Fréttablaðið - 06.03.2020, Side 13
Í DAG
Þorbjörg
Sigríður
Gunnarsdóttir
Á morgun, laugardag, efnum við til sölusýningar
í verslun okkar, Nóatúni 4, frá kl. 10 til 16.
Skoðaðu nýja
Tækifærisbæklinginn
okkar!
Tæki
fæ
ri
Kælitæki /
Uppþvott
avélar / El
dunartæki
/ Þvottavé
lar og þurr
karar / Ljó
s / Ryksug
ur / Kaffivé
lar / Smátæ
ki / Pottar
og pönnu
r
Hjá okkur f
ærðu gæð
atæki frá S
iemens, Bo
sch
og Gaggen
au. Heimili
stæki, stór
og smá, ljó
s,
pottar og p
önnur í mik
lu úrvali.
Fjöldi glæs
ilegra tæk
ja á sérstö
ku tilboðsv
erði.
Sölusýning
laugardag
inn 7. mars
.
Þann dag
veitum við
afslátt af ö
llum vörum
sem eru ek
ki þegar á
afslætti.
Opið frá kl
. 10 til 16.
Sölu-
s ý n i n g
Þar gefst öllum tækifæri til að skoða gæðaheimilistækin frá Siemens, Bosch og Gaggenau og
kynnast margvíslegum eiginleikum þeirra.
Meðal annars sérvöldum Siemens heimilistækjum með Home Connect sem stjórna má úr snjallsíma
hvar sem menn eru staddir.
Og nú eru heimilistækin einnig farin að „tala” saman innbyrðis í gegnum Home Connect.
Til að mynda getur þurrkarinn fengið upplýsingar um kerfið sem þvottavélin notaði og þannig valið
hárrétt þurrkunarkerfi. Bráðsnjallt!
Fjöldi tilboða í tilefni dagsins.
Veittur verður afsláttur af öllum vörum sem ekki eru nú þegar á Tækifærisverði.
Komdu og njóttu dagsins með okkur.
Demókratar í Bandaríkj-unum hafa nálgast valið á forsetaframbjóðanda 2020 af ákveðnum heiðar-
leika. Allir hafa frambjóðendurnir
sagt að það sem mestu máli skipti
í þetta sinn sé einfaldlega hver sé
líklegastur til að vinna Trump.
Allir komast frambjóðendurnir
svo að vísu að því að einmitt þeir
séu svarið. Í kappræðum er þetta
heiðarlega stef mun sterkara en
pólitík og kosningaloforð fram-
bjóðenda. Þessar kosningar snúast
í hugum Demókrata fyrst og fremst
um hvað þeir vilja ekki. Þeir vilja
ekki Trump og þeirra frambjóð-
andi verður sá sem líklegastur er
talinn til að vinna hann. Val Demó-
krata stendur á milli Joe Biden og
Bernie Sanders. Biden virðist núna
verða ofan á vegna þess að þeim fer
fjölgandi sem telja hann líklegri
til að vinna Trump. Sanders þykir
of róttækur sem er kannski dálítið
kómískt fyrir okkur. Velferðar-
pólitíkin sem Sanders boðar er
sennilega ósköp hefðbundin miðju-
pólitík á okkar mælikvarða.
Bandaríkjamenn eru ólíkir
okkur að því leyti að það truflar þá
ekki sérstaklega að lifa í gríðarlega
stéttskiptu samfélagi. Margir þeirra
trúa því að þannig eigi það að vera
og það eina sem þurfi til að spjara
sig í lífinu sé dugnaður og vinna.
Vandamálið er hins vegar að tæki-
færin eru ekki jöfn. Það er ójafnt
gefið frá byrjun. Dugnaðurinn
kemur þess vegna fátæka barninu
í Bandaríkjunum sjaldnast mjög
langt. Amerískar bíómyndir segja
oft sögu afreksmanneskjunnar
sem braust áfram þrátt fyrir ekkert
bakland og engan stuðning og tókst
hið ótrúlega bara með því að vinna
fjögur störf og samhliða því að
stofna fyrirtæki. Í lok myndarinnar
er söguhetjan svo orðin góðhjart-
aður milljarðamæringur og byrjuð
með æskuástinni sem loksins sá
hvað í söguhetjuna var spunnið.
Þessar sögur verða hins vegar að
bíómyndum einmitt vegna þess að
þær eru svo ævintýralega sjald-
gæfar.
Á Norðurlöndunum brosum við
að barnaskap Bandaríkjamanna.
Við tölum meira að segja stundum
eins og við búum í stéttlausu sam-
félagi á Íslandi. Það er auðvitað lygi
en við viljum ekki samfélag þar sem
börn fæðast í fátækt og komast ekki
þaðan. Mörg okkar trúa að hér sé
veruleikinn sá að börn fæðist inn
í samfélag þar sem leikreglurnar
segja til um jöfn tækifæri. Þess
vegna var Kveikur í vikunni svo
óþægilegur því hann sýndi svart
á hvítu það sem við flest kannski
vitum en þurfum ekki endilega að
sjá. Hin stóra millistétt sem heldur
að hún þekki alls konar fólk þurfti
að horfast í augu við að svo er ekki
endilega.
Þrátt fyrir að fólk hafi það
almennt gott er engu að síður
hópur sem lifir í fátækt, sumir
meira að segja við sárafátækt. Sá
hópur er um 7.000-10.000 manns.
Sem sagt í þúsundum talinn.
Stærstur hluti þeirra eru einstæðir
foreldrar, fólk sem glímir við lélega
heilsu og innflytjendur. Sú staða að
einstæðir foreldrar séu stór hluti
þessa hóps segir okkur auðvitað
um leið að mörg börn búa við
fátækt. Börn sem alast upp í fátækt
njóta ekki sömu tækifæra og önnur
börn á Íslandi eins og þátturinn
sýndi okkur. Greiningar benda til
Kosningabaráttan um þann versta
að staða á húsnæðismarkaði og
heilsa séu lykilþættir sem spá fyrir
um hvort fólk býr við sárafátækt.
Húsnæðisstuðningur gagnast for-
eldrum sem og börnum þeirra sem
búa við fátækt. Heimilið og skólinn
eru veruleiki ungra barna og kostn-
aður foreldra við skólagöngu og
frístundir hefur því auðvitað áhrif á
þau börn sem veikast standa.
Forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum munu líklegast snúast
um það hvort bandarískur almenn-
ingur hræðist meira: ríkisvaldið
eða ójafnréttið. Óttinn við ríkið er
mikill í bandarískri menningu sem
gerir að verkum að í pólitík Sanders
felst áhætta fyrir Demókrata. Hann
boðar nefnilega ákveðna velferð
sem ekki er hefð fyrir þar, eins og
heilbrigðisþjónustu, húsnæðis-
stuðning og stuðning við foreldra
barna. Biden er auðvitað líka andlit
velferðar í samanburði við Trump
en hann er hins vegar ekki and-
lit ríkisvaldsins eins og Sanders.
Biden er að því leytinu til öruggari
kostur fyrir Demókrata í landi þar
sem hræðslan við ríkisvald og vel-
ferðarpólitík er meiri en óttinn við
ójafnrétti.
Umfjöllunin um aðstæður
fátækra barna á Íslandi rammaði
inn ákveðinn veruleika sem margir
þurfa ekki að sjá. Samanburður
milli Íslands og annarra landa er
okkur blessunarlega hagstæður
hvað varðar fátækt barna og Ísland
er gott land að búa í fyrir flesta.
En við viljum að öll börn njóti
æskunnar og jafnra tækifæra. Við
viljum ekki útilokun barna frá þátt-
töku í samfélaginu vegna fátæktar.
Viljum norræna módelið en ekki
það bandaríska. Og við viljum
áfram geta staðið í lappirnar þegar
við brosum að barnaskapnum í
bandarískri pólitík sem hræðist
stuðning og öryggisnet fyrir þá sem
þurfa á því að halda. Við hræðumst
fátækt barna en ekki það að stjórn-
völd sinni hlutverki sínu.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 13F Ö S T U D A G U R 6 . M A R S 2 0 2 0