Hugur og hönd - 01.06.1971, Síða 22
Upphlutur
Efni: 0,60 m svart klæði eða silki
1,20 m breitt.
Fóður: 0,60 m af 1,20 m breiðu,
þarf að vera þétt og sterkt.
Borðar: 0,25 m flauel og tilheyrandi
vír til balderingar.
Bönd: 2,50 m flauelsbönd eða önn-
ur til bryddinga. 1.00 m mjó flauels-
bönd í leggingar á baki.
Knipplingar: 2,00 m örmjóir gyllt-
ir eða silfurlitir.
Sníðið upphlutinn með 2—3 cm
saumfari á hliðum og öxlum, 1 cm
saumfari að neðan, en án saumfara í
hálsmál og handveg.
Setjið merkiþræðingu á bak sam-
kvæmt teikningu, þar sem leggja á
flauelsbönd og knipplinga. Þræðið
saman og mátið. Lagfærið ef með
þarf.
(Ágætt er að prófa sniðið með því
að sníða fyrst úr lérefti og máta vel
áður en sniðið er úr klæðinu er nota
á).
Saumið saman hliðar- og axlar-
sauma og strjúkið sauma sundur.
Saumið fóðrið eins.
Leggið nú saman ranghverfur á yf-
irborði og fóðri. Látið sauma stand-
ast á, og þræðið saman við hálsmál
og handveg.
Nú eru flauelsbönd lögð á bog-
línur á baki. Þau eru saumuð á í
höndum gegnum bæði borð, og byrjað
á þeim jaðri, sem myndar stærri
boga, síðan hinu megin og þarf þá
bandið að hafast við þar sem boginn
er krappastur. Saumið nú knippling-
ana sitt hvoru megin við böndin, það
er líka gert í höndum.
Á sama hátt eru lögð flauelsbönd
og knipplingar yfir axlarsauma.
Þá eru baldýraðir borðar lagðir
framan á framstykkin og saumaðir
við í höndum. Innri brún þeirra er
saumuð frá réttu gegnum bæði borð,
en ytri brún frá röngu, brotið inn af
fóðri að framan og það saumað við
borðann. (Sjá lýsingu á balderingum
í Hugur og hönd ’67).
Áður en hálsmál og handvegur eru
brydduð þarf að máta vel, því að-
gát þarf, svo ekki flái. Er því gott
að varpa saman fóður og ytra borð
þétt og vel.
Nú eru hálsmál og handvegur
brydduð. Séu notuð skábönd úr sama
efni og upphluturinn, eru þau saum-
uð á í vél, rétta mót réttu, hvolft
yfir brúnina og lagt niður við á röngu,
í vélstunguna. Sama aðferð er not-
uð við Herkulesbönd. Mestur vand-
inn er að brydda með flauelsböndum
af því að í þeim liggur beint. Er þá
bandið lagt með röngu mót réttu
á bol, stungið niður í brúnina í vél
eða saumað í höndum, brotið yfir á
röngu og lagt niður við bandið flatt
í vélstunguna.
Bryddingin nær fram yfir borðana.
Þá er næst að ganga frá í mitti.
Áður fyrr var saumaður mjór streng-
ur 1—1 % cm breiður neðan á bol-
inn, úr sama efni og bolurinn og
fóðraður. Sá galli var á þetta mjóum
streng, að hætta var á að sæist milli
bols og pils. Þykir því mörgum betra
að hafa strenginn breiðari, mætti
t.d. sauma 5—6 cm breiðan fóður-
renning í vél, neðan á bolinn, brjóta
hann tvöfaldan yfir á röngu og leggja
niður við í vélstunguna.
Sumir hafa renninginn enn breið-
ari, hafa hann þá einfaldan og fella
hann í mitti. Hylja þá saumfarið,
sem leggst niður, en er ekki flatt út
vegna borðanna, með skábandi, eða
mjóum renning.
Hvaða breidd sem höfð er á
strengnum eru settir 4—5 krókar að
aftan á móti jafnmörgum lykkjum á
pilsi. Að framan eru saumuð 2 króka-
pör.
Að síðustu eru myllur festar á upp-
hlutsborðana.
22
HUGXJR OG HÖND