Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 06.03.2020, Blaðsíða 20
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Dagskrá um Drífu Viðar í tilefni 100 ára fæðingar­ afmælis hennar. Dagskrá um Drífu Viðar verður haldin í Neskirkju á morgun, laugardaginn 7. mars, klukkan 14.00, í tilefni af 100 ára fæðing-arafmæli hennar. Drífa kom víða við í íslensku menningarlífi áður en hún lést langt fyrir aldur fram. Á viðburðinum í Neskirkju verður í stuttum erindum sagt frá málaralist hennar, ritverkum, bókmennta- og listagagnrýni, revíusöng og samstarfi hennar við Jórunni Viðar systur sína, kvennabaráttu og stjórnmálastarfi. „Það er ákveðin forsaga að þessu,“ segir Jón Thoroddsen, sonur Drífu. „Fyrir um tveimur árum kom Katrín Fjeldsted að máli við mig og bað mig að fara yfir óperutexta sem móðir mín samdi og Jórunn Viðar, systir mömmu og móðir Katrínar, hafði samið tónlist við. Nú er Þórður Magnússon að sam- hæfa texta og tónlist. Þetta er líklega fyrsta íslenska óperan. Svo var ákveðið að fylgja þessu eftir og rifja upp hlut mömmu í íslensku menningarlífi með dagskrá um hana í tilefni af 100 ára afmæli hennar. Það verður bæði aka- demísk umfjöllun og skemmtidagskrá.“ Ótrúlega fjölhæf Drífa Viðar var ótrúleg fjölhæf. Jón, sem var fjórtán ára þegar móðir hans dó, er spurður hvort hann hafi í æsku orðið var við þessa fjölhæfni. „Ég var ekki kominn með alveg nægilegt vit til að skynja hversu hæfileikarík hún var. Hún málaði niðri í kjallara og var einn- ig stöðugt skrifandi. Þær Jórunn unnu saman að barnatímanum í útvarpi og mamma skrifaði leikrit fyrir börn. Hún var söngkona og leikkona. Einnig mynd- listar- og bókmenntagagnrýni og gagn- rýni hennar sýndi töluverða stílgáfu. Svo var hún mikil baráttukona í pólitík, virk í Samtökum herstöðvaandstæð- inga og Menningar- og friðarsamtökum kvenna. Það var því kannski nokkuð erfitt fyrir hana að beina öllum þessum hæfileikum í einn farveg. Hún var sífellt að. Ég man eftir henni uppi í rúmi að skrifa. Þegar hún var að mála málaði hún mjög hratt. Einu sinni sagði ég um mynd sem hún var að mála: „Þarna sé ég fígúru.“ Þá flýtti hún sér að taka fígúruna burt svo hún truflaði ekki myndbygginguna.“ Gegnhlýr fjörkálfur Spurð hvernig karakter móðir hans hafi verið segir Jón: „Það var mikill leikur í henni. Hún var mjög glaðlynd að eðlis- fari. Þuríður Pálsdóttir söngkona sagði eitt sinn við mig að miðað við ömmu mína Katrínu sem var nokkuð fjarlæg, eins og Jórunn, þá væri mamma gegnhlý. Hún var alls staðar hrókur alls fagnaðar og óskaplega lifandi manneskja, nánast fjörkálfur.“ kolbrunb@frettabladid.is Hún var sífellt að starfa Jón Thoroddsen, sonur Drífu, segir frá ævi hennar á þingi um hana í Neskirkju á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Drífa Viðar var afar hæfileikarík á listasviðinu og gegnhlý manneskja. Dagskráin n Jón Thoroddsen: Stutt æviágrip Drífu Viðar. n Aðalheiður Valgeirsdóttir: Mynd af konu. Drífa Viðar og mynd- listin. Einar Thoroddsen segir frá móður sinni með söng og spili. n Helga Kress: „Að fara dult með.“ Sjálfsmyndir í sögum Drífu Viðar. n Theodóra Thoroddsen: Upp- lestur úr óbirtri skáldsögu eftir Drífu. n Auður Aðalsteinsdóttir: „Mjer finst sem jeg sje farin út á Dumbshaf í hripleku bátskrífli …“ Bókmennta- og listgagnrýnand- inn Drífa Viðar. n Lovísa Fjeldsted og Jón Thorodd- sen segja frá samstarfi systranna Drífu og Jórunnar Viðar. n Einar Steinn Valgarðsson: Baráttukona fyrir betri heimi. Stjórnmálastarf Drífu Viðar. n Jón Thoroddsen segir frá óper- unni Snæ konungi. Það var því kannski nokkuð erfitt fyrir hana að beina öllum þessum hæfileikum í einn farveg. Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa okkur hlýhug, samúð og vináttu vegna fráfalls okkar ástkæra Sigurjóns Ragnarssonar Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Sigrún Edda Gunnarsdóttir Einar Snorri Sigurjónsson Edda Hannesdóttir Sigríður Sigurjónsdóttir Halldór Lárusson Guðlaugur Sigurjónsson Harpa Hilmarsdóttir Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir Kjartan Kjartansson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, Guðrún Jakobsdóttir frá Hömrum, síðast búsett að Sólmundarhöfða 7, Akranesi, lést þriðjudaginn 11. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Hafsteinn Hallgrímsson Jakob Sigurðsson Ólöf Bjarney Hauksdóttir Sólveig Sigurðardóttir Sigrún Sigurðardóttir Helgi Sigurbjörnsson Aðalbjörg Alla Sigurðardóttir Elvar Grétarsson Stefanía G. Sigurðardóttir Pétur Svanbergsson Magnús Jakobsson Katrín Jakobsdóttir og fjölskyldur. Merkisatburðir 1905 Fyrsti togarinn í eigu Íslendinga, Coot, kemur til Hafnarfjarðar. 1930 Fryst matvæli eru seld í fyrsta skipti í Bandaríkj- unum. 1957 Gana lýsir yfir sjálfstæði frá Bretlandi. 1980 Marguerite Yourcenar verður fyrsta konan sem fær inngöngu í Frönsku akademíuna. 1983 Konrad Hallenbarter skíðar Vasahlaupið á innan við fjórum tímum, fyrstur manna. 1989 Frjálsíþróttafélag Íþróttabandalags Vestmanna- eyja, ÍBV, er stofnað í Eyjum. 1996 Íslenska tímaritið Séð og heyrt kemur út í fyrsta sinn. 2010 Fyrsta þjóðaratkvæða- greiðsla á Íslandi frá stofnun lýðveldis fer fram. Kosið var um svonefnd Icesave-lög, sem forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafði synjað stað- festingar. Þátttaka var 62%; þar af sögðu rúm 93% nei. 2015 Geimfarið Dawn kemst á braut um dverg reiki stjörnuna Ceres. Það er í fyrsta sinn í sögu mannkyns sem geimfar kemst á braut um dvergreikistjörnu. 6 . M A R S 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.