Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 13

Hugur og hönd - 01.06.1994, Síða 13
SéS innan í dagtreyju, Þjms. nr. 1964:63. Ljósm. Myndastofa Þjóðminjasafns Islands. manns af Akranesi, fædds 1897, og seg- ist hann miða svör sín við Kjalarnes, Borgarfjarðarsýslu og Stafholtstungur. „Konur klæddust daglega einföldum búningi, sem samanstóð af sléttri dag- treyju, aðskorinni, hnepptri að framan upp í háls. Sléttar ermar fram á úlnliði. Efnið venjulega rósótt eða dropótt sirs, gjarna í bláum aðallit, eða eftir því sem fékkst í kaupstaðnum í það og það skiptið. Pilsið samskonar og notað var við íslenska húfubúninginn, en auðvit- að slitið og verið í því meðan það gat nokkurn veginn hangið saman. Efnið í því ýmist íslenskt vaðmál, enskt vaðmál eða dömuklæði, eftir því hvað til var og þurfti að slíta út, en þess má þó geta að oftast var það þokkalegt og vel haldið við, meðan kostur var. Streng-svunta var notuð við þetta og var hún mislit og oftast úr tvisttaui. Prjónuð þríhyrna höfð á herðum (hún var úr bandi) og skýluklútur á höfði, venjulega úr ljósu, jafnvel hvítu lérefti. Styttubönd áttu all- ar konur, þau fengust í kaupstaðnum. Það voru svört teygjubönd eða snúrur álíka gild og snæri, sem notað er í þvottasnúrur, eða jafnvel nokkru gild- ari. A öðrum enda bandsins var ýmist nokkuð stór kúlulaga hnappur, stund- um var hann þó tunnulagaður, en á hinum enda bandsins lykkja sem hneppa átti á hnappinn. Sjálfsagt þótti að „stytta sig“, eða með öðrum orðum halda uppi pilsinu. Það var gert með því að láta styttubandið um sig, svona ofan til um mjaðmir, svo var pilsið tog- að upp fyrir bandið þangað til sídd þótti hæfileg, eftir því hvað við átti í það og það skiptið. Og pilsið tolldi í þeim skorðum, sem það var látið í, þó verið væri að vinna í þessu svona. Sér- staklega gerðu konur þetta þegar þær stóðu við rakstur á blautum engjum. Líka styttu þær sig þegar þær skruppu bæjarleið, en þá voru þær í betra pilsi og það mátti ekki blotna eða óhreinkast að neðan...“ Framar í svörum sínum segir hann: „Þá má geta þess, að jafnan voru unnir togsokkar til að vera í þegar blautt var, t.d. á blautum engjum með- an ekki þekktust gúmmístígvél, því talið var, að vatnið hripaði fyrr úr þeim en sokkum úr þelbandi, sem voru að vísu hlýrri í þurrviðri og á þurri jörð. Togsokkar þessir voru venjulega annað- hvort gráir eða mórauðir. Aldrei litaðir. Kvensokkarnir náðu upp að hné og var haldið uppi með sokkaböndum sem vafin voru um fæturna fyrir neðan hné, ýmist ofnum eða bara úr einhverju sem fyrir hendi var. Karlmenn notuðu líka svona sokka, en þeir voru lægri og þurfti ekki að halda þeim uppi með böndum“. Ég get ekki látið vera að leyfa fleiru úr svörum sama heimildarmanns að fljóta hér með: „Spurt var um hvort prjónaðir hefðu verið framleistalausir sokkbolir handa engjafólki. Það var gert, en ekki frekar handa heyvinnufólki en öðrum. Þessar flíkur hétu smokkar og voru prjónaðir bæði handa börnum og fullorðnum. Þeir voru hafðir á handleggjunum þeg- ar kalt var og náðu frá úlnliðum og rúmlega miðja vegu upp að olnboga. Smokkar þessir voru mjög mismunandi að gerð og lit, allt frá því að vera úr grófu og ólituðu ullarbandi og upp í það, að vera úr fínu svörtu þelbandi, þeir voru notaðir við spariföt (þeir svörtu) og voru jafnvel með íprjónuð- um perlum (perIusmokkar)“. Smokkarnir sem hann talar um hafa verið algengir til skjóls og hlífðar og stundum líka kallaðir ermastúkur eða ermahlífar. Þeir voru kallaðir handstúk- ur, handskjól eða handsmokkar ef þeir voru aðeins um úlnliði. Hjá Eysteini G. Gíslasyni í Skáleyjum fékk ég þær upplýsingar að prjónuðu smokkarnir sem hafðir voru utan yfir dagtreyjum í Skáleyjum hafi náð alveg fram á hendur og upp fyrir olnboga. Þannig náðu þeir og þríhyrnan saman. Slíka smokka sér maður einnig oft á er- lendum og jafnvel innlendum mynd- um. Eysteinn sagðist einnig muna að stundum hafi smokkarnir verið sokkar sem klippt hafi verið framan af. Þríhyrnan virðist hafa verið allra mesta þarfaþing og ómissandi hluti af hversdagsfatnaði kvenna og þjónað sem yfirhöfn allt árið. Vestfirðingar kölluðu þessar hyrnur skakka. Allsendis ótrúlegt er hvernig fólk lifði af í þessu kalda, votviðrasama landi án þess að eiga góð- ar utanyfirflíkur og þokkalegan skófatn- að. Virðist ekki ofsögum sagt, að heimatilbúni ullarnærfatnaðurinn og margs konar sokkar, vettlingar, treflar, sjöl og höfuðföt úr blessaðri íslensku ullinni hafi beinlínis haldið lífinu í fólkinu. Fólk klæddi síðan af sér kuld- ann með því að bæta hverri flíkinni utan yfir aðra. Flestallar þessar flíkur voru heimatilbúnar og það gæti stund- um verið okkur nútímafólki hollt að leiða hugann að því hve mikla vinnu og úthald þurfti til að vinna þessar flíkur við vinnuaðstæður fyrri tíma. DAGTREYJUR í ÞJÓÐMINJASAFNI ÍSLANDS Guðrún Guðmundsdóttir, Efra- Hreppi, Skorradal, Borgarfjarðarsýslu gaf Þjóðminjasafninu m.a. fjórar dag- treyjur árið 1964. Treyjurnar höfðu ver- ið í eigu þriggja kvenna úr Borgarfirði og notaðar fram til 1930. Þessar dagtreyjur eru allar með álíka yfirbragði, afar látlausar, saumaðar úr frekar þunnum efnum, alfóðraðar, háar í hálsinn, einhnepptar að framan, ná rétt niður fyrir mitti, og með síðar, framþröngar ermar. Saumaskapur á þeim er ekki flókinn en samt eru þær greinilega unnar með gömlum aðferð- um, sem rekja má alveg til miðalda. Sniðin á treyjunum eru eilítið mismun- andi, þ.e. einkum staðsetning hliðar- saums, gerð hálsmáls og lögun erma. Dagtreyju með Þjms. nr. 1964:63 átti Guðrún Jónsdóttir, sem iengi var á Húsafelli og dó háöldruð á Gilsbakka. Treyjan er saumuð úr brúnu, smá- 13

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.