Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 5

Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 5
Útskorinn askur. var 5-6 ára gömul var hún farin að tálga og smíða leikföng fyrir sig sjálfa. Fyrstu leikföngin sem hún smíðaði voru litlir tréhestar sem hún tálgaði út og bjó svo til fax og tagl úr ullarlögð- um. Þannig var að systur hennar áttu fallega tinhesta en Sigga ekki. Ekki fékk hún að leika sér með hestana því þær á- litu að hún myndi skemma þá. Greip nú sú litla til sinna ráða og smíðaði fyrrnefnda tréhesta og gerði sig mjög vel ánægða með þá. Það veitti henni mikla ánægju og hvatningu að sjá og finna að hún gat búið til fallega hluti. Ahuginn óx og viljinn til að gera betur. Þegar hún var 12 ára var hún farin að smíða leikföng, t.d. bíla og ýtur, fyrir yngri bræður sína. Hún renndi hjólin sjálf, en faðir hennar fylgdist alltaf með henni og leiðbeindi þegar hún var að renna. Frá því fyrsta hafði hún gaman af að teikna og mála. Það kom sér vel að vera góður teiknari þegar hún var að gera sér grein fyrir hugmyndum sínum að smíðisgripum og mynstri til útskurð- ar. Hugmyndir að mynstri fékk hún til dæmis með því að skoða frostrósirnar á rúðunum og gróðurinn í náttúrunni. Faðir Siggu var leikinn spónasmiður, af honum lærði hún handtökin og tæknina, bæði við spónasmíðina og skreytinguna. A tólfta ári var hún farin að smíða spænina sjálf, og þegar hún var 12 ára seldi hún fyrsta spóninn sinn. Sigga fór ekki að heiman til að fá sér vinnu annars staðar, hún vann við bú foreldra sinna frá því að hún hafði aldur og krafta til. Tími til smíðanna var helst í tómstundum, en hún nýtti þær vel. Svo kom að því að hún og maður henn- ar stofnuðu heimili á nýbýlinu Grund sem er skammt frá Villingaholti. Þar beið mikið starf við nýbyggingar, rækt- un, skepnuhald og annað sem tilheyrir lífi í sveit. Húsmóðurstörfin taka alltaf sinn tíma, börnin rvö fæddust og annríkið var mikið. Vegna starfa sinna þurfti eiginmaður Siggu oft að vera að heiman langtímum saman og hún þurfti að ganga í öll störf innan húss og utan. En þörfin að skapa eitthvað nýtt og fallegt lét hana ekki í friði, hún reyndi að nota vel hverja stund frá amstri dag- anna til að teikna, smíða og skera út. Starfsþrekið og vinnugleðin er með ein- dæmum. Börnin uxu úr grasi, búskaparhættir og aðrar aðstæður breyttust. Nú hafa þau hjónin lagt búskap af að mestu, hafa aðeins nokkra hesta og nærvera þeirra og umhirða er þeim mikils virði. Sigga hefur alltaf verið hrifin af hestum og nýtur þess að eiga góða hesta. Hesta- myndir koma títt fyrir í verkum hennar og þegar þær eru skoðaðar sést auðveld- lega að myndirnar eru gerðar af per- sónu sem þekkir vel til hesta og þykir vænt um þá. Sigga hafði til að byrja með þrönga aðstöðu til smíðanna, aðeins lítið her- bergi í sjálfu íbúðarhúsinu. Þar var hún með allan efnivið, verkfæri, tæki og verkefni sem hún vann að. Kosturinn Útskorinn heiðursskjöldur úr tré. 5

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.