Feykir - 29.03.2017, Qupperneq 4
4 13/2017
gildi fyrir þig? Ég á Dagbók Önnu
Frank sem langamma mín átti á sínum
tíma, sú bók er að mínu mati mjög
sérstök. Annars elska ég bækur þannig
að það eru fáar bækur sem ég á sem
hafa ekki neitt tilfinningalegt gildi
fyrir mig.
Hefur þú heimsótt staði sem tengjast
bókum eða rithöfundum þegar þú
ferðast um landið eða erlendis?
Ég get ekki sagt það. Ég hef jú farið
á slóðir margra bóka hér á landi en
það var aldrei vegna bókarinnar.
Annars er það draumur minn að
fara einhvern tíman í Harry Potter
göngu þegar ég heimsæki London.
Ég er líka mjög spennt fyrir Astrid
Lindgren garðinum í Svíþjóð og mun
hugsanlega heimsækja hann í fyrsta
sinn núna í sumar. Eins langar mig
mikið að heimsækja Prins Eðvaldsey í
Kanada, en það er eyjan þar sem Anna
Shirley (í Grænuhlíð) átti að hafa átt
heima.
Ef þú ættir að gefa einhverjum sem
þér þykir vænt um bók, hvaða bók
yrði þá fyrir valinu? Það fer allt eftir
áhugamálum þess sem á að fá bókina.
Ég gef venjulega foreldrum mínum
bók í jólagjöf, þá fær pabbi einhverja
glæpasögu en mamma skáldsögu í
líkingu við Flugdrekahlauparann,
hvorugt bækur sem ég hef lesið en ég
veit að þau hafa gaman af. Síðast þegar
ég keypti bók handa frændsystkini
var það fótboltabók eftir Gunnar
Helgasson, ég hef mikið keypt bækur
eftir hann þegar ég hef verið að gefa
frændsystkinum mínum gjafir.
Og í lokin tvær spurningar sem tengj-
ast fermingarárunum:
Manstu eftir einhverjum bókum sem
þú fékkst í fermingargjöf?
Í fermingargjöf fékk ég Afmælisdaga-
bók og Draumráðningabók, báðar sem
ég hafði óskað mér mikið. Á þeim
árum var Facebook náttúrulega ekki
til þannig að svona Afmælisdagabækur
voru þarfaþing að mati margra og þar
á meðal mín. Ég verð nú að viðurkenna
að ég hef nú ekki mikið notað þá bók
í mörg ár en Draumráðningabókin er
alltaf notuð reglulega.
Hvaða bækur lastu helst þegar þú
varst á fermingaraldri?
Á árunum í kringum fermingu átti
bókaflokkurinn Tár, bros og takkaskór,
eftir Þorgrím Þráinsson hug minn
allan. Bækurnar í þeim bókaflokki eru
þrjár og fjalla þær um vinina Kidda,
Tryggva og Skapta, líf þeirra, ástir og
sorgir. Ég las þær oftast allar þrjár í röð
þrisvar yfir árið.
Helga Gunnarsdóttir, kennari á
Skagaströnd, svarar spurningum í
Bók-haldinu að þessu sinni. Helga
er 34 ára, hún bjó í Kaupmannahöfn
fyrstu sjö árin en síðan á Hvanneyri
og Selfossi þar til hún flutti að Akri
í Austur-Húnavatnssýslu þar sem
foreldrar hennar búa nú. Helga
hefur gaman af ýmiss konar bókum,
ekki síst ævintýrabókum, og tekur
oft miklu ástfóstri við persónur
þeirra.
Hvers konar bækur lestu helst? Ég
les að mestu bækur eftir Jane Austin,
ævintýrabækur, unglingabækur og
ástarsögur mér til skemmtunar en
starfsins vegna les ég líka hinar ýmsu
námsbækur sem og fræðigreinar og
-bækur hvers konar.
Hvaða bækur voru í uppáhaldi hjá
þér þegar þú varst barn? Bækur eftir
Astrid Lindgren, sagan af Heiðu í fjöll-
unum, Anna í Grænuhlíð, Pollýanna,
Ævintýrabækurnar og bækur eftir
Þorgrím Þráinsson voru í mestu
uppáhaldi í þá daga.
Hver er uppáhaldsbókin af þeim
sem þú hefur lesið gegnum tíðina?
Ég elska bækur sem eru langar og/
eða hafa framhald. Ég á nefnilega
mjög erfitt með að segja bless við
söguhetjur bókanna. Harry Potter
bókaflokkurinn og flokkurinn um
Önnu í Grænuhlíð (sem hefur að vísu
ekki enn komið allur út á íslensku
en það er í vinnslu) eru þar í mestu
uppáhaldi. Þetta eru bækur sem ég hef
ekki tölu á hversu oft ég hef lesið og ég
get alltaf lesið aftur og aftur. Ég verð að
vísu ekki mjög félagslynd þá daga og
þess vegna þarf ég að haga lestrinum
þannig að ég geti gleymt mér í marga
klukkutíma yfir bókalestri. Eins eru
bækurnar hennar Jane Austin líka í
miklu uppáhaldi, þrátt fyrir að þær
eigi ekki framhald. En þær búa yfir
svo ríkum söguþræði, bæði skrifuðum
sem og á milli línanna, að það er alltaf
hægt að sjá nýjar hliðar við hvern
lestur.
Hver er þinn uppáhaldsrithöfundur/
rithöfundar og hvers vegna? J.K.
Rowling, Astrid Lindgren, Lucy Maud
Montgomery og Jane Austin eru í
mestu uppáhaldi. Allar eiga þær það
sameiginlegt að hafa skrifað bækur
sem ég hef á einhverjum tímapunkti í
mínu lífi fallið alfarið fyrir. Þetta eru
allt bækur sem ég hef lesið aftur og
aftur frá deginum sem ég féll fyrir þeim
fyrst og þær hafa það fram yfir margar
bækur að þær verða aldrei leiðinlegar
eða úreltar. Það skemmtilega við
bækurnar er líka að maður sér alltaf
eitthvað nýtt því þessir höfundar eru
allir góðir í því að skrifa söguþráð,
bæði þann sem er skrifaður í bókina
sem og söguþráðinn sem er hvergi
skrifaður í hana. Ekki skemmir heldur
hvað þessar bækur innihalda mikinn
húmor.
Hvaða bækur eru á náttborðinu hjá
þér þessa dagana? Ég er með nýjustu
bókina af Harry Potter, Harry Potter
og bölvun barnsins. Þá bók hef ég verið
með á náttborðinu frá því um jólin
því ég reiddist svo við Harry Potter
að ég gat ekki lesið áfram, spurning
hvenær reiðin rennur nógu mikið af
mér svo ég geti lesið lengra. Ég er svo
líka með eina Rauða seríubók, ég man
ekki hvað hún heitir enda skilja þær
bækur venjulega lítið eftir nema bara
ánægjuna að lesa.
Ertu fastagestur á einhverju bóka-
safni? Ég er ekki eins dugleg að sækja
bókasöfn í dag eins og ég var þegar ég
var barn og ungingur.
Áttu þér uppáhaldsbókabúð? Ey-
mundsson er í mestu uppáhaldi hér
heima. Erlendis á ég ekki neina eina,
en finnst alltaf gaman að fara og skoða
bókabúðir.
Hvað áttu margar bækur í bókahill-
unum heima hjá þér? Ég hef fyrir
löngu týnt tölunni á bókunum sem ég
á.
Hvað kaupirðu eða eignast að jafnaði
margar nýjar bækur yfir árið? Ég fæ
að meðaltali svona tvær til fjórar á ári.
Eru ákveðnir höfundar/bækur sem
þú færð alltaf í jólagjöf? Núna efir
að Sigríður Lára Sigurjónsdóttir fór
að þýða bækurnar um hana Önnu
í Grænuhlíð upp á nýtt hef ég alltaf
fengið eintak af nýjustu bókinni. Ég
varð akkúrat mjög svekkt núna þegar
ég fletti Bókatíðindum fyrir síðustu jól
því þá hefði fimmta bókin átt að koma
út en eitthvað hefur væntanlega komið
uppá í þýðingarferlinu. Ég vonast því
eftir henni um næstu jól.
Er einhver bók sem hefur sérstakt
( BÓK-HALDIÐ ) frida@feykir.is
Harry Potter og
Anna í Grænuhlíð
í miklu uppáhaldi
Helga Gunnarsdóttir kennari á Skagaströnd
Helga Gunnarsdóttir. MYND: ÚR EINKASAFNI