Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 23

Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 23
Ostabretti Útskurður hefur löngum verið iðkaður á íslandi, og margir hafa hagleiksmenn verið á því sviði, eins og gamlir og nýir munir bera með sér. Áður tíðkaðist að hafa hvern útskorinn grip mikið flúraðan, svo sem sjá má á öskum, trafakeflum, rúmfjölum og fleiru. Nútímafólk kýs fremur einfaldari muni og minna skraut. Sem dæmi um einn slík- an hlut, er hér birt mynd af haglega gerðu ostabretti skornu af Unni Guðmundsdóttur, Reykjavík. Þvottaklapp Mér er fyrir barnsminni, þegar verið var að þvo leirug sokkaplögg við lækinn heima. Þeim var dýft ofan í læk- inn, en síðan var þeim lamið duglega við stein nokkra stund, síðan skolað úr þeim í læknum og þau barin aftur, og svo koll af kolli, þangað til þau áttu að heita hrein. Annað eins og þetta hafa vitanlega margir séð og gert. Aldrei sá ég neitt áhald notað við þessa iðju, en þó voru þau víða til. Fyrir allmörgum árum fann ég í rusli suður í Grindavík dálitla veðurbitna trékylfu með sívölu handfangi og hnúð á enda, en sjálfur spaðinn eða blaðið nokkru breiðara og þó nokkuð veigamikið, lengdin öll um 40 sentimetrar. Fangamark konu var grafið á gripinn. Þetta var þvottaklapp og er nú í Þjóðminjasafninu ásamt nokkrum öðrum sömu tegundar, og sjálfsagt eru allmörg í byggðasöfnum. Þetta áhald, sem einnig var stundum nefnt þvottaklappa, þótt hin orðmyndin væri algengari, var notað til að berja aur og leir úr grófari flíkum, eink- um sokkaplöggum og vosklæðum manna, meðan þeir þurftu að vaða mýrarelg og hvað sem fyrir var án þess að eiga nokkuð vatnshelt, ekki einu sinn á fæturna á sér. Plöggin voru þá lögð á stein og höggin látin dynja á þeim með þvottaklappinu án allrar miskunnar. Sá steinn var stundum nefndur þvottsteinn eða þvottasteinn. Hér er nú mynd af tveimur þvottaklöppum, sem annað er að öllu leyti hversdagslegt, en hitt gert af nokkurri tilfyndni, skreytt með einföldum hnífsbrögðum og auð- kennt með nafni þeirrar konu, sem það hefur átt. Kristján Eldjárn. HUGUR OG HÖND 13

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.