Hugur og hönd - 01.06.1971, Page 39
r------------------------------
LemmuniR eftir Jðninu GuonnDómjR
ÍSLENZKUR
HEIMILISIÐNAÐUR
Hafnarstræti og
Laufásvegi
Sölustaður:
Ný stafabók
Minningarsjóður Elínar Bríem sem frá var sagt í ,,Hiig-
ur og hönd“ árið 1967 hefur gefið út nokkrar stafa-
bækur, sumar með ýmsum ísaums uppdráttum allt
frumteiknað eftir Ragnhildi Bríem Ólafsdóttur teikni-
kennara. Nú hefur hún teiknað höfðaletursstafróf og
rúnaletur, sem sjóðurinn hefur gefið út í bókarformi.
Höfðaletur sem er séreign íslendinga hefur öldum
saman verið mikið notað við útskurð í tré og bein
(horn). Stafagerðir hafa verið margar.
Stafagerðin í þessari nýútgefnu bók er mjög vel fallin
bæði til útskurðar og ísaums. Teikningar af saumgerð-
um fylgja letrinu.
Rúnaletrið sem er sameign norðurlandaþjóðanna o.fl.
mun mörgum þykja forvitnilegt og er vel farið að al-
menningur á kost á að kynnast þessum fornu sérkenni-
legu leturgerðum.
Stafabækurnar eru seldar í hannyrðabúðum og
nokkrum bókabúðum en útgáfan er í umsjá Ingibjargar
E. Eyfells Skólavörðustíg 4 - sími 14212.
hugur og hönd
39