Feykir


Feykir - 29.03.2017, Page 2

Feykir - 29.03.2017, Page 2
2 13/2017 Sigríður Á. Andersen dóms- málaráðherra hefur skipað Gunnar Örn Jónsson í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra frá 1. apríl næstkomandi og afhenti hún honum skipunarbréf í síðustu viku. Embættið var auglýst í janúar og rann umsóknar- frestur út 30. janúar. Níu manns sóttu um embættið og ein umsókn til viðbótar var dregin til baka. Á vef innanríkisráðuneytis- ins segir að Gunnar Örn Jóns- son hafi útskrifast með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2003 og öðlast málflutningsréttindi 2005. Hann hefur sótt ýmis námskeið hjá Lögregluskóla ríkisins og lokið námskeiði í aðgerðastjórnun almannavarna. Gunnar hefur m.a. starfað hjá sýslumanns- og lögreglustjóra- embættinu á Selfossi og síðar lögreglustjóranum á Suðurlandi frá 2004, þar af sem staðgengill sýslumanns og síðar lögreglu- stjóra frá árinu 2008 og sem yfirmaður ákærusviðs embætt- isins frá 2015. /FE Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842 Blaðamenn: Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744, Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Sigríður Garðarsdóttir – siggag@nyprent.is Áskriftarverð: 530 kr. hvert tbl með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk. Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. & 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf. Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum LEIÐARI Það er Fermingarblað Feykis sem nú lítur dagsins ljós Samkvæmt lauslegri könnun undirritaðrar verða 88 börn fermd á Norðurlandi vestra þetta vorið í 38 athöfnum sem deilast á átta presta. Undanfarna daga höfum við hér á Feyki verið í sambandi við nokkur ferming- arbörn og forvitnast um undir- búning þeirra fyrir stóra daginn og einnig er rætt við nokkra eldri borgara um þeirra ferming- arundirbúning. Fjallað er um fermingartískuna, haft samband við blómabúð og matarbloggara, sem ræðir um siði og venjur varðandi fermingar, og síðast en ekki síst hef ég líka átt gott samtal við prest og spjallað við hann um þennan stóra áfanga í lífi barnanna. Við undirbúning þessa blaðs fór ekki hjá því að hugurinn hvarflaði nokkur ár aftur í tímann, - ja, kannski er réttara að segja frekar þónokkur. Dagurinn var 8. júní 1975, trinitatis, eða fyrsti sunnudagur eftir hvítasunnu. Á þeim tíma var matarblogg ansi fjarlæg framtíð, í sveitinni var ekki spáð í blóm og blómaskreytingar, ekki var gerð ferð í tískuvöruverslanir eftir dressi á frökenina og engum kom annað til hugar en að veislan yrði að öllu leyti undirbúin og haldin heima. En ég fór í fermingarfræðslu, það hefur ekki breyst. Að vísu var ekki um reglulega fræðslu yfir veturinn að ræða eins og algengast er nú, heldur kom presturinn að hausti og aftur um miðjan vetur, spjallaði við okkur og setti okkur fyrir. Og ég er ansi hrædd um að á mörgum fermingarbörnum dagsins í dag sprytti út kaldur sviti ef þau sæju listann yfir sálmana sem læra átti utan að, mig minnir að þeir hafi verið tólf talsins. Um vorið, síðustu vikuna fyrir fermingu, kom svo presturinn og var með okkur, fermingarbörnunum fjórum, í tímum daglega, allan daginn minnir mig. Í minningunni er þetta afar ljúfur tími, rólegur og notalegur með bekkjarsystkinunum og okkar sérlega indæla Andrési Ólafssyni sóknarpresti. Og þar var, þrátt fyrir mikinn utanbókarlærdóm, áherslan ekki síst á þetta góða samtal sem séra Halla segir í viðtali blaðsins að sé svo mikilvægur þáttur í fermingarundirbúningnum. Dagana fyrir fermingu hafa mamma og systir mín væntanlega staðið á höfði í undirbúningnum heima fyrir, ég var bara í fermingarfræðslu og hafði það gott. Það þurfti að sjálfsögðu að baka fjöldann allan af hnallþórum; Húsfreyjutertu, Perutertu, Konfekttertu, Jarðarberjatertu, skonsubrauðtertur... Já, borðin skyldu sko svigna undan krásunum. Og dressið, það sá saumasnillingurinn hún systir mín um. Jakki, vesti og pils úr flöskugrænu sléttflaueli, það var sko ekkert slor og ekki kastað til höndunum við það. Greiðslan var slöngulokkar, örugglega hafa hinar stórkostlegu Carmen rúllur leikið þar stórt hlutverk. Já, fermingardagurinn og undirbúningur hans er örugglega tími sem ekki fennir svo fljótt yfir í minningunni þótt tímarnir breytist. Munið bara, kæru fermingarbörn, að gefa ykkur tíma til að njóta dagsins. Ég sendi öllum fermingarbörnum, nær og fjær, mínar bestu hamingjuóskir. Fríða Eyjólfsdóttir, blaðamaður Gunnar Örn Jónsson skipaður í embætti Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra Gunnar Örn er sá fyrsti sem Sigríður Á. Andersen skipar í embætti sem dómsmálaráðherra. Við óskum FERMINGARBÖRNUM til hamingju með daginn Blönduósbær Hnjúkabyggð 33 Blönduósi Sími 455 4700 www.blonduos.is Borgarmýri 1 Sauðárkróki Sími 453 5433 www.stettarfelag.is Á fundi byggðarráðs fyrir helgi var lagt fram bréf frá Ungmennasambandi Skagafjarðar þar sem stjórn þess skorar á sveitarfélagið að fara að dæmi nokkurra annarra bæjar- og sveitar- félaga og mótmæla opinber- lega frumvarpi sem er til um- ræðu á Alþingi um breytingar á lögum um verslun með áfengi og tóbak og leggjast gegn því. Í fundargerð byggðarráðs segir að sveitarstjórnin vilji beina því til þingmanna að beita sér gegn því frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi um afnám einkaleyfis Áfengis- og tóbaks- erslunar ríkisins á smásölu áfengis og heimilar áfengisaug- lýsingar og hafnar því alfarið. „Hugmyndir sem ganga gegn lýðheilsusjónarmiðum og fara þvert gegn ráðgjöf sérfræð- inga geta ekki verið farsælar fyrir íslenskt samfélag,“ segir í fundargerð byggðarráðs sem leggst gegn framkomnu frum- varpi. /PF Ályktar gegn áfengisfrumvarpi Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar Verslunarmannafélag Skagafjarðar Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5433 www.stettarfelag.is Forsíðumyndina tók Gunnhildur Gísladóttir ljósmyndari á Sauðárkróki af fermingarbörnum í Sauðárkrókskirkju þar síðasta sunnudag. Feykir fékk sr. Sigríði og nokkra krakka til að sitja fyrir eftir fermingarfræðslu og tóku þau vel í það. Einhverjar áhyggjur kviknuðu út af skóbúnaði þeirra en rétt er að upplýsa að aðrir skór verða brúkaðir hjá börnunum við sjálfa fermingarathöfnina. Feykir þakkar Gunnhildi fyrir góðar myndir og gott samstarf. Nokkur viðtöl eru við fermingarbörn í blaðinu um fermingarundirbúninginn og er von á fleirum í næsta Feykisblaði. Feykir óskar öllum fermingarbörnum landsins til hamingju með áfangann með ósk um bjarta framtíð. /PF Forsíðumyndin sviðsett Börnin settu ferminguna á svið Karlakór Bólstaðarhlíðar- hrepps hefur lokið í bili flutningi sínum á verkefninu "Bó og meira til". Á fésbókarsíðu sinni segir Höskuldur B. Erlingsson, formaður kórsins, að húsfyllir hafi verið á síðustu tónleika kórsins, sem haldnir voru í Blönduóss- kirkju í síðustu viku. Eru karlakórsmenn alveg í skýjunum með viðtökurnar enda stemningin sem myndaðist í kirkjunni góð. Segir Höskuldur að stefnt sé á suðurferð með verkefnið en ekki er búið að ákveða hvenær það verður. /PF Karlakór Bólstaðar- hlíðarhrepps Stefna suður með Bó og meira til Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps þykir léttur og skemmtilegur kór enda nýtur hann mikilla vinsælda norðan heiða. Mynd af fésbókarsíðu kórsins.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.