Fréttablaðið - 26.03.2020, Síða 6

Fréttablaðið - 26.03.2020, Síða 6
440 þúsund staðfest tilfelli af COVID-19. BANDARÍKIN Hvíta húsið og öld- ungadeild Bandaríkjaþings hafa samið um að verja tveimur billjón- um dala til að örva efnahagslífið og fjármagna aðgerðir til að bregðast við COVID-19 faraldrinum. Mitch McConnell , leiðtog i Repúblikana í öldungadeildinni, sagði þetta fjárfestingu á pari við það sem tíðkist á stríðstímum. Í íslenskum krónum er þetta um 280 þúsund milljarðar. Verja á 250 milljörðum dala í greiðslur til einstaklinga og heim- ila. 250 milljarðar fara í atvinnu- leysisbætur, 350 milljarðar í lán til minni fyrirtækja og 500 milljarðar til stærri fyrirtækja. Þá renna 130 milljarðar til sjúkrahúsa og 150 milljarðar til sveitarstjórna. Demókratar sögðu eftirlit með því hvernig peningum yrði ráðstaf- að skorta og samþykkti Hvíta húsið að skipa nefnd og eftirlitsmann. Donald Trump Bandaríkjafor- seti hefur tilkynnt að hann hygg- ist aflétta samkomubanni í landinu um páskana. – ab Sömdu um innspýtingu Innivera á Spáni Tala látinna á Spáni vegna COVID-19 er nú orðin hærri en í Kína. Í gær höfðu 3.434 þar í landi látið lífið. Alls hafa þar nú greinst tæplega 50 þúsund tilfelli. Þessar ungu systur í Santander hafa verið inni í ellefu daga samf leytt. Í gær fylgdust þær með f lutningaskipi koma til hafnar. MYND/EPA Mitch McConnell, leiðtogi Repúbl- ikana í öldungadeild þingsins. Sparaðu allt að 50-70%! info@fedaszdental.huHafðu samband: + 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is Fyrir Eftir Tannlækningar í Ungverjalandi ERLENT Staðfest tilfelli COVID-19 eru nú tæplega 440 þúsund á heims- vísu samkvæmt vef Johns Hopkins- háskólans. Þá hafa 19.675 manns látið lífið. 111 þúsund manns hafa náð sér að fullu. Stórum hluta jarð- arbúa er nú gert að halda sig heima. Útgöngubann tók gildi á Ind- landi á miðnætti í gær, eiga nú 1,3 milljarðar þar í landi að halda sig heima. Fjaðrafok varð í landinu eftir ávarp Narendra Modi forsætisráð- herra þar sem íbúar kepptust við hamstra nauðsynjar. Hefur lögregla þar verið sökuð um að beita ofbeldi, því hafna yfirvöld. Helstu áhyggjur snúa að óform- legum efnahag landsins og hvernig fólk sem lifir dag frá degi muni reiða af. Rétt rúmlega 600 manns hafa greinst með COVID-19 á Indlandi, hins vegar hafa fáir verið prófaðir. Þá er aðeins hálft gjörgæslurými á hverja þúsund íbúa. Vladímír Pútín Rússlandsforseti ávarpaði þjóð sína í gær og bað alla um að halda sig heima næstu vik- una. Tryggt verði að allir fái greidd laun. Hátt í 700 tilfelli hafa verið staðfest í landinu, sagði Pútín, og að ómögulegt væri að koma í veg fyrir útbreiðslu. Ástandið er hvað verst á Ítalíu. Þar hefur smitum aftur fjölgað, eru þau nú hátt í 70 þúsund. Alls hafa 6.820 manns látið lífið í landinu, það mesta í heiminum. Giuseppe Conte forsætisráðherra tilkynnti á þriðjudagskvöld að allir sem færu út úr húsi án gildrar ástæðu ættu yfir höfði sér sekt upp á 3.000 evrur, eða 460 þúsund krónur. „Allir verða að gera sitt,“ sagði Conti. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir til júlíloka. „Neyðarástand í hálft ár þýðir ekki að hömlur á dag- legt líf gildi þangað til. Við erum til- búin að aflétta hömlum við fyrsta tækifæri, sem við vonumst til að verði bráðlega.“ Hátt í helmingur tilfella í Banda- ríkjunum eru í New York-ríki. And- rew Cuomo ríkisstjóri hefur óskað eftir liðsinni frá Hvíta húsinu og heitið því að hjálpa þá næstu svæð- um sem verða illa úti í faraldrinum. „Við erum að biðja þjóðina um að hjálpa okkur, við munum endur- gjalda greiðann,“ sagði Cuomo við blaðamenn í gær. Þá beindi hann orðum sínum að yngri kynslóð- inni. „Þið haldið að þið séuð ofur- hetjur, en þið getið smitast og borið veiruna á milli.“ Spár gerðu ráð fyrir að 140 þús- und þyrftu á sjúkrarúmi að halda, en aðeins 52 þúsund væru í boði. Cuomo var ekki sáttur við við- brögðin frá Washington, New York fengi 1,3 milljarða dala en hefði nú þegar varið 3,8 milljörðum í bar- áttuna. arib@frettabladid.is Allir verði að gera sitt Stórum hluta jarðarbúa er nú gert að vera heima til að forða frekari útbreiðslu COVID-19. Rússlandsforseti bað í gær þjóð sína að halda sig heima í eina viku. Hermenn á Ítalíu hjálpa til við að framfylgja útgöngubanni. MYND/EPA BRASILÍA Glæpagengi í fátækra- hverfum Rio de Janeiro hafa lýst yfir að þau muni taka að sér að fram- fylgja útgöngubanni í borginni ef stjórnvöld geri það ekki. „Hver sá sem er á götunni á banntíma mun læra að virða næsta bann,“ voru skilaboðin sem hengd voru upp og spiluð af upptöku í hverfunum, samkvæmt brasilíska blaðinu Extra. Yfir 2.200 COVID-19 smit hafa verið greind í Brasilíu og hafa 46 látist af völdum veirunnar. Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur verið gagnrýndur fyrir aðgerða- leysi í faraldrinum. Bolsonaro hefur sjálfur sakað fjölmiðla og pólitíska andstæðinga um að nýta sér far- aldurinn til að koma höggi á sig en hann lýsti því yfir í sjónvarpsviðtali um helgina að COVID-19 væri ekk- ert nema „væg flensa“. „Það sem er að gerast um heim allan hefur sýnt að áhættuhópur- inn eru þeir sem eru eldri en 60 ára. Hvers vegna þá þurfum við að loka skólum? Níutíu prósent okkar munu ekki sýna nein einkenni ef við smitumst,“ sagði forsetinn í erindi sem sjónvarpað var í Brasilíu á þriðjudag. Þá voru vangaveltur á þriðjudag- inn um að Bolsonaro sjálfur gæti hafa smitast af kórónaveirunni. Hersjúkrahúsið þar sem Bolsonaro fór í skimun gegn veirunni hefur ekki gefið upp nöfn tveggja á lista þeirra sem greindust með veiruna. Forsetinn hefur neitað að gefa upp niðurstöðu á sínu eigin prófi. – atv Glæpagengi framfylgja banni Ávarpi Jair Bolsonaro forset varpað upp á vegg í Sao Paulo. MYND/EPA 2 6 . M A R S 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.