Hugur og hönd - 01.06.1971, Qupperneq 14
máli. Við þekkjum ekki hin sálrænu öfl, sem eru hér
að verki, og látum okkur nægja að nota óljós hug-
tök eins og hvatir, innsæi, tilfinningu, þörf, áhuga.
Sumir sálfræðingar tala um sálræn öfl, sem orki sem
frumhvatar. Hvað sem því líður, þá eru allir þessir
andlegu eiginleikar mjög sterkir. I>eir vilja fá að
njóta sín og virkja eiganda sinn.
Einn þessara eiginleika vil ég nefna sérstaklega •—
leikhneigð mannsins. Það má rifja upp, að hollenzki
sagnfræðingurinn og fræðimaðurinn Hiuzinga vill gefa
manninum heitið Homo Ludens •— hinn leikandi mað-
ur. Rannsóknir hans hafa leitt hann að þeirri niður-
stöðu, að öll mcnning sé til komin fyrir leik og í
leik. Leikurinn er upprunalegri en menningin, sem upp
úr honum er sprottin. Þessi leikhneigð er enn aug-
ljós í sumum þáttum menningarinnar og á sér ræt-
ur í eðlislægri þörf mannsins til að losa sig við hvers-
dagsleikann og dveljast, þó ekki væri nema um stund-
arsakir, í töfraheimi hugarflugs og ímyndunar. Plató
leit svo á að markmið mannlífsins væri „fegurri leik-
Allt verður nýtum að nokkru
Víða á heimilum safnast með tímanum birgðir af garn-
afgöngum. Hér er gott sýnishorn af nýtingu þeirra, t. d. í
veggteppi, stólsetu eða sessu.
Grunnurinn er hörefni, en að sjálfsögðu má sauma í annað
jafnþráða efni. Ramminn er saumaður fyrst í einum (hlut-
lausum) lit, t. d. gráum.
14
HUGXJR OG HOND