Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 19
ULLAR-efni
Vend: Jafi.
Uppistaða: Hvítt og sauðsvart
eingirni.
ívaf: Hvítt og sauðsvart eingirni, báð-
ir litir spólaðir tvöfaldir.
Skeið: 45/10, 2 þræðir í hafaldi,
2 þræðir í tönn.
Breidd í skeið: 65 cm.
Þráðafjöldi: 584.
Raktir eru 4 hvítir þræðir og 4 sauð-
svartir til skiptis.
Ein rúða = 2 þræðir.
Efri myndin sýnir efni, þar sem
ívafi er raðað eins og uppistöðu.
Efnið á neðri mynd er
ofið með fjórum fyrirdrögum af
hvorum lit til skiptis.
Myndirnar eru í réttri stærð.
Ath.: Þetta ullarefni er létt og
voðfelt og má nota t. d. í kjóla, dragt-
ir, sumarkápur o. fl.
Þeim, sem ekki nota rakspaða,
er ráðlagt að rekja með fjórum þráð-
um, tveim af hvorum lit. Með
því að aðskilja litina með vísifingri
um leið og rakið er, leggja þá svo
hvorn fyrir sig um skilhælana,
má koma í veg fyrir að þræðirnir snú-
ist saman fyrir aftan höföldin.
ívafið má skeyta saman á ósýnilegan
hátt, með því að leggja endana
mislangt inn í skilið. Það verður þá
hvergi fjórfalt, en þrefalt á tveimur
stöðum, á svo sem Vz—1 cm.
Þar sem litir eru svo andstæðir
sem hér, er afar mikilvægt,
að slátturinn sé jafn. í þessum vef
á ívafið að vera jafnþétt og uppi-
staðan, þ. e. 9 fyrirdrög á
2 cm. Rétt er að mæla þéttleika
ívafsins oft. S. H.
HUGUR OG HÖND 9