Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 14
ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn 6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT HNEFALEIKAR Á þessum degi árið 1964 breytti Cassius Clay nafni sínu í Muhammad Ali. Hann hafði skömmu áður unnið sinn fyrsta heimsmeistaratitil í hnefaleikum með því að vinna Sonny Liston. Hann var 22 ára og var það Elijah Muhammad sem veitti honum nafnið. Ali gekk reyndar í örlitla stund undir nafninu Cassius X en það var til heiðurs vini hans Mal- colm X. Margir innan herbúða Ali höfðu áhyggjur af sambandi hans og NOI, Nation of Islam, og Malcolm X en það gerði ekkert nema að gera hann að betri bardagamanni og enn betri pólitíkusi. Ali hafði alltaf verið orðhepp- inn og heillaði flesta með orðsnilld sinni en eftir að hann neitaði að ganga í herinn til að berjast í Víet- nam urðu orð hans enn sterkari. Ali varð Ólympíumeistari árið 1960 og á ferli sínum, sem spannaði hartnær 35 ár, vann hann 56 bardaga af 61, þar af 37 með rothöggi. Hann er af mörgum talinn einn besti hnefa- leikamaður sem uppi hefur verið en hann lést árið 2016 eftir langvinn veikindi. Hann var 74 ára gamall þegar hann lést. – bb Cassius Clay breytti nafni sínu í Muhammad Ali á þessum degi GOLF Bæjarráð Mosfellsbæjar sam- þykkti í gær að fara í framkvæmdir við golfskálann upp á 35 milljónir. Í lok síðasta árs var gert þríhliða samkomulag á milli Landsbankans, Mosfellsbæjar og Golfklúbbs Mos- fellsbæjar um fjárhagslega endur- skipulagningu Golfklúbbsins. Við það eignaðist Mosfellsbær neðri hæð íþróttamiðstöðvarinnar við Æðarhöfða, þar sem Golfklúbbur- inn er staðsettur og skuldbatt sig til að ljúka innréttingu hæðarinnar. Fyrirhugað er að koma þar fyrir æfingaaðstöðu fyrir börn og ungmenni sem þar æfa, svo sem kennslurými, rými fyrir golfherma, æfingasal fyrir púttkennslu og höggneti auk aðstöðu fyrir félags- starf ungmenna. Enn fremur er stefnt á að ganga frá salernisaðstöðu í hluta rýmisins og ræstikjarna. Stærsti einstaki kostnaðarliður er tæpar 18 milljónir og er titlaður frágangur innanhúss en raf lagnir munu kosta 12,3 milljónir. – bb Slegið í nýjan golfskála í Mosó Ali ásamt annarri ofurstjörnu, Atla Eðvaldssyni. MYND/GETTY Valdís Þóra Jónsdóttir, einn af bestu kylfingum landsins. högg. FÓTBOLTI Hitapylsan margfræga, sem á að gera Laugardalsvöll fínan og fallegan fyrir leikinn gegn Rúm- eníu eftir 20 daga, verður að öllum líkindum sett á Laugardalsvöll í dag en hún kom til landsins fyrir skömmu. Pylsan tafðist aðeins í tollinum. Pylsan kemur frá fyrirtækinu Sports & Stadia Services. Fjórir Bretar eru með í för og vakta að allt fari rétt fram. Dúkurinn er þróaðri útgáfa af þeim sem notaður var til að koma Laugardalsvelli í gott lag fyrir umspilsleikinn gegn Króatíu 2013. Leigukostnaður vegna hitapyls- unnar í þrjár vikur er um 15 millj- ónir og er áætlað að rafmagn og gas kosti um 10 milljónir króna sam- kvæmt bréfi Guðna Bergssonar, for- manns KSÍ, til borgaryfirvalda. – bb Hitapylsan fer á völlinn í dag KÖRFUBOLTI Einn besti leikmaður landsins í körfubolta, Brynjar Þór Björnsson, tilkynnti í gær að hann ætlaði ekki að spila einn af stórleikj- um deildarinnar í kvöld þegar KR mætir Stjörnunni, vegna útbreiðslu kórónaveirunnar. Brynjar, sem er giftur Sigurrós Jónsdóttur heimilis- lækni, tilkynnti þetta á fésbókar- síðu sinni og fékk góðar undirtektir þó að formaður körfuboltadeildar KR hafi ekki verið sammála henni í samtali við Vísi. Finnur Freyr Stefánsson, sem gerði KR að fimmföldum Íslands- meisturum sem þjálfari, bendir á í ummælum á síðu Brynjars að 16 leikmenn og starfsmenn Bröndby séu nú í sóttkví eftir að fyrrverandi leikmaður liðsins mætti smitaður á leik liðsins á sunnudag. Íslenski landsliðsmaðurinn Hjörtur Her- mannsson spilar með Bröndby og sat á varamannabekk í téðum leik. Finnur er nú þjálfari Horsens í Dan- mörku. „Við erum að glíma við mjög alvarlegan smitsjúkdóm á Íslandi og það er líklega hægt að draga úr útbreiðslu hans með réttum aðgerðum,“ segir Brynjar í færslu sinni og heldur áfram: „Með því að forðast hópsamkomur á meðan óvissuástand ríkir þá gæti það skipt sköpum að bregðast við strax. Flestir sem veikjast alvarlega gera það ekki fyrr en eftir 10-14 daga veikindi svo við erum ekki farin að sjá rétta mynd enn. Ég skora á íþróttahreyfinguna að taka fyrirtæki í landinu sér til fyrir- myndar og fresta hópsamkomum á meðan óvissuástand ríkir,“ segir Brynjar í lokaorðum sínum. Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, segir að sambandið skoði stöðuna nánast stöðugt en um 20 leikir fóru fram á miðvikudag innan banda KKÍ. „Við höfum ekkert gefið út og munum ekkert gera því við fylgjum yfirvöldum í landinu. Heilbrigðis- yfirvöld og almannavarnir hafa ekki verið með samkomubann og ekki beðið okkur um að hætta með íþróttaleiki. Ég tel afar mikilvægt að við fylgj- um yfirvöldum í þessum máli. Þau eru að gera sitt besta í þessu máli og við þurfum að hafa ró. Ég skil að fólk sé smeykt en skólar eru í gangi og fólk er enn að koma saman. Það er risastór ákvörðun að fresta leikjum og hana tökum við þegar og ef við förum á þann stað.“ Stjórn Íþróttasambands fatlaðra í samráði við fagteymi ÍF ákvað á miðvikudag að fresta Íslandsmót- inu í boccia, borðtennis og lyfting- um sem og Íslandsleikum Special Olympics í frjálsum íþróttum sem fara áttu fram helgina 13.-15. mars vegna kórónaveirunnar. „Endan- legar ákvarðanir með önnur verk- efni Íþróttasambands fatlaðra hér- lendis sem erlendis liggja ekki fyrir að svo stöddu en upplýst verður um stöðu þeirra mála síðar,“ segir í til- kynningu ÍF. Hannes segist hafa skilning á þessari frestun. „Við skoðum hlut- ina vel enda allir í þjóðfélaginu að velta þessu fyrir sér. Það er mikil aðgerð að stoppa íþróttakappleiki og eitthvað sem þarf að gerast í samráði við heilbrigðisyfirvöld.“ benediktboas@frettabladid.is Telur að fresta eigi stórleikjum Brynjar Þór Björnsson, einn besti körfuboltamaður landsins, skorar á íþróttahreyfinguna að fresta hóp- samkomum sökum kórónaveirunnar. Brynjar ætlar ekki að spila stórleik KR og Stjörnunnar í kvöld. Áhrif COVID-19 á íþróttaviðburði n Heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss hefur verið frestað um ár. n Skipuleggjendur Ólympíu- leikanna hittast í næstu viku. Leggja á af stað með Ólympíu- eldinn frá Fukushima þann 20. mars. Leikarnir munu kosta um 12 milljarða dollara. n Formúla 1 hefur ákveðið að sleppa Kínakappakstrinum sem átti að fara fram í apríl. Þá munu allar keppnir falla niður ef eitthvert lið fær ekki inngöngu í fyrirhuguð keppnis- lönd. Fyrstu keppnir eiga að fara fram í Ástralíu, Barein og Víetnam. n Ítalir hafa orðið hvað harðast fyrir barðinu á vírusnum og Ferrari er komið með ákveðna tálma á sitt keppnislið. Trúlega mun Sería A klárast bak við luktar dyr. n Ekkert mót verður í Evrópu- mótaröðinni í golfi sem fara átti fram í apríl í Malasíu og Kína. Brynjar Þór Björnsson ætlar ekki að mæta í DHL-höllina þar sem stórleikur KR og Stjörnunnar í körfubolta fer fram. Hann skorar á íþróttahreyfinguna að fresta hópsamkomum á meðan óvissuástand ríkir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Við höfum ekkert gefið út og munum ekkert gera því við fylgjum yfirvöldum í landinu. Hannes S. Jóns- son, formaður KKÍ.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.