Feykir


Feykir - 29.03.2017, Page 8

Feykir - 29.03.2017, Page 8
8 13/2017 inn stór hluti af starfi prestsins. Í hverju felst hann hjá þér? „Við byrjum á að fara í Vatnaskóg með öðrum fermingarbörnum úr Skagafirði og Húnavatnssýslum í fimm daga um miðjan ágúst þar sem við prestarnir kennum okkar krökkum. Svo er auðvitað frjáls tími og þetta eru mjög skemmti- legir dagar. Önnur ferð er að Löngumýri í byrjun apríl þar sem við verðum einn dag ásamt krökkum úr Varmahlíðarskóla. Við hittumst svo sirka tvisvar í mánuði yfir veturinn í einn og hálfan tíma í senn. Það er stór partur af fermingarundirbún- ingnum að þau kynnist kristinni trú, þau hafa farið með mér í allflestar messur og lesið upp og Séra Halla Rut Stefáns- dóttir er sóknarprestur á Hofsósi og þjónar auk þess fimm öðrum sóknum í nágrenninu. Í vor mun hún ferma sex börn í fimm athöfnum. Halla segir ferminguna og fermingar- undirbúninginn skipta börnin miklu máli og hún er ekki sammála því sem oft er haldið fram að börnin fermist aðallega vegna gjafanna. Halla er Skagfirðingur, dóttir hjónanna Stefáns Gíslasonar og Margrétar Guðbrandsdóttur í Varmahlíð og þar ólst hún upp og gekk í grunnskóla. Því næst lá leiðin í Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki en að því loknu flutti hún suður. Hún lagði stund á snyrtifræði og nudd í Englandi. Hún vann svo við það til ársins 2007, þá ákvað hún að setjast aftur á skólabekk, ætlunin var að leggja stund á sagnfræði en loks varð guðfræðin fyrir valinu. Halla segir að góð starfsþjálfun hjá Guðrúnu Karls Helgudóttur, sóknarpresti í Grafarvogssókn, hafi skipt miklu máli í hennar námi. Nú hefur Halla verið sóknarprestur í hartnær tvö ár og segir að sér líki starfið mjög vel, samfélagið sé fjölbreytt og gott, svo og samstarfið við skóla og fjölskyldur, og það hafi mikið að segja. Þar skipti líka mjög miklu máli að samstarf prestanna í Skagafirði sé afar gott og það sé mjög dýrmætt að geta leitað til fólks sem hún beri mikið traust til. En skyldu trúarbrögð hafa skipað stóran sess í uppeldi Höllu? „Já, þau gerðu það, ég fór mikið í messur, mér líkaði það nú kannski ekki alltaf neitt alltof vel, segir Halla og hlær. „En ég lærði fljótt að meta það betur og betur. Pabbi er organisti og mamma söng í kór þannig að við mættum oft löngu áður en athöfnin byrjaði. Mér þótti það mikið sport að sitja fremst og passa að standa upp á réttum tíma og var oft dálítið stressuð yfir því. Ég átti víst erfiðara með að sitja kyrr heldur en systur mínar en pabbi notaði það sem trikk á mig að biðja mig að hlusta vel og segja sér hvenær hann hefði farið útaf eða hvort eitthvað hefði ekki verið í góðu lagi svo ég fylgdist alltaf voða vel með. Það hefur nú stundum verið hlegið að þessu,“ segir Halla brosandi. „Pabbi var organisti í þremur kirkjum og ég fylgdi honum oft í þær allar, alltaf að fylgjast með hvort hann færi útaf! Svo var ég mikið hjá ömmu minni og afa á Sauðárkróki, þau voru mikið trúfólk og það var farið með margar kvöld- og morgunbænir þannig að ég var mjög ung þegar ég lærði bænirnar mínar og þær hafa skipt mig mjög miklu máli. Ég ræktaði þetta svo sem misvel, eftir því á hvaða aldri ég var, en þó ég sé að verða fertug og sé búin að læra þetta þá grípur maður alltaf í grunninn sinn, það er nú bara þannig.“ Er fermingardagurinn þinn minnis- stæður dagur? „Já, mjög svo. Við fermdumst tvö saman í Víðimýrarkirkju, ég og vinur minn, Guðmundur á Vatns- skarði. Við vorum mjög spennt og ég man að ég upplifði mig voðalega fullorðna. Veislan var haldin heima eins og var algengast þá og dagana áður var bara allt tekið út úr öllum herbergjum og sett í bílskúrinn. Svo voru fengnir stólar og borð að láni úr félagsheimilinu og öllu púslað inn í hvert einasta horn og ægilega gaman.“ En er eitthvert sérstakt atvik sem þú manst eftir? „Ekki nema það að við áttum að muna ritningar- vers til að fara með og ég naut eiginlega ekki fermingarinnar fyrr en ég var búin að fara með það því ég var dálítið stressuð yfir því. En svo hefur líka oft verið hlegið að því að þegar við fórum inn á Víðimýri til að fara úr kirtlunum hafði orðið einhver misskilningur varðandi ferm- ingarbróður minn og hann var skilinn eftir, allir hafa bara haldið að einhver annar ætti að taka hann með, okkur fannst það mjög skondið. Svo er hárgreiðsl- an líka minnisstæð, þá var í tísku að vera með toppinn blásinn hátt upp og mikið til hliðar. Ég fór í greiðslu og mér fannst hann ekki nógu hár þannig að ég barðist við að fá meiri upp- hækkun og hún er svo sannarlega til staðar á öllum myndunum – og púffuð fermingarskyrta.“ Nú er fermingarundirbúningur- Halla Rut. MYND: FE Séra Halla Rut Stefánsdóttir sóknarprestur á Hofsósi Fermingin og undirbúningur hennar með því skemmti- legasta við starfið VIÐTAL Fríða Eyjólfsdóttir Rakel Ýr Ívarsdóttir Er búin að finna rétta kjólinn Rakel Ýr Ívarsdóttir á Blönduósi verður fermd þann 29. apríl í Blönduóskirkju af sr. Sveinbirni R. Einarssyni. Foreldrar hennar eru Jóhanna K. Atladóttir og Ívar Snorri Halldórsson. Hvers vegna valdir þú að fermast? -Til að játa kristna trú. Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Já, nokkuð mikið. Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið háttað? -Ég er búin að mæta mikið í fermingarfræðslu og svo þegar við vissum dagsetninguna á fermingunni pöntuðum við sal og ég ákvað litaþema fyrir veisluna og ég ákvað að hafa rauðan og gulllitaðan. Hvar verður veislan haldin? -Í Dalsmynni. Er búið að ákveða hvað verður á matseð- linum? -Það verður heitur matur og svo tertur og kaffi á eftir. Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já, ég er búin að finna rétta kjólinn. Hver er óska fermingargjöfin? -Mig langar í fartölvu. Fermingin mín

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.