Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 20
Nokkrar tillögur um bakkabönd
Bakkaböndin eru saumuð í hvítt, grcft hörefni 8 þræðir á fersentimetra.
Augnsaumur er saumaður í efni, sem er jafnþráða og auðvelt að telja
í þræðina. Nálinni er stungið upp í ytri brún á sporinu og niður í miðju,
tekið fremur þétt í, þannig að auga myndast. Aðeins einn þráður er
hafður milli spora í ytri brún en alltaf stungið niður í miðju, þar mætast
öll spor í hverju auga. Séu reitir þeir, sem saumað er eftir, samfelldir,
saumast aðeins hálft spor í fyrri umferð, svo rétta og ranga verði eins,
síðan er lokið við sporið í bakaleiðinni.
Nr. 1: ísaumsgarnið er tvistur nr. 20/2, fæst hjá ísl. Heimilisiðn. Plat-
saumssporin saumuð með 2 þráðum af gulu. Augnsaumssporin með ein-
um bláum þræði.
Nr. 2: ísaumsgarnið íslenzkt eingirni í sauðalitum. Hvítt í legginn, saum-
að með aftursting. Tvö augnsaumsspor ljósgrá. Þá tvö mórauð og tveir
þræðir hafðir milli spora í ytri brún. Tvö dökkgrá augnsaumsspor. Þá
aftur mórauð o. s. frv.
Nr. 3: Saumað með einum þræði gulgrænum tvisti. Augnsaumssporin
misstór en alltaf hafður einn þráður milli spora í ytri brún. V. P.
1
10 HUGUR OG HÖND