Feykir - 29.03.2017, Qupperneq 12
12 13/2017
„Það var svo hrikalega skemmti-
legt fólk að vinna í Kjötkróki ...“
Ósk Bjarnadóttir er 32 ára og býr ásamt manni sínum og þremur
börnum á Sauðárkróki þar sem hún er uppalin. Hún starfar sem kjöt-
iðnaðarmaður hjá Kjötafurðastöð KS á Sauðárkróki. Ósk segist ekki
þekkja margar konur í sínu fagi þó það sé ekkert við starfið sem geri
það frekar að karlastarfi en kvennastarfi.
Nafn: Ósk Bjarnadóttir
Aldur: 32 ára
Starf: Kjötiðnaðarmaður
Stutt lýsing á starfinu: Starf mitt sem
kjötiðnaðarmaður hjá Kjötafurðarstöð
KS er mjög fjölbreytt, allt frá því að saga
og úrbeina kjötskrokka til þess að salta,
krydda og afgreiða pantanir til við-
skiptavina. Auk þess fást kjötiðnaðar-
menn við vinnslu á kjötafurðum s.s.
kjötfarsi, pylsum, kæfum og pate svo
eitthvað sé nefnt.
Hvað ert þú búin að vera lengi í þessu
starfi?
Það er svo langt síðan að ég er ekki alveg
viss, mig minnir að ég hafi byrjað 2004
eða 2005.
Hvers vegna fékkst þú áhuga á þessu
starfi? Það var svo hrikalega skemmtilegt
fólk að vinna í Kjötkróki þar sem ég hóf
störf sem ófaglærð. Það tók þau ekki
nema þrjá mánuði að sannfæra mig um
að þetta væri málið.
Hver telur þú að sé ástæðan fyrir því að
starfið er almennt talið karlastarf?
Ætli það sé ekki staðreyndin að þetta er
iðnnám sem virðist einhverra hluta
vegna frekar vera beint til stráka.
Var eitthvað sem kom þér sérstaklega
á óvart við starfið? Já, hvað það er
hrikalega skemmtilegt fólk í faginu og
starfið fjölbreytt.
Er eitthvað við þetta starf sem gerir
það að verkum að konur eigi erfitt með
að vinna það? Nei.
Þekkir þú/veist þú um margar konur
sem vinna þetta starf? Mínar helstu
fyrirmyndir í faginu eru tveir fyrrum
kvenkyns samstarfsmenn, en þar með
eru þær sem ég veit um í faginu nánast
upp taldar.
Var erfitt að byrja í starfi þar sem
meirihluti vinnufélaga var af öðru kyni?
Á fyrsta vinnustaðnum mínum vorum
við þrjár konur og einn karlmaður svo
það var ekki erfitt. Á mínum núverandi
vinnustað eru konur þó í minnihluta, en
það er alls enginn ókostur.
Finnst þér þú hafa mætt fordómum á
vinnustað eða annars staðar vegna
þess að þú ert kvenmaður?
Nei alls ekki, frekar það að fólki finnist
það áhugavert.
Nokkur orð að lokum: Ég vil hvetja
stelpur eindregið til þess að skoða iðnám
sem námskost því það hentar stelpum
alls ekkert síður en strákum.
( #kvennastarf ) frida@feykir.is
Ósk Bjarnadóttir kjötiðnaðarmaður hjá Kjötafurðastöð KS
Ósk alveg eldhress. MYND: ÚR EINKASAFNI