Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1984, Blaðsíða 41

Hugur og hönd - 01.06.1984, Blaðsíða 41
skúmaskotum eða skemmuloftum, þar sem þessu hafði verið komið fyrir yfir sumarið. Vefstóllinn settur upp, það var mikið starf framundan, að vinna í allar jólaflíkurnar, svo enginn á bænum klæddi köttinn á hátíðinni. Búið var að sjá fyrir jólamatnum uppi í rótinni í eldhúsinu og þannig mætti lengi telja. Hámark gleðinnar var þó daginn sem laufabrauðið var bakað. í þeirri gleði tóku allir á heimilinu sinn þátt. Mamma og Óla voru búnar að hnoða öll ósköp af deigi og Stína ráðskona var að fylla steikarpottinn af tólg, svo hann væri tilbúinn þegar tekið var til við laufaskurðinn. Stúlk- urnar fóru með fyrra móti í fjósið, og sama var með piltana. Þeir flýttu sér í húsunum og voru óvenju hraðhentir að skipta um plögg og þvo sér um hendur. Gamla fólkið kom ofan af loftinu og svo við krakkarnir, sem iðuðum í skinninu af eftirvæntingu eftir að laufabrauðsbaksturinn byrjaði, komum okkur fyrir úti í horni, við vildum líka fá að skera kökur. Nú lá mikið við að gera fallegar laufabrauðskökur. Stundum var efnt til verðlauna fyrir fallegustu kökurnar. Verðlaunin voru kökusnúður eða annað góðgæti. Allir voru í jólaskapi. Brátt var allt heimilisfólkið komið niður í eldhús. Pilt- arnir sestir á eldhúsbekkinn með rúmfjalir á hnjánum til að skera á kökurnar, búnir að taka upp sjálfskeiðingana sína til að skera með og brátt sýndi það sig hver var mestur listamaðurinn. Stúlkurnar voru einnig teknar til við laufa- skurðinn og nógir voru snúningarnir. Glatt var á hjalla á þessum kvöldum, margt skrafað, kveðið og sungið. Óla stjórnaði söngnum og kvað við raust rímur Sigurðar Breið- fjörð, hann var hennar uppáhaldsskáld. Senn var farið að snarka í tólgarpottinum og þá var tekið til við baksturinn. Rekið var á eftir laufaskurðarfólkinu, ekki mátti standa á kökum í pottinn og svo vandað um við þá sem höfðu skurðinn of stórgerðan, þá vildu kökurnar aflagast í feitinni. Ekki leið á löngu þar til trog fylltist hjá Stínu af ilmandi laufabrauði og svo fylltist hvert trogið af öðru, það þurfti margar kökur handa fjölmennu heimili. Voru trogin borin jafnóðum og þau fylltust út í ytra-búr, þar var köld geymsla og ekki mátti snerta það sem þangað fór fyrr en á jólunum. Þegar líða tók á kvöldið var hellt upp á könnuna og allir fengu góðan kaffisopa og bragð af laufabrauði. Á þessum árum veittu íslendingar sér ekki þann munað að drekka kaffi á kvöldin, en þetta kvöld var brugðið út af venjunni og var vel þegið. Það var orðið framorðið þegar bakstrinum lauk, hætt að snarka í pottinum hennar Stínu og söngurinn þagnaður. Allir gengu glaðir til hvílu það kvöldið. Andblær jólanna var að nálgast - þessi laufabrauðskvöld bernsku minnar verða mér ávallt minnisstæð og ljúf minning. Heyrt hef ég að laufabrauð hafi aðallega verið bakað á Norður- og Norðausturlandi. Sunnanlands og jafnvel á Vestfjörðum hafi slíkt ekki tíðkast. Meðan húsmæðra- skólarnir voru og hétu héldu þeir uppi hinum góða sið að láta baka laufabrauð fyrir jólin, hefur það eflaust stuðlað að því að þessi siður er orðinn almennari en áður. Oft minnist ég góðra stunda með nemendum mínum, þegar þeir fjöl- menntu í borðstofu og eldhúsi við laufabrauðsgerð. Keppst var um að gera fallegar kökur. Einna fallegastar reyndust oft kökurnar hjá Þingeyingum, hvernig sem á því stóð. Vonandi gleyma íslendingar ekki þessum gamla og góða sið að baka laufabrauð, og eiga um langan aldur sinn laufa- brauðsdag heima hjá sér fyrir jólin. Það er sárt til þess að vita hve fólk sinnir lítið gömlum og góðum siðum, sem hafa haldist með þjóðinni í aldaraðir. Þeir mega ekki gleymast. - Nú er sennilega hætt að nota sjálfskeiðinga við laufa- skurð, enda fáir sem bera hníf í vasa, eins og áður var. Nú fást járn svipuð kleinujárnum í verslun Heimilisiðnaðarfé- lags íslands sem auðvelda laufaskurðinn. Hér fara á eftir uppskriftir af laufabrauði. í Kvennafræðara frú Elínar Briem er uppskriftin þannig: 500 gr. rúgmjöl tæpur peli mjólk Þetta er hnoðað vel saman, flatt út mjög þunnt og skornar úr því kökur undan diski. Síðan eru skorin með hníf ýmiss konar lauf á hverja köku. Kökurnar eru sam- dægurs soðnar í tólg. Þegar Kvennafræðarinn kom fyrst út árið 1889, var hveiti munaðarvara, en síðar var blandað hveiti og rúgmjöli saman í laufabrauðið. Heima á Möðru- völlum var notað hveiti eingöngu og mun sá siður þá hafa tíðkast víðast hvar, og uppskriftin þessi: 500 gr. hveiti 35-60 gr. smjör 15 gr. sykur 250 gr. mjólk 1 tsk. lyftiduft Hveitið sigtað með lyftiduftinu, sykri blandað í, smjörið mulið í hveitið. Snarpheitri mjólkinni hrært samanvið. Hnoðað vel, flatt þunnt út, skornar kökur undan diski með kleinujárni o. s. frv. Mér gefst vel að bræða smjörið í mjólk- ina, þá hún er hituð, og hafa mjólkina ekki eins heita og venja var, þá verður hægara að fletja út deigið. Hulda Á. Stefánsdóttir hugur og hönd 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.