Feykir


Feykir - 29.03.2017, Page 15

Feykir - 29.03.2017, Page 15
13/2017 15 hann var ennþá nemi á Eiðum, en þá gátu slíkar ferðir á þeim tíma orðið ansi skrautlegar. En það var spennandi að prófa eitthvað nýtt, og engan þekkti hann á Króknum utan Sigrúnu Skúladóttur frænku sína úr Borgarfirði sem þá bjó með Erlingi Péturssyni kaupmanni. Þau reyndust honum afar vel en Heiðar vann í verslun þeirra, Tindastól, í nokkur ár á meðan hann var í Fjölbrautaskólanum. „Ég hafði einu sinni komið á Krókinn áður en ég flutti hingað á heimavistina til Björns Magn- ússonar þannig að þetta var allt nýtt fyrir mér en ég er kominn ágætlega inn í samfélagið núna 26 árum síðar.“ Áskell Heiðar er menntaður landfræðingur frá Háskóla Ís- lands, með diplómu í opinberri stjórnsýslu frá HÍ og vann lengi hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Seinna náði hann sér í MA gráðu í ferðamálafræði og við- burðastjórnun frá Háskólanum á Hólum og Leeds Metropolitan University. Nú gerir hann út á viðburðastjórnun og er hann kannski helst þekktur fyrir aðkomu sína að tónlistarhátíð- unum Bræðslunni á Borgarfirði eystra og Drangey festival í Skagafirði. Upphafið að því, segir hann, hafi verið álíka mikið útpælt og annað sem hann geri. „Ég er alinn upp við ver- tíðarmennsku en foreldrar mínir voru sauðfjárbændur og þar er hugsað í verkefnum. Ákveðið verkefni hefst og þau eru kláruð. Mamma rak lengi veitingasölu í Borgarfirði og partur af því var að slá upp einu og einu balli, tónleikum og ýmsum uppákomum til að skemmta heimafólki og draga tæplega 30 hafi verið í skólanum í það heila, og mismunandi stórir árgangar. Fór frá því að vera einn nemandi og upp í sex til sjö í árgangi svo að þremur til fjórum árgöngum var kennt saman í stofu. Í árgangnum á eftir okkur voru þau fimm en enginn í árgangnum á undan, og þau voru fjögur þar á undan. Við vorum kannski tíu, tólf saman í hóp. Maður ólst upp við þetta og þekktum ekki annað en við vorum mjög heppin með skólastarfið. Þegar við vorum að byrja, fengum við ungt og ferskt fólk að skólanum sem reif þetta svolítið upp, en meðal þeirra voru Hallfríður Sverris- dóttir og Sigurlaugur Elíasson, sem búa nú hér á Krók, sem voru þarna á tímabili. Ég lærði myndlist og dúkristur hjá Silla og svo kom Gyrðir bróðir hans líka og kenndi okkur á tímabili. Í minningunni var þetta allt saman mjög skemmtilegt og ég held að við höfum verð heppin með starfsfólk og góðan anda í skólanum. Okkur fannst við aldrei neitt líða sérstaklega fyrir það að vera í svona fámennum skóla, þvert á móti. Svo þegar þurfti að klára skólaskylduna fórum við í Alþýðuskólann á Eiðum og tókum síðasta bekkinn þar. Þá fékk maður smá menningarsjokk, miklu fleiri saman í bekk og allt öðruvísi bragur á öllu, heimavist og sá pakki allur. Þegar maður lítur til baka held ég að þetta hafi blessast ágætlega.“ Heiðar hleypti heimdragan- um þegar ljúka þurfti stúdent- sprófinu og endaði hann í Fjöl- brautaskólanum á Sauðárkróki, FÁS, eins og hann hét þá. Sú ákvörðun að fara í skóla á Sauðárkróki, segir Heiðar að hafi ekki verið mjög djúpvitur ákvörðun hjá honum. „Leiðin hjá flestum lá í Menntaskólann á Egilsstöðum, en mig langaði til að fara aðeins út fyrir fjórðunginn og tún- fótinn svo ég sótti um á Akra- nesi, Selfossi og á Sauðárkróki sama daginn. Svo var bara hringt héðan, Jóhanna á skrifs- tofunni í fjölbraut, þá var þessi stóra ákvörðun tekin,“ segir Heiðar sem býr enn á Króknum og unir sér vel, enda fann hann núverandi eiginkonu sína, Völu Báru Valdóttur í Fjölbraut og þau búa hér með fjórar dætur, þar af tvær sem nú nema við þennan sama fjölbrautaskóla. Heiðar segist reyndar hafa séð til hóps frá Sauðárkróki sem kom í heimsókn í Mennta- skólann á Egilsstöðum á meðan að gesti og ég er alinn upp við það að þetta sé skemmtilegt og að þetta sé lítið mál. Hún vílaði það ekkert fyrir sér að hringja nokkur símtöl eða hafa sam- band við fólk til að slá upp einhverjum viðburði. Svo ein- hvern veginn vindur þetta upp á sig og eitt tekur við af öðru. Bræðslan var búin til sem stakir tónleikar. Þeir lukkuðust vel svo það var ákveðið að gera þetta aftur, svo vindur þetta upp á sig og nú er nánast uppselt á Bræðslu númer 13 og rúmir fjórir mánuðir þangað til hún fer fram. Með tíð og tíma verður þetta svo að rútínu og svo kemur reynslan, maður gerir mistök og lærir eitthvað nýtt í hvert skiptið,“ segir Heiðar. Hann ákvað svo að mennta sig í viðburðafræðunum gegnum Háskólann á Hólum og með skiptinámi við háskóla í Leeds í Englandi sem er einn stærsti skólinn þar í landi í viðburða- stjórnun. Drangey Music Festival Nú er búið að kynna hljóm- sveitirnar sem koma fram á Drangey music festival í lok júní í sumar og segist Heiðar ætla að einbeita sér vel að því litla barni sem varð til fyrir þremur árum. „Við ákváðum að búa til tónleika, ég og Guðbrandur Ægir, sem hefur verið með mér í Bræðslunni frá upphafi, og Viggó Jónsson, sem ég hef þekkt lengi og brallað ýmislegt með og hugmyndin var að finna þeim einstakan stað þar sem náttúran og tónlistin gætu unnið saman og búið til einhvern galdur. Og það tókst svo sannarlega á Reykjum, enda er það yndislegur staður. Við komum að borðinu hver með sínum hætti og með mismun- andi styrkleika og skiptum með okkur verkum. Það hefur verið mjög skemmtilegt að vinna með þeim og þeirra fólki og þetta hefur lukkast vel. Veður- guðirnir hafa vissulega verið með okkur. Nú erum við búnir að stilla upp prógrammi í sumar sem er mjög spennandi og ég er mjög spenntur og vona að sjá þetta ganga vel í sumar til að koma okkur betur á kortið.“ Tónleikarnir fara fram á Reykjum á Reykjaströnd, sömu helgi og Lummudagar eru haldnir í Skagafirði. Er það ekkert að trufla? „Ég hef frekar horft á það sem styrkleika. Við settum prógrammið vísvitandi upp þannig að þetta byrjar ekki fyrr en um níu leytið á laugardags- kvöldinu en þá geta götugrillin verið búin og öll dagskrá í bænum. Ég held að það væri erfitt að koma svona hátíð upp einhverja aðra helgi, þar sem mikið rót er á fólki því fólk fer mikið í burtu. Það er líka mjög hörð samkeppni í þessum viðburðabransa yfir sumarið og engin helgi laus sem bíður eftir einhverri svona hugmynd. En ég veit auðvitað að einhverjir þurfa að standa vaktina á knattspyrnumóti og hinu og þessu og það er alltaf þannig að það er aldrei hægt að setja eitthvað upp sem hentar öllum og það eru ýmis sjónarmið með þetta. Ég lít á þetta sem góða viðbót við Lummudagana.“ Upplifun fyrir tónlistarfólk Það er vel þekkt að hljómsveitir verða ekki ríkar á því að taka þátt í tónleikahaldi á Íslandi en Heiðar segir það ekki vandamál að fá einhverjar til að koma. Hann segir að reynt sé að leggja dæmið upp þannig að úr verði upplifun fyrr þá sem koma að, en líka að fólk fái borgað fyrir sína vinnu, tónlistarmenn og aðrir. „Við reynum að gera vel við fólk í mat og gistingu og að það sé upplifun fyrir það að koma á staðinn líka. Það hefur lukkast vel á Bræðslunni og við 10/2016 Fjölskyldan öll í brekkunni á Landsmóti hestamanna á Hólum síðastliðið sumar. MYNDIR: ÚR EINKASAFNI Drangeyjarbræður, Áskell Heiðar, Guðbrandur Ægir og jarlssonurinn Viggó Jónsson. Veðurguðirnir hafa fílað Drangey Music Festival fram að þessu. Fermingarbræðurnir og frændurnir, Ásgrímur Ingi og Heiðar.

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.