Fréttablaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 10
Við Íslendingar eru svo gæfusamir að eiga stórkostlega náttúru innan seil-ingar – auðlind sem ekki aðeins skapar tekjur heldur veitir okkur ómældar unaðsstundir. Á Austurlandi er eitt skemmtilegasta göngusvæði landsins, Víknaslóðir, og þótt ekki séu þær við bæjardyr höfuð- borgarbúa þá er auðvelt að komast þangað á ferðalagi um austanvert landið. Breiðavík, er eins og nafnið gefur til kynna, stærst af Víkunum og liggur milli Herjólfsvíkur í suðri og Kjólsvíkur í norðri. Þarna var löngum tvíbýli, enda grösugt undirlendi til staðar þótt þokur hafi oft sett strik í reikninginn og útræði verið erfitt. En í góðu veðri er Breiðavík engu lík og litrík líparítfjöll Breiðavíkureldstöðvarinnar umkringja þessa vinalegu vík sem breiðir út faðm sinn mót opnu Atlantshafi. Þarna er ríkuleg flóra með risa- stórum fífubreiðum en fuglalíf er einnig blómlegt. Auð- velt er að komast í Breiðuvík á fjórhjóladrifnum farar- tækjum, t.d. yfir Gagnheiði eða ofan af Húsavíkurheiði. Skammt frá ströndinni er snotur skáli Ferðafélags Fljótsdalshéraðs með ágætu tjaldstæði. Þaðan er til- valið að leggja í fjölbreyttar dagsgöngur, t.d. út í Kjóls- vík, upp á Gagnheiði eða bakdyramegin upp á tind Hvítserks. Skammt frá er tígulegt fjall sem heitir því skemmtilega nafni Hákarlshaus. Við suðurenda Breiðu- víkur er síðan Sólarfjall sem gaman er að ganga á, enda útsýni yfir víkina frábært og óvenju grösugt efst með litríkri f lóru. Skemmtilegast er að heimsækja Breiðuvík gangandi með allt á bakinu en einnig er auðvelt að skipuleggja trússferð um Víkur. Er þá gengið frá Borgarfirði eystra yfir í Brúnavík og fram hjá Kjólsvík í Breiðuvík, eða öfuga leið frá Loðmundarfirði í Húsavík og þaðan í Breiðuvík. Á sumum leiðunum má fylgja torfæruslóð- um en í góðu veðri er skemmtilegra að þræða gamlar gönguleiðir úr einni vík í aðra. Það er einmitt á einni slíkri, milli Kjólsvíkur og Breiðuvíkur, sem óteljandi smávötn og tjarnir gleðja augað. Þau eru umkringd sef- gróðri og í góðu veðri er ekki annað hægt en að staldra við og fylgjast með tilhugalífi álfta við undirleik lóu og spóa. Í fjarska glittir síðan í litrík lípar- ítfjöll upp af Gagnheiði og í suðri sperra sig Hvítserkur og Hákarlshaus. Þarna er auð- velt að ná fullkominni sálarró og fylla á batteríin á örfáum dögum. Bómullarský yfir Breiðuvík Upp af Breiðuvík eru tjarnir þar sem auðvelt er að spegla sig og ná fullkominni hugarró. Í baksýn glittir í toppinn á Hvítserk og Hákarlstönn. MYNDIR/TG Gengið í gróskumiklum gróðri með allt á bakinu upp úr Breiðuvík. Þoka læðist inn Breiðuvík á meðan bóm- ullarský spegla sig í snotri heiðartjörn. Tómas Guðbjartsson hjartaskurð- læknir og náttúruunnandi og Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari 2 6 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.