Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1971, Page 15

Hugur og hönd - 01.06.1971, Page 15
ir“ og gildi mannsins Iægi í því ,að hann væri „leik- fang guðs“. Nútíminn, sem setur á oddinn afkastagetu, hag- kvæmni, stöðutákn og kröfuna um ,,hlutdeild“, van- rækir leiklundina í æ ríkari mæli, og kemur í veg fyrir, að hún fái eðlilega útrás. Því færri tækifæri sem gefast til frjálsra leikja í þeirri merkingu sem Huizinga á við, því sjaldnar sem hugarflugið fær að njóta sín, því minni tími sem gefst til þess að njóta fegurðar og rækta sköpunargáfuna, því þyngra verður hið andlega álag og streitan meiri. Afleiðingarnar verða þær, að bjartsýnin minnkar og lífsorkan þverr. Ef við snúum okkur aftur að kenningunni um heild- stæði, þeirri hugmynd, að maðurinn sé heild í heild- stæðu kerfi, komumst við að áhugaverðri og mikil- vægri niðurstöðu. Fái einhver einn eiginleiki ekki að njóta sín, sé hann annað hvort kæfður eða ofmetinn, þá raskast jafnvægið innan kerfisins með þeim af- leiðingum, sem ég taldi upp hér að framan. — Um hæfi- leika mannsins til aðlögunar og seiglu hans í þeim Síðan er fyllt upp í hvern „glugga“ með þrem litum. í það má nota margs konar garnafganga og fjölbreytt litaval, jafn- vel svo að engir tveir gluggar séu eins. Það getur lika verið snoturt að skilja eftir „opna glugga“ á víð og dreif. HUG0R OG HÖND 15

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.