Fréttablaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.03.2020, Blaðsíða 24
BÍLAR Það dylst engum að við göngum í gegnum fáheyrða tíma með ýmsum takmörkunum og þótt útgöngubann sé ekki í gildi hérlend- is er gott að hafa í huga að fólk lág- marki ferðir sem mest. Eflaust reyna f lestir það þegar og sér í lagi milli landshluta með undantekningum eins og bílstjórar vöruflutningabif- reiða sem eru líflína okkar. Þeir sem eru í sóttkví ættu að takmarka öku- ferðir sem mest og gæta þess að eiga ekki samskipti við afgreiðslufólk í bílalúgum til að mynda. Hér eru nokkrar upplýsingar fyrir bílstjóra og ráðleggingar sem er gott að hafa. Hvað með bensínstöðvar? Bensín og olía hefur lækkað tals- vert á síðustu vikum og mun eflaust halda áfram að gera það. Bensín- dælur hafa verið skilgreindar sem áhættusvæði fyrir smit og því ætti að nota hlífðarhanska sem olíu- félögin hafa sett upp á dælum sínum. Þeir sem ekki hafa orðið sér úti um bensínkort eða lykla ættu að gera það strax á heimasíðu við- komandi olíufélags og fá sent heim í pósti. Einnig virkar á f lestum dælum að borga með Apple Pay. Get ég farið í þjónustu? Breyttar verklagsreglur eru í gildi hjá bílaumboðum og þótt enn þá sé hægt að reynsluaka nýjum bílum er það aðeins gert með sótthreins- uðum lyklum og bílar þrifnir milli prófana. Hjá sumum umboðum er boðist til að sækja bílinn heim fyrir þjónustuskoðun og eru bílarnir gjarnan aðgreindir frá hver öðrum á verkstæðinu. Get ég farið í skoðun? Sumar skoðunarstöðvar eru með takmarkaðan opnunartíma þótt aðrar séu með fulla starfsemi. Hjá Frumherja er stöðin á Granda lokuð en hægt er að nálgast númeraplötur gegnum afgreiðsluna í Klettagörð- um. Einnig eru stöðvarnar í Grinda- vík, Blönduósi, Siglufirði, Þórshöfn, Kópaskeri og Vopnafirði lokaðar og í Borgarnesi 23.-27. mars. Allar stöðvar Aðalskoðunar og Tékklands eru opnar eins og er. Get ég farið í bílpróf? Frumherji sem sér um öll ökupróf í landinu, hefur lokað fyrir verkleg próf eftir að samkomubann með tveggja metra reglu tóku gildi. Gildir bannið þar til annað kemur í ljós en enn þá er opið fyrir bókleg próf með takmörkunum. Ökuskóli 3 hefur einnig lokað á starfsemi þar til aðstæður breytast. Hvað gera ökumenn vegna COVID-19? Toyota á Íslandi hefur fengið til landsins sýn-ingarbíl af 306 hestafla R AV4 PHEV en að sögn Páls Þorsteins-sona, kynningarstjóra Toyota, er bíllinn væntanlegur í sölu hérlendis á seinni hluta árins. Þar sem bíllinn er ekki skráður var farið með bílinn á akstursbraut Kvart- míluklúbbsins í Kapelluhrauni og blaðamanni Fréttablaðsins boðið að taka í bílinn þar. Eins prófaði Finnur Thorlacius, umsjónarmaður bílaþáttarins Bílalíf á Hringbraut, bílinn og verður umfjöllun hans næstkomandi mánudagskvöld. Toyota R AV4 PHEV er f lagg- skip tvinnbílaf lota Toyota enda kraftmikill bíll sem er aðeins 6,2 sekúndur í hundraðið. Þótt snjóföl hafi verið á brautinni fannst vel hversu gott þetta upptak er. Hér var þó ekki um reynsluakstur að ræða enda bíður það þess tíma sem bíll- inn kemur á markað. „RAV4 PHEV er hagkvæmur kostur fyrir það hversu langt hann kemst á rafmagn- inu eingöngu,“ segir Páll Þorsteins- son en drægi hans þannig er allt að 65 km. „Hann sameinar því vel kosti rafmagnsbíls og þaulreynds tvinnbíls,“ sagði Páll að auki. Ekki er komið verðið á bílnum en þar sem CO2 gildi hans er aðeins 29 gr á hvern ekinn kílómetra má búast við að hann verði á góðu verði líkt og aðrir bílar í þessum flokki. Forkynning á Toyota RAV4 PHEV á Kvartmílubrautinni Hin 306 hestafla tengiltvinnútgáfa RAV 4 er á landinu í nokkra daga og blaðamanni Fréttablaðsins gafst færi á að prófa gripinn á hringakstursbrautinni í Kapelluhrauni. Ný rannsókn frá IAM í Bret-landi gefur til kynna að upplýsingaskjáir nýjustu bílanna geti haft mikil áhrif á við- bragðstíma ökumanna. Í sumum tilfellum er viðbragstími ökumanna svo slæmur að hann er verri en hjá einhverjum sem er undir áhrifum brennivíns eða kannabis. Upplýsingaskjáir nýrra bíla verða sífellt fullkomnari með hverju ári. Þaðan er nú hægt að stjórna flestu er við kemur stjórntækjum bíls- ins, allt frá hljómtækjum og loft- kælingu, auk þess að fylgjast með ástandi bílsins. Þar má líka setja inn leiðsögukerfi og stilla ljós eða öryggisbúnað svo eitthvað sé nefnt. Þetta hefur auðveldað bílafram- leiðendum að bæta við búnað bíla sinna án þess að verðið rjúki upp, en sumum gengur betur en öðrum að gera þá skilvirka og einfalda. Stöðvunarvegalengd eykst Samkvæmt nýrri rannsókn frá IAM RoadSmart, sem er stærsta einkarekna rannsóknarstofa Bret- lands í umferðaröryggismálum, er þó ekki allt sem sýnist varðandi notkun slíkra kerfa. Meðal þess sem niðurstöðurnar sýndu fram á var að stöðvunarvegalengd gat aukist um 4-5 bíllengdir þegar ökumaður var að nota upplýsingaskjáinn. Einnig sýndi rannsóknin að sumir öku- menn tóka augun af veginum í allt að 16 sekúndur við að nota skjáinn, en á 110 km hraða er það hálfur kílómetri. Það eru verri niðurstöður en sést hafa í sambærilegum rann- sóknum á fólki sem sendir texta- skilaboð undir stýri. Samkvæmt rannsóknarstjóra IAM, Neil Greig, er athyglisleysi ökumanns þáttur í um þriðjungi bílslysa. „Fyrri rann- sóknir benda til þess að notkun Apple CarPlay og Android Auto sé skárri kostur en hefðbundin stjórntæki við akstur. Þessi rann- sókn sýnir að hafa þarf áhyggjur af notkun nýjustu upplýsinga- kerfanna sem taka mikla athygli frá ökumönnum.“ Kallar hann eftir því að yfirvöld og bílaiðnaðurinn rannsaki þetta betur og þrói staðla sem einfaldi notkun þeirra. Mun verri viðbragðstími Í rannsókninni þurftu ökumenn að keyra bíl eftir þremur leiðum þrisvar sinnum. Fyrst án nokkurrar truflunar, síðan aðeins með því að nota raddskipun og loks með því að nota snertiskjáinn á meðan á akstri stóð. Ekki þarf að koma á óvart að ökumönnunum gekk verst að halda athyglinni á meðan snertiskjárinn var notaður. Gekk ökumönnunum illa að halda réttri vegalengd í næsta ökutæki, brugðust seinna við hættu og fóru frekar út fyrir akrein sína. Það sem þótti koma verst út var við- bragðstíminn sem var meiri en hjá notanda kannabis, og allt að fimm sinnum meiri en hjá einhverjum sem var við mörk áfengisinnihalds í blóði ökumanns. Niðurstöðurnar sýndu fram á að ökumenn eru lík- legri til að nota snertiskjáinn frekar en raddstýringu við almennan akstur. Eru upplýsingaskjáir hættulegri en brennivín undir stýri? Kynningarakstur á nýjum Toyota RAV4 PHEV fór fram á Kvartmílubrautinni í gær. MYND/ NJÁLL GUNNLAUGSSON Það getur tekið á einbeitinguna að nota upplýsingaskjái nýrra bíla og sumir eru flóknari en aðrir. MYND/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON MEÐAL ÞESS SEM NIÐURSTÖÐURNAR SÝNDU FRAM Á VAR AÐ STÖÐV- UNARVEGALENGD GAT AUKIST UM 4-5 BÍLLENGDIR ÞEGAR ÖKUMAÐUR VAR AÐ NOTA UPPLÝSINGASKJÁINN. TOYOTA RAV4 PHEV ER 306 HESTÖFL OG AÐEINS 6,2 SEKÚNDUR Í HUNDR- AÐIÐ OG ÞVÍ FLJÓTUR AF STAÐ. HANN VERÐUR Á DAGSKRÁ BÍLAÞÁTTARINS BÍLALÍF Á HRINGBRAUT NÆSTKOMANDI MÁNUDAGSKVÖLD. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is 2 6 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R20 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.