Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 46

Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 46
NIU NAFNAKLUTAR Hildur Sigurðardóttir fór í heimsókn til Elsu E. Guðjónsson Aárunum 1965-1968 kom ég ein- /J hvern tíma í Þjóðminjasafii Is- JL Jdands til að leita upplýsinga um íslenska stafaklúta sem ef til vill vœru í vörslu safnsins. Hitti ég að máli Elsu E. Guðjónsson safnvörð, og kom í Ijós að lítið var um slíka kltíta í safninu. Þó fann Elsa fáeina gamla klúta og sýndi mér, en sagði mér jafhframt að lítið hefði verið um saum á stafaklútum á Islandi, og að þeir sem varðveist hafa v<zru einkum frá síðari hluta nítjándu aldar. Hefitr Elsa síðan gert íslenskum stafaklútum nokkur skil í grein í Húsfreyjunni 1977 og í bók sinni Islenskur útsaumur sem út kom 1985. Eg hefjýlgst með því að Elsa hefur alla tíð fengist talsvert við munsturgerð og út- saum í hjáverkum. Hún hœtti störfum sem deildarstjóri textíl- og búningadeildar Þjóðminjasafhs Islands nú á miðju ári, og sótti ég hana því heim á haustmánuðum til þess að fregna nánar um þessa tóm- stundavinnu hennar, einkum hvort hún befði fengist eitthvað við að gera stafa- klúta. Fara svör hennar við spurningum minum hér á efiir. Eg hef ekki saumað eða gert munstur fyrir eiginlega stafaklúta, þ. e. klúta með mismunandi stafrófum auk smá- munstra, fangamarka og ártala. Hins vegar hef ég saumað ýmsar veggmyndir, velflestar með munstrum gerðum með hliðsjón af gömlum íslenskum útsaums- og vefnaðaruppdráttum, og eru sumar þeirra með áletrunum, ártölum og nöfnum eða fangamörkum eftir því sem við gat átt hverju sinni. Birtust myndir af nokkrum slíkum í Húsfreyjunni allt frá árinu 1965 fram til ársins 1977, en eftir það hafa munstur og efni í vegg- myndir af líku tagi verið til sölu í Islenskum heimilisiðnaði í Reykjavík. Höll Þyrnirósu. 1993. Mynd Ragnheiðar (f. 18.4.1984). Stœrð 20,5x18 cm. Nú í sumar lauk ég við syrpu, ef svo má segja, af níu veggmyndum sem ég hef leyft mér að kalla nafnaklúta, eina mynd handa hverju barnabarna minna. Munstureiningarnar eru margar hverjar íslenskar, nokkrar erlendar og enn aðrar eru nýsmíð. Heildarhönnun myndanna allra er mín eigin. Við val munstranna hafði ég í huga aldur barnanna sem myndirnar áttu að fá, en þau voru þá á ýmsum aldri, allt frá ársgömlum til þrettán ára eins og sjá má af meðfylgj- andi myndatextum. Þú spyrð um efni og saumgerð. Hvort tveggja kann að þykja fremur einhæft, þar eð ég hef kosið að sauma allar myndirnar með sömu saumgerð í frem- ur smágerðan stramma (4 spor á cm) að mestu leyti með íslensku kambgarni sem einn þáttur hefur verið dreginn úr. Stöku sinnum hef ég þó einnig notað hörgarn með ullarbandinu til tilbreyt- ingar. Saumgerðin sem ég valdi mér er gamli krosssaumurinn sem tíðkaðist hér á landi frá lokum miðalda fram á seinni hluta nítjándu aldar (sjá meðfylgjandi skýringarmyndir). Mér finnst mun skemmtilegra að vinna hann en venju- legan krosssaum, auk þess sem áferðin verður áhugaverðari að mínum dómi. Þegar lokið er við sauminn þarf að slétta (strekkja) myndirnar og ganga frá þeim til upphengingar. Eg hef sett þær allar í umgerðir, þó án glers, en einnig má hafa þær án ramma, til dæmis leggja undir þær fóður og hafa ef til vill pappa milli laga. Ég hef haft mikla ánægju af þessari tómstundaiðju. Því langar mig til að bæta hér við, þar sem ég þykist hafa orðið þess vör að sumum vaxi í augum að útbúa krosssaumsmunstur upp á eigin spýtur, að ekki þarf það að vera vandasamt ef fyrir hendi eru einhverjir uppdrættir sem hægt er að vinna út frá, og jafnframt rúðustrikað blað, blýantur, strokleður og litir (gjarnan tússlitir). Væri gaman ef þessir litlu nafnaklútar barnabarnanna minna níu gætu orðið öðrum hvatning til að spreyta sig á eigin munsturgerð, ekki hvað síst ef hún byggðist á þjóðlegum grunni. 1.12.1994 Ljósmyndir: Ivar Brynjólfsson, nema Langt úti í löndum: EEG. 46

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.