Fréttablaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —7 3 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 2 6 . M A R S 2 0 2 0
Hágæða harðparket
í miklu úrvali
Harðparket er með einstaklega
sterkt yfirborð sem býður upp
á mikinn umgang og viðhaldið er
svo til ekkert, svo er það líka fallegt!
Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • parki@parki.is • 595 0570
VIÐSKIPTI Ásgeir Jónsson seðla-
bankastjóri segir að Seðlabankinn
hafi áhyggjur af því að bankarnir
muni ekki veita nægjanlega miklu
lausafé út í atvinnulífið vegna þess
að þeir hafi ekki hvata til þess. Af
þeim sökum hafi verið talið nauð-
synlegt að bankinn hefji kaup á
ríkisskuldabréfum. Kaupin létti á
fjármögnun fyrirtækja sem sæki
sér fé á skuldabréfamarkaði.
„Við munum sjá til þess að það
verði nægt lausafé til staðar,“ segir
Ásgeir. Hann útilokar ekki að
umfang fyrirhugaðra skuldabréfa-
kaupa verði aukið. - hae, kij / sjá síðu 8
Tryggja nægt
lausafé í kerfinu
Ásgeir Jónsson
seðlabanka-
stjóri.
COVID-19 Jóna Þórey Pétursdóttir,
forseti Stúdentaráðs Háskóla
Íslands, segir háskólanema uggandi.
Óvissa sé um hvernig vorönninni
verði lokið og við bætist áhyggjur
af framfærslu hjá mörgum.
„Tæplega helmingur háskóla-
nema er í meira en 50 prósent starfi
og því ljóst að það er stór hópur í
minna starfshlutfalli. Þessir nem-
endur falla þá ekki undir þessi
úrræði ríkisstjórnarinnar og eru
í erfiðri stöðu,“ segir Jóna Þórey.
Stúdentaráð hafi óskað eftir því
að einstaklingar í þessari stöðu fái
atvinnuleysisbótarétt.
Ein aðgerða stjórnvalda vegna
þrenginga sem nú steðja að er að
heimila fyrirtækjum að lækka
starfshlutfall launþega í 25 prósent.
Atvinnutryggingasjóður greiðir
bróðurpartinn af mismuninum.
Skilyrði er að fólk hafi verið í að
minnsta kosti 45 prósent starfi.
Starfsmenn í hlutastörfum falla milli
skips og bryggju. Þetta fólk starfar
gjarnan hjá fyrirtækjum í veitinga-
og ferðaþjónustu sem verða hvað
verst úti í núverandi aðstæðum.
„Það er ljóst að fyrir veitinga-
hús sem hafa mikið af starfsfólki í
hlutastarfi undir 45 prósent hlut-
falli, munu þurfa að taka ákvörðun
um hvort segja þurfi því starfsfólki
upp strax. Ég tel því miður miklar
líkur á að það verði niðurstaðan
hjá mörgum,“ segir Jóhannes Þór
Skúlason, framkvæmdastjóri Sam-
taka fyrirtækja í ferðaþjónustu.
Til viðbótar fyrrnefndri stöðu
háskólanema má nefna að margir
þeirra eru á leigumarkaði. „Félags-
stofnun stúdenta hyggst bjóða upp
á úrræði fyrir sína leigjendur en
staða þeirra sem eru á almennum
leig umarkaði er áhyg g juef ni.
Stjórnvöld hafa ekki boðað nein
úrræði fyrir leigjendur.“
Stúdentaráð lét gera könnun
á líðan háskólanema á þessum
óvissutímum. Alls bárust svör frá
um 1.548 nemendum. Á skalanum
1-10 svöruðu um 73 prósent nem-
enda því að líðan þeirra væri 5 eða
lægra. „Þetta eru sláandi tölur sem
við verðum að taka alvarlega og
bregðast við," segir Jóna Þórey. – bþ
Háskólanemar vilja líka bætur
Ný lög um hlutastarfaleið ná ekki yfir þá sem eru í minna en 45 prósent hlutastarfi. Margir námsmenn
eru í hlutastarfi. Búist er við hrinu uppsagna. Gefa 73 prósent háskólanema líðan sinni nú lága einkunn.
Þetta eru sláandi
tölur sem við
verðum að taka alvarlega og
bregðast við.
Jóna Þórey Péturs-
dóttir, forseti
Stúdentaráðs
Háskóla Íslands
Verið er að setja upp skilrúm milli starfsmanna á afgreiðslukössum Bónuss og viðskiptavina til að draga úr smithættu. Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri segir ganga vel að
uppfylla kröfur samkomubanns. „Við látum öryggið ganga fyrir,“ segir hann. „Það er auðvitað mikið álag á starfsfólkinu okkar sem að þarf að telja inn í búðirnar og passa upp á fjarlægð
milli fólks. Okkar fólk er enn tilbúið til þess að mæta í vinnu. Um tuttugu starfsmenn hjá okkur eru í sóttkví og tveir hafa greinst með veiruna og eru því í einangrun.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR