Hugur og hönd - 01.06.1966, Blaðsíða 7
FRA
ÓKUNNUM
ÞJÓÐUM
Hnífur Guðfinnu.
Næstu nágrannar okkar, Græn-
lendingar, hafa löngum verið
þekktir fyrir hagleik.
Alþekkt er skinnavinna þeirra,
jafnt í fatnaði og bátum
eða stóru perlusaumuðu krag-
arnir, sem fylgja kvenbún-
ingnum. Þá ber útskurður þeirra
í bein og stein vitni um
mikla hugkvæmni og hagar
hendur.
Hér sjáið þið einfaldari og
hversdagslegri hlut, plötu vafða
úr grastegund, sem vex
í hlaðvarpanum á bænum
Nakornarssuk í Lichtenau-firði
eða Hrafnsfirði.
Mætti ekki nota einhver íslenzk
strá á sama hátt?
haldin var í Stavanger í Noregi í júní
sama ár, og vakti þar óskipta athygli
og aðdáun.
Dómnefnd skipuðu:
Arnheiður Jónsdóttir, formaður H.í.
Sigrún Stefánsdóttir, framkv.stj. Í.H.
Kristján Eldjárn, þjóðminjavörður
Kurt Zier, skólastjóri
Vigdís Kristjánsdóttir, myndvefari
Sólveig Búadóttir, handavinnukennari
Stefán Jónsson, arkitekt.
Fer hér á eftir greinargerð dóm-
nefndar fyrir verðlaunaveitnigunni:
„Dómnefndin hafði í huga það
grundvallarsjónarmið, að samkeppnin
ætti fyrst og fremst að verða til efl-
ingar íslenzkum heimilisiðnaði í
venjulegum skilningi þess orðs. Dæmt
var eftir handbragði, formi efnisvali,
hugmyndum og jafnvel þjóðlegum
rótum, og svo því, hvort líkur séu til
að hægt sé að framleiða viðkomandi
hlut í fjölda eintaka til sölu og notk-
unar með hóflegri fyrirhöfn og kostn-
aði.
Til samkeppninnar komu nokkrir
mjög vel smíðaðir hlutir, sem krafist
hafa geysimikillar vinnu og mundu
vera mjög dýrir, en nefndin lítur svo
á, að slíkir hlutir liggi í rauninni utan
þess sviðs, sem samkeppnisboðendur
vilja efla, þótt þeir séu góðs maklegir
og viðurkenningar verðir.
Með þau sjónarmið í huga, sem hér
hefur verið drepið á, hefur nefndin
ekki séð sér fært að veita 1. verðlaun
neinum þeim hlut, sem til samkeppn-
innar hefur borizt og ennfremur hef-
ur hún eftir atvikum talið rétt að
skipta 2. og 3. verðlaununum milli
tveggja þátttakenda hvorum. Auk
þess veitir nefndin aukaviðurkenningu
fyrir 8 gripi“.
2. verðlaun, kr. 5000,00.
Sigurður Egilsson, Húsavík. — ÚT-
SKORNIR KASSAR, vindlakassar.
Ágústa Snæland, Reykjavík. — KRÍA
Á STEINI og fleiri fuglar gerðir á
sama hátt, úr þorskhausbeini.
3. verðlaun, kr. 2500,00.
Þorleifur Þorleifsson, Reykjavík. —
SVERÐ, ÖXI OG SKJÖLDUR.
Aðalgeir Egilsson, Mánárbakka. —
SKIPSLÍKAN, með rá og reiða.
Viðurkenning, kr. 1500,00.
Erling Valdimarsson, Reykjavík. —
LAXVEIÐITÆKI, goggur, kylfa og
svipa, úr hvalbeini og kopar.
Engilbert Runólfsson, Vatnsenda,
Skorradal. — TÓBAKSPONTA.
Hinrik Þórðarson, Reykjavík. —
PRJÓNASTOKKUR með höfðaletri.
Guðfinna Guðmundsdóttir, Vorsabæ,
Gaulverjabæjarhreppi. — PAPPÍRS-
HNÍFUR úr sauðalegg o. fl.
Sigrún Ólafsdóttir, Reykjavík. —
DÚKUR.
Friðrik Þorsteinsson, Reykjavík. —
BORÐ OG STÓLAR úr hvalbeini.
Unnur Guðmundsdóttir, Reykjavík. —
ASKUR o. fl.
Hedi Guðmundsson, Reykjavík. —
LEIRMUNIR. g. H.
HUGUR OG HÖND 5