Hugur og hönd - 01.06.1971, Síða 26
Verz/un Au.gu.stu Svendsen.
Frá því árið 1903 til ársins 1951
var starfrækt verzlun með ofan-
greindu nafni í Aðalstræti 12. Reynd-
ar væri réttara að segja að þar hafi
verið starfrækt. menningarstofnun,
og kemur það betur í ljós því fleira
sem rifjað er upp frá starfsárum
verzlunarinnar og borið saman við
nútímann. Eftir því sem ég veit bezt
var Augusta Svendsen fyrsta konan
sem setti upp verzlun í Reykjavík,
þó hennar sé mjög sjaldan getið.
Hver var þessi huldukona? Nafnið
er útlendingslegt en konan var ís-
lenzk og skal nú sagt lítillega frá
henni og þá að mestu stuðst við end-
urminningar dótturdætra hennar,
þeirra Ágústu Thors og Soffíu Björns-
dóttur.
Augusta Snorradóttir fæddist 9.
febrúar 1835, dóttir séra Snorra Sæ-
mundssonar í Desjarmýri, Borgar-
firði eystra, og var ein af 9 börnum
foreldra sinna. Föður sinn missti hún
9 ára gömul. Sem ung stúlka vann
hún í Bernhöftsbakaríi. Giftist Hend-
rik H. Svendsen, efnuðum íslenzkum
kaupmanni, sem rak umfangsmikla
inn- og útflutningsverzlun á Djúpa-
vogi í samfélagi við danskan mann.
Þau hjón bjuggu á Djúpavogi en
2 síðustu samvistarárin voru þau í
Kaupmannahöfn og var maður henn-
ar að undirbúa flutning heim er hann
lézt, en félagi hans sölsaði undir sig
eignirnar. Þá var Augusta 27 ára
gömul og stóð uppi ekkja með 2
börn og eitt ófætt í framandi landi
og varð hún að gefa nýfædda barnið
og koma syni sínum í fóstur, en flutt-
ist með dóttur sinni Louise til ísa-
fjarðar. Á Isafirði rak hún skóla fyr-
ir ungar stúlkur ásamt Sigríði Ás-
geirsson, og þar varð hún hrókur alls
fagnaðar, iðkaði skák og spilaði
l’hombre við konur sem karla. Enn
fluttist hún til Kaupmannahafnar
með dóttur sína og setti upp matsölu.
Þar voru margir íslenzkir stúdentar í
fæði sem seinna áttu eftir að verða
niáttarstoðir menningar á íslandi.
Var það þeim mæðgum mikill þekk-
ingarauki að hlusta á gáfaða mennta-
menn rökræða af rneiri þekkingu en
þær höfðu tök á að afla sér á annan
hátt, og létu þær engin tækifæri ónot-
uð til menntunar þó starfsdagurinn
byrjaði snemma. Oft var dóttirin bú-
in að hekla eina barnapeysu til sölu
þegar annir dagsins byrjuðu á venju-
legum fótaferðartíma.
Augusta Svendsen fluttist aftur til
Islands með dóttur sinni Louise og
tengdasyni Birni Jenssyni latínu-
skólakennara og settust þau að í
Reýkjavík, bjuggu í lítilli íbúð í
Menntaskólanum. Hún tók strax til
starfa, og enn á nýju sviði; fór fyrst
að panta eftir verðlistum efni, slifsi
og svuntur sem leiddi svo til þess að
hún hóf verzlun með vefnaðarvöru
og útsaumsvörur; fyrst í Bankastræti
og síðar í Aðalstræti 12. Þá voru hér
engir stórkaupmenn og varð hún því
að afla sér sambanda beint frá út-
löndum og kom nú reynzla hennar
frá Danmerkurárunum að góðu haldi.
Hún skrifaði bréfin sín sjálf, bæði til
Frakklands, Danmerkur og Þýzka-
lands og starfaði ein við verzlun sína.
Árið 1903 keypti hún húsið í Aðal-
stræti 12 og flutti þangað með verzl-
unina, ásamt dóttur sinni tengda-
syni og barnahóp þeirra. Tæpu ári
26
HUGUR OG HÖND