Hugur og hönd - 01.06.1966, Síða 5
Litið inn
/
a
Laufásveg 2
í verzluninni íslenzkur Heimilis-
iðnaður að Laufásvegi 2 er hún Sig-
rún Stefánsdóttir, en hana þekkja
allir, sem fást við heimilisiðnað.
í 15 ár, eða frá upphafi, er hún
búin að veita Í.H. forstöðu, lengst
af í litlu og lélegu húsnæði. En fyr-
ir tæpum tveimur árum var ráðist
í að breyta verzlunarhúsnæðinu að
Laufásvegi 2. Teikningar gerðu
arkitektarnir Stefán Jónsson og
Snorri Hauksson, en smiður var
Ríkarður Ingibergsson. Verzlunin er
nú björt og falleg, og í henni úrval
af vel unnum og fallegum vörum.
Sigrún hefur ^lltaf verið hin
hjálpandi og leiðbeinandi hönd, til
hennar hefur margur leitað og allt-
af hefur Sigrún verið reiðubúin að
gefa ráð eða hjálpa um efni og fyr-
irmyndir, og alltaf er það af svo
ljúfum huga og góðri þekkingu gert.
Við lítum til Sigrúnar einn síð-
sumardag og leitum frétta.
— Sigrún, nú hefur þú verið að
fást við heimilisiðnað eins og hann
gerist í dag, en það væri gaman að
fá að heyra, hvernig heimilisiðnað-
urinn var á þeim slóðum, þar sem þú
ert fædd og uppalin.
— Um aldamótin þurftu heimilin
að vera sjálfum sér nóg bæði utan
húss og innan.
Karlmenn önnuðust allar smíðar, á
tré og járn, hagldir smíðuðu þeir úr
hornum og reipin fléttuðu þeir úr
hrosshári, og að dagsverki loknu sátu
þessir sömu menn á rúmum sínum,
með tálguhníf einan í hendi og skáru
út fegurstu skrín eða prjónastokka,
er áttu að verða gjafir til festarmeyja
þeirra, svo að mikil alúð var lögð í
verkið. Og ekki fórum við börnin var-
hluta af listfengi þessara manna. Þeg-
ar ýsubeinin voru orðin þurr, fengum
við fallega útskorna fugla.
— En konurnar, við hvað unnu þær
svo, fram yfir venjuleg heimilisstörf?
— Ekki var hlutur þeirra minni,
því þær þurftu að vinna allan fatnað
og annað til heimilisins. — Og strax á
vorin um það leyti, sem ullin var tekin
af fénu, kom það í þeirra hlut að
aðskilja ullina, taka frá þá ull til tó-
skapar, sem heppilegust var, því að
fínan og grófan fatnað varð að vinna.
Og svo mikils mátu karlmennirnir og
virtu ullarvinnu kvennanna, að þær
voru hafðar með í ráðum, hvaða
kindur voru settar á, og kom þar þá
mest til greina gæði ullarinnar og
litur.
— Þær hafa þá orðið að spinna og
vefa í bæði ígangsklæði og spariföt?
— Já, ullarvinnan byrjaði strax
HUGUR OG HÖND 3