Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 28
Zendaya Maree Stoermer Coleman, einfaldlega þekkt sem Zendaya, er leik- og söngkona sem hefur vakið þó nokkra athygli fyrir f lottan og persónulegan stíl. Hún hikar ekki við að taka áhættu á rauða dregl- inum en er alltaf samkvæm sjálfri sér í klæðavali. Hún er gjörn á að klæðast þröngum og formföstum fötum, en hikar ekki við að prófa sig áfram með öðruvísi snið, liti og mynstur. Zendaya hóf ferilinn sem barna- fyrirsæta og dansari. Árið 2010 fékk hún hlutverk í Disney-þætt- inum Shake it up. Stjarna hennar hóf svo fyrst virkilega að skína árið 2013 þegar hún tók þátt í raunveru- leikasjónvarpsþættinum Dancing With the Stars. Hún lenti í öðru sæti á eftir kántrístjörnunni Kelli Pickler. Árið 2017 lék hún í fyrsta sinn í kvikmynd og réðst svo sannarlega ekki á garðinn þar sem hann er lægstur því það var í stórmyndinni Spider-Man: Homecoming. Sama ár lék hún í myndinni The Greatest Showman, en hún átti einnig lag í myndinni. Nýverið hefur hún verið að leika í þættinum Euphoria sem sýndur er á HBO og hefur fengið mikla athygli fyrir djörf atriði og f lottan stíl aðalpersónanna. Hún hefur unnið náið með stíl- istanum Law Roach og telur hann til eins af sínum nánustu vinum. Hann vinnur einnig fyrir Celine Dion, en stíll hennar tók stakka- skiptum fyrir nokkrum árum þegar hún hóf að vinna með Roach. Zendaya og Celine hafa verið lof- aðar í hástert innan tískuheimsins fyrir f lottan og öðruvísi stíl. steingerdur@frettabladid.is Frumlegur og flottur stíll Zendaya Leik- og söngkonan Zendaya er með flottan og öðruvísi fatastíl. Hún er alltaf óhrædd við að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi og hikar ekki við að taka áhættu á rauða dreglinum. Zendaya í karlmannsjakkafötum er fara henni ótrúlega vel. Glæsileg á Óskarsverðlaununum árið 2015, en þetta útlit kom henni fyrst á kortið sem tískuíkoni. Leikarinn Michael B. Jordan hafði áður klæðst sömu jakkafötum og Zendaya. Hann var á því máli að þau færu henni mun betur en hon­ um sjálfum. Hún mætti á Critics’ Choice Awards í þessu öðruvísi og flotta setti frá Tom Ford. Zendaya er greinilega mikill aðdáandi Fendi en hér er hún á viðburði á vegum tískuhússins. Skugga­ lega flott í þessu geggjaða setti, öðruvísi og skemmti­ legt. Í London á kynningar­ túr vegna Spider­Man: Far From Home. Flott hvernig hún velur klæðnað sem passar við umhverfið. Zendaya á við­ burði á vegum Fendi í Róm. MYNDIR/GETTY Zend­ aya mætti á Emmy­verð­ launin í þessum fallega smaragðs­ græna kjól frá Veru Wang. 6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.