Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 13
Í DAG Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir Á morgun, laugardag, efnum við til sölusýningar í verslun okkar, Nóatúni 4, frá kl. 10 til 16. Skoðaðu nýja Tækifærisbæklinginn okkar! Tæki fæ ri Kælitæki / Uppþvott avélar / El dunartæki / Þvottavé lar og þurr karar / Ljó s / Ryksug ur / Kaffivé lar / Smátæ ki / Pottar og pönnu r Hjá okkur f ærðu gæð atæki frá S iemens, Bo sch og Gaggen au. Heimili stæki, stór og smá, ljó s, pottar og p önnur í mik lu úrvali. Fjöldi glæs ilegra tæk ja á sérstö ku tilboðsv erði. Sölusýning laugardag inn 7. mars . Þann dag veitum við afslátt af ö llum vörum sem eru ek ki þegar á afslætti. Opið frá kl . 10 til 16. Sölu- s ý n i n g Þar gefst öllum tækifæri til að skoða gæðaheimilistækin frá Siemens, Bosch og Gaggenau og kynnast margvíslegum eiginleikum þeirra. Meðal annars sérvöldum Siemens heimilistækjum með Home Connect sem stjórna má úr snjallsíma hvar sem menn eru staddir. Og nú eru heimilistækin einnig farin að „tala” saman innbyrðis í gegnum Home Connect. Til að mynda getur þurrkarinn fengið upplýsingar um kerfið sem þvottavélin notaði og þannig valið hárrétt þurrkunarkerfi. Bráðsnjallt! Fjöldi tilboða í tilefni dagsins. Veittur verður afsláttur af öllum vörum sem ekki eru nú þegar á Tækifærisverði. Komdu og njóttu dagsins með okkur. Demókratar í Bandaríkj-unum hafa nálgast valið á forsetaframbjóðanda 2020 af ákveðnum heiðar- leika. Allir hafa frambjóðendurnir sagt að það sem mestu máli skipti í þetta sinn sé einfaldlega hver sé líklegastur til að vinna Trump. Allir komast frambjóðendurnir svo að vísu að því að einmitt þeir séu svarið. Í kappræðum er þetta heiðarlega stef mun sterkara en pólitík og kosningaloforð fram- bjóðenda. Þessar kosningar snúast í hugum Demókrata fyrst og fremst um hvað þeir vilja ekki. Þeir vilja ekki Trump og þeirra frambjóð- andi verður sá sem líklegastur er talinn til að vinna hann. Val Demó- krata stendur á milli Joe Biden og Bernie Sanders. Biden virðist núna verða ofan á vegna þess að þeim fer fjölgandi sem telja hann líklegri til að vinna Trump. Sanders þykir of róttækur sem er kannski dálítið kómískt fyrir okkur. Velferðar- pólitíkin sem Sanders boðar er sennilega ósköp hefðbundin miðju- pólitík á okkar mælikvarða. Bandaríkjamenn eru ólíkir okkur að því leyti að það truflar þá ekki sérstaklega að lifa í gríðarlega stéttskiptu samfélagi. Margir þeirra trúa því að þannig eigi það að vera og það eina sem þurfi til að spjara sig í lífinu sé dugnaður og vinna. Vandamálið er hins vegar að tæki- færin eru ekki jöfn. Það er ójafnt gefið frá byrjun. Dugnaðurinn kemur þess vegna fátæka barninu í Bandaríkjunum sjaldnast mjög langt. Amerískar bíómyndir segja oft sögu afreksmanneskjunnar sem braust áfram þrátt fyrir ekkert bakland og engan stuðning og tókst hið ótrúlega bara með því að vinna fjögur störf og samhliða því að stofna fyrirtæki. Í lok myndarinnar er söguhetjan svo orðin góðhjart- aður milljarðamæringur og byrjuð með æskuástinni sem loksins sá hvað í söguhetjuna var spunnið. Þessar sögur verða hins vegar að bíómyndum einmitt vegna þess að þær eru svo ævintýralega sjald- gæfar. Á Norðurlöndunum brosum við að barnaskap Bandaríkjamanna. Við tölum meira að segja stundum eins og við búum í stéttlausu sam- félagi á Íslandi. Það er auðvitað lygi en við viljum ekki samfélag þar sem börn fæðast í fátækt og komast ekki þaðan. Mörg okkar trúa að hér sé veruleikinn sá að börn fæðist inn í samfélag þar sem leikreglurnar segja til um jöfn tækifæri. Þess vegna var Kveikur í vikunni svo óþægilegur því hann sýndi svart á hvítu það sem við flest kannski vitum en þurfum ekki endilega að sjá. Hin stóra millistétt sem heldur að hún þekki alls konar fólk þurfti að horfast í augu við að svo er ekki endilega. Þrátt fyrir að fólk hafi það almennt gott er engu að síður hópur sem lifir í fátækt, sumir meira að segja við sárafátækt. Sá hópur er um 7.000-10.000 manns. Sem sagt í þúsundum talinn. Stærstur hluti þeirra eru einstæðir foreldrar, fólk sem glímir við lélega heilsu og innflytjendur. Sú staða að einstæðir foreldrar séu stór hluti þessa hóps segir okkur auðvitað um leið að mörg börn búa við fátækt. Börn sem alast upp í fátækt njóta ekki sömu tækifæra og önnur börn á Íslandi eins og þátturinn sýndi okkur. Greiningar benda til Kosningabaráttan um þann versta að staða á húsnæðismarkaði og heilsa séu lykilþættir sem spá fyrir um hvort fólk býr við sárafátækt. Húsnæðisstuðningur gagnast for- eldrum sem og börnum þeirra sem búa við fátækt. Heimilið og skólinn eru veruleiki ungra barna og kostn- aður foreldra við skólagöngu og frístundir hefur því auðvitað áhrif á þau börn sem veikast standa. Forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum munu líklegast snúast um það hvort bandarískur almenn- ingur hræðist meira: ríkisvaldið eða ójafnréttið. Óttinn við ríkið er mikill í bandarískri menningu sem gerir að verkum að í pólitík Sanders felst áhætta fyrir Demókrata. Hann boðar nefnilega ákveðna velferð sem ekki er hefð fyrir þar, eins og heilbrigðisþjónustu, húsnæðis- stuðning og stuðning við foreldra barna. Biden er auðvitað líka andlit velferðar í samanburði við Trump en hann er hins vegar ekki and- lit ríkisvaldsins eins og Sanders. Biden er að því leytinu til öruggari kostur fyrir Demókrata í landi þar sem hræðslan við ríkisvald og vel- ferðarpólitík er meiri en óttinn við ójafnrétti. Umfjöllunin um aðstæður fátækra barna á Íslandi rammaði inn ákveðinn veruleika sem margir þurfa ekki að sjá. Samanburður milli Íslands og annarra landa er okkur blessunarlega hagstæður hvað varðar fátækt barna og Ísland er gott land að búa í fyrir flesta. En við viljum að öll börn njóti æskunnar og jafnra tækifæra. Við viljum ekki útilokun barna frá þátt- töku í samfélaginu vegna fátæktar. Viljum norræna módelið en ekki það bandaríska. Og við viljum áfram geta staðið í lappirnar þegar við brosum að barnaskapnum í bandarískri pólitík sem hræðist stuðning og öryggisnet fyrir þá sem þurfa á því að halda. Við hræðumst fátækt barna en ekki það að stjórn- völd sinni hlutverki sínu. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F Ö S T U D A G U R 6 . M A R S 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.