Fréttablaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞAÐ ER EKKERT
ENDILEGA GOTT AÐ
TVEIR SÉU AÐ SMAKKA ÚR
SAMA BOLLA.
Erum með mikið úrval af allskonar
bílaverkfærum á frábæru verði!
ViAir 12V loftdælur
í miklu úvali.
Hleðslutæki
12V 6A
6T Búkkar
605mm Par
Jeppatjakkur
2.25t 52cm.
Omega
Viðgerðarkollur
4.995
9.999
17.995
7.495
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
Verkfæralagerinn
Í Gerðaskóla verða um 250 nemendur næsta skólaár. Við skólann starfa
áhugsamir og metnaðarfullir starfsmenn. Gildi skólans eru virðing,
ábyrgð, ánægja, árangur. Lögð er áhersla á að skapa námsumhverfi þar
sem allir eru virkir, öllum líði vel og allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum
sér, öðrum og umhverfi sínu.
Við leitum að einstaklingum með kennsluréttindi í grunnskóla sem eru
metnaðarfullir, góðir í mannlegum samskiptum, eru sveigjanlegir og til-
búnir að leita nýrra leiða í skólastarfi.
Umsóknarfrestur er til 7. apríl og skulu umsóknir berast á netfangið
eva@gerdaskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Eva Björk Sveinsdóttir skólastjóri í síma 425 3050
Lausar eru eftirfarandi stöður:
Umsjónarkennari
á yngsta stigi/miðstigi
Heimilisfræðikennari
Tölvu/tæknikennari
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
LÍTTU VIÐ Á BELLADONNA.IS
FLOTT FÖT FYRIR FLOTTAR KONUR Aðalheiður Héðinsdóttir, kaffimeistari K a f f it á rs, er ein þeirra sem hefur f lúið undan kórónav e i r u n n i m e ð
vinnuna heim til sín. Þetta fól í
sér aðeins meira en að loka bara
fartölvunni og færa sig milli póst
númera þar sem smökkunarher
bergi Kaffitárs er í raun komið frá
Keflavík heim í eldhúsið hennar í
Garðabænum.
„Hingað til hefur þetta verið
brennt suður í Kef lavík í litlum
prufubrennsluofni þar sem ég og
brennslumeistarinn höfum svo
verið að smakka,“ segir Aðalheiður
sem fleiri þekkja ef til vill sem Allý
í Kaffitári.
„Við fáum prufur til landsins
af kaffi sem við erum að íhuga að
kaupa. Bara 200 grömm eða eitt
hvað pínulítið,“ segir Addý um
kaffið sem hún er að smakka og er
hingað komið frá Gvatemala.
„Þegar við smökkum erum við
með hvort með sína skeiðina ofan
í sama bollanum og þótt maður
skoli skeiðina á milli í vatni þá er
auðvitað smithætta. Það er ekk
ert endilega gott að tveir séu að
smakka úr sama bolla, þannig að
það er nú búið að breyta því,“ segir
kaffimeistari og stofnandi Kaffitárs
sem blindsmakkar nú nýjar baunir
frá Gvatemala heima hjá sér.
Sóttvarðir brennslustjórar
„Ragnheiður brennslumeistari
gegnir svo mikilvægu hlutverki
og til þess að hún yrði síður veik
ákvað ég bara að ég myndi ekkert
fara suður í Keflavík. Þannig að hún
brennir prufurnar, sendir mér þær
og ég smakka bara hérna heima.“
Mikilvægi brennslumeistar
anna verður seint ofmetið þar sem
óbrennt kaffi er, eins og allt kaffi
fólk veit, nánast pólitískur ómögu
leiki. „Brennslumeistararnir okkar
eru tveir og þau vinna hvort á sínum
staðnum. Ef þau myndu bæði veikj
ast þá væri enginn til að brenna
kaffið. Ég held að landinn væri nú
ekki ánægður með það.“
Finnst þér kaffið gott?
„Við smökkum blindandi vegna
þess að ef maður veit hvaðan kaffið
kemur, til dæmis frá frægum bónda,
þá hefur maður tilhneigingu til að
finnast það betra,“ svarar Allý þegar
hún er spurð um tilgang blind
smökkunar.
„Mannskepnan er bara þannig að
ef hún heldur að eitthvað sé gott þá
finnst henni það gott. Þess vegna
smökkum við alltaf blindandi
þannig að við vitum ekki hvað við
erum að smakka,“ segir Allý og á
flækjustiginu má ljóst vera að kaffi
smökkun lýtur sömu lögmálum og
gilda um eðalvín og þrúgur. Hún
segir fyrstu grundvallarspurning
una sem smakkarinn þurfi að svara
einfaldlega vera hvort honum þyki
kaffið gott? „Myndi maður vilja
kaupa þetta?“
Kaffiborð fyrir báru
Kórónaveiran hefur sett öll sam
félög úr lagi og taktur tilverunnar
er hægur og drungalegur. Skortur
er meðal þess sem fólk óttast mjög
en Allý telur íslenska kaffifíkla enn
sem komið er ekki hafa neitt að ótt
ast í þeim efnum.
„Við höfum alltaf borð fyrir
báru og ég er búin að flýta tveimur
gámum bara af því að ég veit að
þetta gæti dregist,“ segir hún um
stöðuna hjá sér. „Við erum alltaf
með góðar birgðir og svo erum við
náttúrlega svo heppin að vera með
tvær kaffibrennslur og hina fyrir
norðan þannig að ég held að það
komi nú ekki til að það verði kaffi
skortur.“
Kaffiskortur
Þá telur Allý óhjákvæmilegt að ein
hver samdráttur verði í neyslunni
þótt ekki væri nema aðeins fyrir
samfélagslega þáttinn sem hefur í
raun verið fjarlægður úr jöfnunni
í bili.
„Ég hugsa að neyslan dragist
aðeins saman vegna þess að við
erum ekki að halda neinar veislur
þar sem verið er að drekka kaffi,“
segir kaffimeistarinn, sem reiknar
þó ekki með að hver og einn hægi
á drykkjunni. Enda kaffi í eðli sínu
drykkur sem virkar jafn vel í ein
semd og fjölmenni.
„Ég er til dæmis búin að hella upp
á þrisvar sinnum í dag heima hjá
mér en helli bara þú veist alltaf upp
á 300 grömm í einu og drekk það
allt.“ Hún segist telja að um kaffi
gildi sama lögmál og brauð. „Þetta
er bara eitthvað svona sem maður
þarf alveg á að halda og ég held að
flestir kunni vel að meta þessi lífs
gæði sem flestir geta veitt sér og eru
fólgin í góðum kaffibolla.“
toti@frettabladid.is
Allý smakkar
í kaffisóttkví
Kaffi er mörgum ómissandi og mun sem betur fer flæða áfram
fram hjá COVID-19. Allý í Kaffitári blindsmakkar til dæmis heima
í eldhúsi eftir að hún ákvað að aðskilja brennara og smakkara.
Allý í Kaffitári smakkar nýjar tegundir í örygginu heima enda hefur hún verið vöruð við því að COVID-19 geti farið
illa með bragðlauka fólks. „Ef ég missi bragðlaukana missi ég ekki bara vinnuna heldur lífsgleðina,“ segir Allý.
DAG HVERN LESA
93.000
ÍSLENDINGAR
FRÉTTABLAÐIÐ
AÐ MEÐALTALI HEIMILD: PRENTMIðLAMÆLING GALLUP OKT-DES 2019, 12-80 ÁRA,
ALLT LANDIð HAGSTOFA ÍSLANDS, MANNFJÖLDATÖLUR, 2019
2 6 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð