Fréttablaðið - 14.12.2019, Blaðsíða 63
Vakin er athygli á því að á fundi skipulagsráðs Kópavogs 18. nóvember 2019 var lögð fram tillaga á
vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Kópavogs 2012-2024 fyrir Traðarreit – eystri (B29).
Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Álftröð í austur, Digranesvegi í suður, Skólatröð í
vestur og Hávegi í norður. Í gildandi aðalskipulagi er umrætt svæði skilgreint sem íbúðarsvæði.
Stærð skipulagssvæðisins er um 7.800 m2 og á því standa nú 8 íbúðarhús með samtals 12
íbúðum sem byggð eru á árunum 1952 til 1955. Í framlagðri vinnslutillögu er gert ráð fyrir óbreytt-
ri landnotkun en svæðið verði skilgreint sem þróunarsvæði þar sem byggðar verði allt að 180
íbúðir í tveggja til fjögurra hæða fjölbýlishúsum með kjallara og inndreginni þakhæð. Gert er ráð
fyrir allt að 200 m2 atvinnuhúsnæðis á jarðhæð með aðkomu frá Álftröð. Samkvæmt tillögunni
er áætlað nýtingarhlutfall svæðisins ofanjarðar 2,45 og með kjallara 3,70. Í tillögunni er miðað við
1,3 bílastæði á íbúð auk gestabílastæða í götu og 1 bílastæði á hverja 50 m2 atvinnuhúsnæðis.
Vinnslutillagan er sett fram í greinargerð ásamt umhverfisskýrslu dags. í nóvember 2019.
Skipulagsráð samþykki að framlögð vinnslutillaga verði kynnt í samræmi við 2. mgr. 30. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010. Stefnt er að því að ofangreind vinnslutillaga verði samþykkt í formlega
auglýsingu inna fárra vikna.
Vinnslutillagan ásamt vinnslutillögu að deiliskipulagi ofangreinds svæðis er aðgengileg á heimasíðu
bæjarins, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogsbæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til
16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá kl. 8:30 til 15:00. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu hafa
borist skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi
eða á netfangið skipulag@kopavogur.is eigi síðar en kl. 15:00 miðvikudaginn 29. janúar 2019.
Fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 17:00 er fyrirhugaður í Kópavogsskóla opinn kynningar fundur
með íbúum og öðrum hagsmunaaðilum þar sem vinnslutillaga að breyttu aðalskipulagi og
vinnslutillaga að deiliskipulagi fyrir Traðarreit - eystri verða kynntar.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Traðarreitur – eystri. B29.
Breyting á aðalskipulagi.
Tillaga á vinnslustigi.
kopavogur.is
Hluthafafundur
Hluthafafundur í Þorbirni hf verður
haldinn 28. desember nk. kl. 10:00 á skrifstofu
félagsins að Hafnargötu 12 í Grindavík
Dagskrá:
1. Lækkun hlutafjár
2. Útgreiðsla arðs
3. Önnur mál löglega upp borin
Dagskrá, ásamt tillögum munu liggja frammi á
skrifstofu viku fyrir aðalfund.
Stjórn Þorbjarnar hf.
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Árangur fyrirtækja ræðst af þekkingu,
getu og reynslu starfsmanna.
Hver einstök ráðning er mikilvæg
fjárfesting og er hagur bæði fyrirtækis
og viðkomandi einstaklings að vel
takist til.
RÁÐNINGAR