Fréttablaðið - 14.12.2019, Síða 96
Jólalagið
„Hér eru tólf ávextir sem
koma í pörum,“ sagði
Lísaloppa. „Þrautin er að
nna hvaða ávextir eru
eins.“ „Má borða þá þegar
maður er búinn?“ spurði
Kata. „Jú, jú, það má það,“
svaraði Lísaloppa. „Allt í
lagi,“ sagði Kata. „Þá skal
ég glíma við þessa þraut,
því mér nnst ávextir
góðir á bragðið, þótt það
sé ekkert spennandi að
nna tvo og tvo eins.“
„En heldur þú ekki að þeir
bragðist mismunandi,“
spurði Lísaloppa. „Að
aðeins þeir sem eru
eins bragðist eins?“
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
382
Sérð þú
hvaða ávex
tir
eru eins?
?
?
?Kata hugsaði sig um stutta stund. „Þú segir
nokkuð,“ sagði hún
hugsi og bætti við
ákveðin. „Nú líst mér
betur á þetta. Brettum
upp ermar, teljum
ávextina og borðum þá
upp til agna.“
Í skólabókasafni Laugarnesskóla
ræður Vignir Ljósálfur Jónsson
ríkjum. Hann er með hugkvæmari
bókavörðum þegar kemur að því að
gleðja börnin og auka áhuga þeirra
á lestri. Í bókaklúbbum hans hafa
krakkar orðið drekameistarar,
með því að spæna í sig nógu margar
drekabækur. Svo er Harry Potter
klúbbur, Óvættafaraklúbbur og
Strumpaklúbbur svo eitthvað sé
nefnt. Í aðdraganda jólanna er
Vignir Ljósálfur með ýmsa leiki í
gangi. Einn þeirra er lukkuhjól sem
börnin mega snúa þegar þau koma
í safnið á morgnana.
Hvað gerist þegar lukkuhjólinu
er snúið? Það fer eftir því hvar örin
lendir hvað börnin eiga að gera. Hér
er dæmi: Segðu hátt: Ég er jólabarn.
Númer 22 er vinsælt. Verðlaunin
eru sjálfa af mér og viðkomandi
barni með jólagleraugu. Það eru
komnar margar slíkar myndir á
vegg frammi á gangi.
Hvað f leira sniðugt ertu með til
að skemmta krökkunum? „Það
barn sem kemur fyrst á bókasafnið
að morgni fær að opna gluggann á
Syrpudagatalinu og svara spurn
ingu sem er bak við hann. Hvar
vetna blasa við pappírsmódel, sem
Vignir Ljósálfur hefur gert: pipar
kökuhús, kastalar og jólatré svo
nokkur séu nefnd. Hann er líka
mikill áhugamaður um Harry Pot
ter, eitt jóladagatal tengist honum
og í öllum gluggum er eitthvað sem
viðkemur Harry Potter sem síðan er
hægt að hengja á jólatréð.
Svo er líka Harry Potter spurn-
ing dagsins. Hver var hún í dag?
Spurningin var Hvað fékk Dobby í
jólagjöf á 4. vetri í Hogward. Börnin
skrifa svarið á miða og nafnið sitt og
setja í eldbikarinn. Um hádegisbil
dreg ég einhverja þrjá og ef þeir eru
með rétt svör fá þeir Harry Potter
límmiða.
Hver nig er jólak lúbbur inn?
Krakkarnir þurfa að lesa fimm
bækur, þá fá þau gamalt jólasveina
nafn. Þú fengir kannski viðurnefnið
Rjómasleikir ásamt viðurkenn
ingarskjali!
Á háu borði er kærleikstré. Hvað
er gert við það? Það er eitt af verk
efnum sem upp koma á jólalukku
hjólinu. Börnin skrifa á lauf blað
– sem þau fá hjá mér – eitthvað sem
þau eru þakklát fyrir. Hér hefur ein
hver skrifað skólinn.
Heitir þú í alvöru Ljósálfur? Já,
Vignir Ljósálfur. Þegar ég varð 49
ára þá spurði dóttir mín hvort ég
ætlaði ekki að gera eitthvað af mér
áður en ég yrði fimmtugur og sett
legur. Svo ég ákvað að fá mér þetta
millinafn, sótti um hjá dómsmála
ráðuneytinu og Mannanafnanefnd
gaf grænt ljós.
Bókasafnið er
ævintýrastaður
Eitt af pappírsmódelunum hans Vignis er Howl’s Moving Castle, úr jap-
anskri teiknimyndasögu. Gerð hans tók þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
BÖRNIN SKRIFA Á
LAUFBLAÐ – SEM ÞAU
FÁ HJÁ MÉR – EITTHVAÐ SEM
ÞAU ERU ÞAKKLÁT FYRIR. HÉR
HEFUR EINHVER SKRIFAÐ
SKÓLINN.
:/:Á jólunum er gleði og gaman
fúm, fúm, fúm :/:
Þá koma allir krakkar með í
kringum jólatréð.
Þá mun ríkja gleði og gaman, allir
hlæja og syngja saman fúm, fúm,
fúm!
:/: Og jólasveinn með sekk á baki
fúm, fúm, fúm :/:
Hann gægist inn um gættina á
góðu krakkana.
Þá mun ríkja gleði og gaman, allir
hlæja og syngja saman fúm, fúm,
fúm!
:/: Á jólunum er gleði og gaman
fúm, fúm, fúm :/:
Þá klingja allar klukkur við og kalla
á gleði og frið.
Þá mun ríkja gleði og gaman, allir
hlæja og syngja saman fúm, fúm,
fúm
Á jólunum er gleði og gaman
Þjónninn: Jæja, í dag er ég með
steikta lifur, reykta tungu, nýru í
kássu og grísalappir.
Gesturinn: Ég var ekki að spyrja
um heilsufar þitt.
Af hverju fer
Lúlli laukur
alltaf í ljós?
Svo að hann
verði ekki hvít-
laukur.
Allir sem halda að
þeir séu vitleys-
ingar standi á fætur,
sagði kennarinn við bekkinn.
Eftir nokkra stund stóð einn
nemandinn upp hægt og rólega.
Heldurðu að þú sért vitleysing-
ur? spurði kennarinn.
Nei, alls ekki, svaraði nemand-
inn. Mér fannst bara leiðinlegt
að þú þyrftir að standa þarna
einn.
Hvað er líkt
með fíl og
gíraffa?
Þeir eru
báðir
gulir
nema fíllinn.
Brandarar
1 4 . D E S E M B E R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R56 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR