Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —5 6 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 6 . M A R S 2 0 2 0
Úrval afmælistilboða
www.hekla.is/skodasalur
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000
600.000 til 800.000 kr. afmælisafsláttur!
COVID-19 „Ef einstaklingur er með
sjúkdóm og vill ekki gera neitt til
að hefta útbreiðslu smitunar, og
almannahagsmunir liggja undir,
getur sótt var nalæk nir leit að
aðstoðar lögregluyfirvalda,“ segir
Jón Þór Ólason, lögmaður og lektor
við lagadeild Háskóla Íslands.
Sektir eða fangelsisdómar geta
legið við því að brjóta vísvitandi
sóttkví og stofna almannaheill
í hættu. Sóttvarnalæknir getur
fengið lögregluna til að vista ósam
vinnuþýða nauðuga í einangrun.
Neiti einhver að vera í sóttkví
getur sóttvarnalæknir ákveðið að
sá sé settur í einangrun á sjúkrahúsi
eða með öðrum hætti. Uni sá smit
aði þessu ekki skal bera ákvörðun
ina undir héraðsdóm.
Hegningarlög kveða á um að
hver sem valdi hættu á útbreiðslu
næms sjúkdóms með því að brjóta
gegn lagafyrirmælum eða varúðar
reglum geti átt allt að þriggja ára
fangelsi yfir höfði sér. Einnig sex ára
fangelsi ef um er að ræða sjúkdóm
sem hið opinbera gerir sérstakar
ráðstafanir til að hefta. Í sóttvarna
lögum eru viðurlög sektir og fang
elsi allt að þremur mánuðum.
Jón Þór bendir á að máli skipti
hvað refsingar varðar hvort um
ásetning eða gáleysi sé að ræða.
Samkvæmt upplýsingum sem
lágu fyrir um mitt kvöld í gær höfðu
35 verið greindir með kórónaveiru
smit sem veldur COVID19 og um
330 manns voru í sóttkví. Allt fólkið
hafði verið á skíðasvæðum á Ítalíu
og í Austurríki.
Ríkisstjórnin, SA og ASÍ gáfu út
yfirlýsingu í gær um hvernig staðið
verður að launagreiðslum til fólks
í sóttkví. Samkomulag var um að
einstaklingar verði að geta fylgt
fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda
um að fara í sóttkví án þess að hafa
áhyggjur af afkomu sinni.
Samk væmt ný r r i skoðana
könnun sem Zenter gerði fyrir
Fréttablaðið segjast nær 37 prósent
svarenda hafa miklar áhyggjur af
útbreiðslu kórónaveirunnar.
– khg / sjá síðu 6
Refsivert að virða ekki sóttkví
Á fjórða hundrað manns eru í sóttkví hér á landi í varúðarskyni vegna COVID-19 sjúkdómsins. Neiti
einhver að vera í sóttkví sem sóttvarnalæknir telur nauðsynlega getur það varðað allt að sex ára fangelsi.
Sá sem veldur hættu á
útbreiðslu næms sjúkdóms
með því að brjóta gegn
lögum og reglum á allt að
sex ára fangelsi yfir höfði
sér.
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnaði 70 ára afmæli sínu á hátíðartónleikum í Hörpu í gærkvöldi. Þar var spilaður fiðlukonsert eftir Jean Sibelius og Sinfónía nr. 1 eftir Gustav Mahler ásamt
sjaldheyrðu verki eftir Pál Ísólfsson. Einleikari var Augustin Hade Lich og Eva Ollikainen, verðandi aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníunnar, stjórnaði tónleikunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓLK „Maður er á leiðinni heim úr
vinnu og hér í lestarvagninum er
forseti Íslands Guðni Th. Jóhannes
son á leið til fundar við Aleksöndru
Dulkiewicz í Gdansk,“ segir pólski
þingmaðurinn Ryszard Świlski í
færslu á Facebook.
Świlski spyr hversu algengt þetta
sé og lætur þess getið að forsetinn
hafi verið á sokkunum, án belgings,
bílalestar, fylgdarliðs eða fýlusvips.
„Ég vissi að forsetinn væri í heim
sókn í Póllandi en ekki að hann
myndi ferðast með lest,“ segir Rysz
ard í samtali við Fréttablaðið.
„Forseti reynir að nýta hentug
asta ferðamáta hverju sinni,“ segir í
svari forsetaembættisins við fyrir
spurn Fréttablaðsins.
– aá / sjá síðu 8
Guðni vekur
lukku í lest