Hugur og hönd - 01.06.1971, Síða 33
Værðarvoð
Vend: Hringjavaðmál á 6 sköftum.
Uppistaða: Tvinnað band.
Ivaj: Hespulopi.
Skeið: 50/10 1 þráður í hafaldi, 1 þr. í tönn eða 25/10
og 2 þræðir í tönn.
Breidd: 125 cm.
Þráðafjöldi: 624.
Veftur: 3 fyrirdrög á cm.
Ejnismagn: I 9,5 m. langa slöngu (4 voðir) fara um
2 kg. af bandi. T hverja voð. 2 m. langa, fara rúmlega
6 hespur af lopa.
Leiðbeiningar: Rétt er að rekja slönguna í tvennu
lagi. Halda þá tveir í, þegar rifjað er.
Góðar værðarvoðir eru léttar, mjúkar og voðfelldar,
þess vegna má ekki slá vefinn fast. Fyrirdraginu er
þrýst léttilega að voðinni. Nokkur vandi er að slá
jafnt, þegar laust er slegið. Því er nauðsynlegt að
fylgjast vel með þéttleika ívafsins.
I byrjun og enda hvorrar voðar er ofin einsefta með
tvinnuðu bandi, 1—1% cm. (7. og 8. skammel).
Stigmunstrið getur verið margs konar oddastig, t. d.
hluti af inndráttarmunstrinu eða eins og hér er sýnt
beint oddastig.
Inndráttarmunstrið er nokkuð margbrotið. en auð-
velt er að nota sömu uppskrift með öðrum einfaldari
oddainndrætti og sömu uppbindingu.
Frágangur: Gengið er frá þessum værðarvoðum þann
ig, að stungið er yfir bláendana í saumavél með fín-
um tvinna og allþéttu spori, tvisvar til þrisvar, áður
en þær eru klipptar sundur. Síðan er hekluð fasta-
lykkja, með tvinnuðu bandi vfir brúnina og einskeftu-
fyrirdrögin.
Þessar værðarvoðir eru ekki kembdar. S.H.
HUGUR OG HOND
33