Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 8
Verkföll BSRB munu
bresta á næstkomandi
mánudag hafi samningar
ekki náðst.
569 7000 · Lágmúla 4 · miklaborg.is
102Reykjavík
Valshlíð – Fálkahlíð – Smyrlahlíð
Íbúðirnar verða tilbúnar
til afhendingar
vor/sumar
2020.
Glæsilegar 2ja, 3ja, 4ra
og 5 herbergja íbúðir
• Megin áhersla er á litlar og
meðalstórar vandaðar íbúðir,
inn rétt aðar á hagkvæman og
þægilegan máta.
• Húsin liggja umhverfis garð í
miðjunni og þar undir er tveggja
hæða bílakjallari.
Pantið söluskoðun í síma 569-7000
– Sýnum alla daga
Verð frá : 39,9 millj.
OPIÐ HÚS Föstudaginn 6. mars frá kl. 12 - 12:30Sýningaríbúð er í Fálkahlíð 2
Sýningaríbúð er
í Fálkahlíð 2
Hringbraut
Jason Kr. Ólafsson
lögg. fasteignasali
jko@miklaborg.is
sími: 775 1515
Friðjón Ö. Magnússon
aðst. fasteignasala
fridjon@miklaborg.is
Sími: 692 2704
Skoða má
allar íbúðirnar á
102reykjavik.is
og
miklaborg.is
HORNAFJÖRÐUR Ósk Félags húsbíla
eigenda og Félagsins 4X4 um að fá
að gista utan tjaldsvæða var hafnað
í bæjarráði Hornafjarðar.
„Sveitarfélagið er aðili að lög
reglusamþykkt Suðurlands þar sem
gisting utan tjaldsvæða er óheimil
án leyfis landeigenda,“ segir í svari
bæjarráðs þar sem ósk félaganna
tveggja er hafnað.
Fram kemur í fundargerð bæjar
ráðs að félögin tvö hafi lagt til við
umhverfisráðuneytið að gerð verði
breyting á náttúruverndarlögum
þannig að ekki þurfi að fá heimild
landeigenda eða annarra rétthafa
til að nota á tjaldvagna, fellihýsi,
hjólhýsi, húsbíla og annan sam
bærilegan búnað utan skipulagðra
tjaldsvæða í þeim tilfellum sem
þessi tæki eru ekki búin salernis
aðstöðu. – gar
Hornfirðingar leyfa ekki
húsbíla utan tjaldstæða
Við Gróttu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ný tvöföld virkni sem
veitir hraða og langvarandi
vörn gegn tannkuli.
SAMGÖNGUR Pólski þingmaðurinn
Ryszard Świlski dáist að alþýðleika
herra Guðna Th. Jóhannessonar,
forseta Íslands, sem notar almenn
ingssamgöngur á ferðalögum sínum
milli staða í Póllandi þar sem hann
er í opinberri heimsókn ásamt konu
sinni Elizu Reid.
„Maður er á leiðinni heim úr
vinnu og hér í lestarvagninum er
forseti Íslands Guðni Th. Jóhannes
son á leið til fundar við Aleksöndru
Dulkiewicz í Gdansk,“ segir Ryszard
í færslu á Facebook og spyr hversu
algengt þetta sé og lætur þess getið
að forsetinn hafi verið á sokkunum,
án belgings, bílalestar, fylgdarliðs
eða fýlusvips.
„Ég vissi að forsetinn væri í heim
sókn í Póllandi en ekki að hann
myndi ferðast með lest,“ segir Rysz
ard í samtali við Fréttablaðið og
bætir við: „Ég fíla þessa nálgun við
forsetaembættið.“
Hann segir að bæði eiginkona
forsetans og ritari hafi verið með
forsetanum í för. Þau hafi látið lítið
fyrir sér fara en farþegar lestarinnar
hafi þó vitað að einhver mikilvægur
væri um borð þótt þeir vissu ekki
hver það væri.
Opinberri heimsókn forseta
hjónanna lauk í Gdańsk í dag en
þar sat forsetinn meðal annars mál
þing um sóknarfæri í samskiptum
Íslands og Póllands í útvegsmálum
og Eliza Reid forsetafrú hitti full
trúa jafnréttis og innflytjendaráðs
borgarinnar.
„Forseti reynir að nýta hentug
asta ferðamáta hverju sinni,“ segir í
svari forsetaembættisins við fyrir
spurn Fréttablaðsins um ferðavenj
ur forsetans erlendis.
Færslu pólska þingmannsins um
lestarferð forsetahjónanna var vel
tekið á Facebook. Þúsundum líkaði
við hana, hundruð athugasemda
hafa verið gerðar við færsluna og
yfir tvö hundruð deilt myndum
hans af forsetanum sem fylgdu
færslunni. Meðal þeirra sem rita
athugasemdir eru Pólverjar búsettir
á Íslandi.
„Hann fer óvaldaður um Reykja
Fagna lestarferð Guðna
Forseti Íslands notaði almenningssamgöngur á ferðum sínum í opinberri
heimsókn í Póllandi. Myndir af Guðna í lest vekja lukku á samfélagsmiðlum.
Nokkrar athugasemdir Pólverja við færsluna
n „Ég skrifaði ritgerðina mína
á Íslandi. Hef alltaf borið
virðingu fyrir þessari litlu en
stoltu þjóð.“
n „Ég elska Íslendinga fyrir að
jafnvel þeir sem eru frægir,
þekktir og háttsettir eru alls
ekki hrokafullir og líta bara
á sig sem venjulegt fólk. Hér
getur maður jafnvel rekist á
Björk í sundi.“
n „Hér á Íslandi þekkjast ekki
bílalestir, nema í tilvikum er-
lendra sendinefnda. Forsetinn
er bara á einum bíl og ferðast
bara um í hinni almennu um-
ferð. Maður myndi ekki bera
kennsl á hann nema fyrir bíl-
númerið.“
n „Það eru engar lestir á Íslandi,
forsetann hefur bara langað
svo að prófa.“
n „Ég hef búið á Íslandi í mörg ár
og trúið mér. Forseti Íslands er
ekki vaktaður og er ekki talinn
merkilegri en aðrir hér. Maður
getur hitt á hann hvar sem er í
borginni á ferð með konu sinni
og börnum.“
Myndina tók pólski þingmaðurinn Ryszard Świlski og er hann sjálfur með á
myndinni. Færslu Świlskis um lestarferð forsetans má sjá á frettabladid.is.
VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið
hefur heimilað kaup Samkaupa á
rekstri verslunar Kaupfélags Stein
grímsfjarðar á Hólmavík. Þetta
kemur fram á vef Samkeppniseftir
litsins.
Eftirlitinu var tilkynnt um kaup
in þann 18. febrúar síðastliðinn og
voru þau háð samþykki þess.
Fram kemur að Samkaup reka
um 60 smávöruverslanir víða um
land undir nöfnunum Nettó, Kjör
búðin, Krambúð, Iceland, Háskóla
búðin og Samkaup Strax. Þá segir
að kaupfélagið starfi aðallega á
sviði dagvöruverslunar og reki
eina dagvöruverslun á Hólmavík.
Nýlega hafi félagið lokað verslun
sinni á Drangsnesi. Kaupfélagið
sé afgreiðsluaðili Vörumiðlunar á
Hólmavík og haldi utan um allan
f lutning félagsins á svæðinu með
skráningu og afgreiðslu.
Við afgreiðslu málsins leit Sam
keppniseftirlitið meðal annars til
staðbundinna áhrifa samrunans
og kemur fram í gögnunum að
skemmst séu 32 kílómetrar í næstu
verslun frá Hólmavík.
Eftirlitið kemst því að þeirri
niðurstöðu að ekki sé ástæða til að
aðhafast frekar vegna samrunans.
Á vef Samkeppniseftirlitsins
kemur fram að stærstu hluthafar
Samkaupa séu Kaupfélag Suður
nesja með rúmlega 57 prósenta
hlut, Birta lífeyrissjóður með ríf
lega fimmtán prósent og Kaupfélag
Borgfirðinga með litlu minni hlut.
– jþ
Heimila kaup á verslun á Hólmavík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar á
Hólmavík. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
vík og er elskaður og virtur. Hann
kemur á alla fótboltaleiki og krakk
arnir sjá hann oft á hjóli um hverfið.
Það er synd að ekki sé hægt að
segja það sama um pólska stjórn
málamenn, að ég minnist ekki á
pólska forsetann,“ segir Barbara
Sychowska, pólskur innf lytjandi
á Íslandi. Með færslu hennar fylgir
mynd af ungum syni hennar og
Guðna forseta á fótboltavelli.
adalheidur@frettabladid.is
KJARAMÁL Stíft var fundað í hús
næði Ríkissáttasemjara í gær en
aðildarfélög BSRB og samningsað
ilar þeirra reyna að ná samningum
áður en verkföll eiga að skella á
næstkomandi mánudag. Í fyrra
kvöld náðist niðurstaða í styttingu
vinnuvikunnar hjá vaktavinnu
fólki.
„Það er mjög stór áfangi að hafa
náð þeirri niðurstöðu. Það bæði ein
faldar og flýtir fyrir og maður vonar
að það verði til þess að fólk sé meira
tilbúið að mætast á miðri leið með
það sem eftir er,“ segir Sonja Ýr Þor
bergsdóttir, formaður BSRB.
Mestmegnis sé verið að ræða mál
sem út af standi í viðræðum við
ríkið en BSRBfélögin eiga einnig í
viðræðum við Reykjavíkurborg og
Samband íslenskra sveitarfélaga.
Viðræðurnar fara bæði fram á
borði BSRB og hjá einstaka aðildar
félögum.
„Það eru allir í húsi núna og form
legir og óformlegir fundir í gangi.
Það lítur ekki út fyrir annað en að
það verði þannig fram á kvöld og yfir
helgina,“ sagði Sonja síðdegis í gær.
Landssamband slökkviliðs og
sjúkraflutningamanna frestaði í gær
verkfallsaðgerðum sínum á meðan
hættustig almannavarna vegna
COVID19 faraldursins er í gildi.
Sonja segir að vegna ástandsins
hafi BSRB opnað fyrr fyrir undan
þágubeiðnir vegna mögulegra verk
fallsaðgerða en gert sé venjulega.
„Þetta eru bara sérstakar aðstæð
ur og við viljum taka tillit til þess.“
– sar
Formaður BSRB kveðst búast við að fundað verði inn í helgina
Sonja segir styttingu vinnuvikunnar
hjá vaktavinnufólki stóran áfanga.
6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð