Hugur og hönd - 01.06.1971, Page 25
Glerhallar
Steinar þeir, sem prýða þetta háls-
men, eru þeirrar tegundar, sem nefnist
á íslenzku glerhallur en á ensku Chalce-
donv. Glerhallar eru myndlaust (amorft)
eða örkrystallað (cryptocrystalline) af-
brigði af kvarzi, en kvarz er hrein kísil-
sýra (Si02) og frumsteinn í súru bergi
svo sem líparíti og graníti.
Glerhallar eru gráhvítir eða grábláir
að lit og hálfgegnsæir. Þeir eru algengir
sem holufyllingar í bergi, t.d. sem blöðru-
fyllingar í blágrýti, og eru í því tilviki
meira eða minna ávalir, en geta einnig
slípast og orðið meira eða minna hnött-
óttir af svörfun vinda, rennandi vatns
eða brims.
Þekktastur fundarstaður glerhalla á
Islandi er Glerhallavík á Reykjaströnd
við Skagafjörð. Munu glerhallarnir í því
hálsmeni, sem hér um ræðir, vera þaðan
komnir og brimslípaðir. Græni liturinn
utan á sumum steinanna mun að líkind-
um vera klórít (chlorite), sem er stein-
tegund, er verður til við ummyndun
annarra steintegunda, m.a. ágíts, sem
er einn af frumsteinum basaltsins. Stund-
um eru glerhallar úr mislitum lögum og
nefnast þá onyx eða agat eftir því hvort
rendurnar eru láréttar eða sammiðja
hringir.
Glerhallar hafa hörkuna um 7 (harð-
ari en stál) og geta því talist til hálf-
eðalsteina.
Sigurður pórarinsson.
Silfurhálsmen með glerhöllum,
teiknað og smíðað af Ásdísi Thoroddsen.
HUGUR OG HÖND
25