekstur hjólbarðadeildar,
umsjón með starfsmannamálum, gerð verkefna-
og fjárhagsáætlana, greiningu og gerð söluáætlana,
ábyrgð á pöntunum frá birgjum og utanumhald
um samninga.
• Góðir samskiptahæfileikar, rík þjónustulund
og jákvætt viðmót
• Geta til að vinna undir álagi
• Nákvæm og vandvirk vinnubrögð
• Skipulagshæfni sem felst í forgangsröðun og tímastjórnun
• Þekking og reynsla af samningatækni
• Yfirgripsmikil reynsla og þekking á starfsemi rekstrareininga
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
• Góð kunnátta og færni í Excel og DAX er nauðsynleg
Umsóknir skulu sendar á ba@klettur.is og umsóknarfrestur er til og með 17. desember 2019. Óskað er eftir ferilskrá.
GAKKTU TIL LIÐS VIÐ
KRAFTMIKINN HÓP HÆFNISKRÖFUR:
www.skagafjordur.is
Sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir að ráða lausnamiðaðan og metnaðarfullan
einstakling í starf sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. Á veitu- og framkvæmdasviði starfa um 25 manns að fjölbreyttum
verkefnum; hita- og vatnsveitu, viðhaldi- og nýbyggingu fasteigna, gatnagerð,
fráveitu, umhverfis- og hreinlætismálum o. fl.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun og starfskjör fara eftir samningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttafélag.
Umsóknarfrestur er til 23. desember nk.
Umsóknum ásamt starfsferilskrá og kynningarbréfi skal skila í gegnum íbúagátt sem finna má á
heimasíðu sveitarfélagsins. Nánari upplýsingar um starfið sem og frekari menntunar- og hæfniskröfur
má finna á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Ítarlegri upplýsingar um starfið
veita Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri í síma 455-6000, netfang sigfus@skagafjordur.is og Indriði Þór
Einarsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs í síma 455-6000, netfang indridi@skagafjordur.is.
Helstu verkefni:
• Yfirumsjón með veitu- og framkvæmdamálum
sveitarfélagsins
• Umsjón með útboðum og verksamningum
• Verkefnastjórn sérverkefna
• Stefnumótun á veitu- og framkvæmdasviði og
sveitarfélaginu í heild í samstarfi við yfirstjórn
sveitarfélagsins
• Samskipti og upplýsingagjöf til kjörinna fulltrúa,
viðskiptavina og íbúa sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Verk- eða tæknifræðimenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af stjórnun og rekstri
• Forystu- og skipulagshæfileikar
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Tungumálakunnátta
• Góð tölvukunnátta
Þýskukennari
Vegna veikinda er laus staða þýskukennara á vormisseri
2020 við Menntaskólann í Reykjavík.
Óskað er eftir kennara með réttindi til að kenna þýsku á
framhaldsskólastigi.
Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við
Kennarasamband Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019. Um-
sóknum skal skilað inn á Starfatorg (www.starfatorg.is).
Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Siemsen
rektor í síma 545 1900 eða í netfangið: rektor@mr.is og
Einar Hreinsson konrektor í síma 545 1900 eða í netfangið:
einar@mr.is.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum
um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki heimilt að ráða
einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.
kafla almennra hegningarlaga og því er beðið um saka-
vottorð áður en af ráðningu getur orðið.
Umsjónarmaður fasteigna
Menntaskólans í Reykjavík
Laus er til umsóknar staða umsjónarmanns fasteigna við Menntaskólann í Reykjavík. Staðan er laus
frá og með 1. janúar 2020. Um er að ræða 100% starf.
Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf auk meðmæla.
Hæfni- og menntunarkröfur:
Lipurð, þjónustulund og stundvísi
Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald
Þekking á hússtjórnarkerfum/loftræstikerfum/tæknikerfum
Þekking á öryggismálum og eldvörnum
Að geta brugðist við og tekið að sér minniháttar viðhald
Íslensku- og enskukunnátta
Tölvukunnátta sem hæfir starfinu
Iðnmenntun er æskileg
Menntaskólinn í Reykjavík er elsta menntastofnun landsins og hefur yfir að ráða nokkrum byggingum
og eru nokkrar þeirra undir Minjavernd. Lóð skólans afmarkast af Lækjargötu, Amtmannsstíg,
Þingholtsstræti og Bókhlöðustíg.
Starfið er fjölbreytt og líflegt. Starfsmenn eru tæplega 80 og nemendafjöldi er 700.
Launakjör eru samkvæmt stofnanasamningi skólans við SFR.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2019. Umsóknum skal skilað inn á Starfatorg
(www.starfatorg.is). Nánari upplýsingar um starfið veitir Elísabet Siemsen rektor í síma 545 1900 eða
í netfangið: rektor@mr.is og Einar Hreinsson konrektor í síma 545 1900 eða í netfangið: einar@mr.is.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um starfið.
Athygli umsækjenda skal vakin á því að samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008 er ekki
heimilt að ráða einstakling til starfa sem hlotið hefur dóm fyrir brot á XXII.kafla almennra
hegningarlaga og því er beðið um sakavottorð áður en af ráðningu getur orðið.
ARKITEKT
BYGGINGAFRÆÐINGUR
SKIPULAGSFRÆÐINGUR
Vegna aukinna umsvifa og fjölbreyttra verkefna framundan,
leitum við að
arkitekt eða byggingafræðingi með reynslu af
verkteikningum og eftirfylgni hönnunarverkefna.
Einnig leitum við að arkitekt eða skipulagsfræðingi með
brennandi áhuga á skipulagsmálum og reynslu af aðal- og
deiliskipulagsvinnu.
Arkþing-Nordic er hluti af Nordic Office of
Architecture sem er 220 manna fyrirtæki með
starfssemi í fjórum löndum. Hér á Íslandi starfa 21 hjá
fyrirtækinu.
Umsóknir sendist til hh@arkthing.is fyrir 21. desember.
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær
sem trúnaðarmál.
www.nordicarch.com
Við erum alltaf með
bókara á skrá
hagvangur.is
10 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R