Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 50

Hugur og hönd - 01.06.1994, Side 50
Mýs. Hœð 6,5 cm. Saumaðar úr handmáluðu bómullarefhi. Hönnun og vinna: Ingibjörg Þorvaldsdóttir. Páskahœnur. Hœð 8 cm. Saumaðar úr handmáluðu bómullarefhi. Hönnun og vinna: Ingibjörg Þorvaldsdóttir. Hugmyndir - heimilisiðnaður Um dimmasta tímann er hollt og skemmtilegt að fást við handavinnu (sleppum sjónvarpinu í nokkra daga). Prjónarnir eru hjá mörgum alltaf við hendina, en ekki er síður gaman að búa til eitthvað úr vefnaðarvöru. Og ekki er alltaf nauðsynlegt að þeytast út í verslun til þess að kaupa efnin. Afgangar af ýmsu tagi eru vel nothæfir til að gera úr smáhluti. Hér eru sýndar hugmyndir sem eflaust geta örvað einhverja til að líta inn í geymslu eða skápa í leit að efni- viði. Síðan er svo að láta heilakvarnirnar mala, hugmyndir og hendur standa fram úr ermum. Þar sem ekki er alltaf einfalt og fljótlegt að koma eigin hugmyndum í mynd, er ánægjan þeim mun meiri þegar árangrinum er náð. Gott ráð er að útbúa fyrst pappírsmynd af því sem gera skal, klippa til og breyta þar til stærð og hlutföll eru orðin góð og gera síðan eftir því snið með saum- fari. Drjúgan skammt af þolinmæði þarf í farteskið. Gangi ykkur vel. Rúna Gísladóttir Ljósmyndir með greininni tók greinar- höfundur. 50

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.