Feykir


Feykir - 10.05.2017, Blaðsíða 8

Feykir - 10.05.2017, Blaðsíða 8
Tengjast þeirra afrek öll ástum, söng og hestum Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga Í aðdraganda Sæluviku eru hagyrðingar brýndir til að taka þátt í vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga sem notið hefur vinsælda um áratuga skeið. Keppnin er einföld og í engu breytt út af vananum frá ári til árs. Fjöldi þátttakenda hefur ýmist vaxið eða dalað og alltaf matsatriði hvað mönnum þykir ásættanlegur fjöldi. Í ár reyndu þrettán aðilar við fyrripartana og vísnagerðina. Að þessu sinni fengu fyrri- partasmiðirnir fyrirmæli um að hugsa vestur um haf og hafa Dónald Trump í huga og voru þeir á öndverðum meiði um hvort maðurinn væri til óþurftar fyrir heiminn eða misskilinn snillingur. Hins vegar skyldu þeir setja saman fyrripart sem gæfi góð fyrirheit um vorið sem vonandi verður eins gott og nýliðinn vetur. Ein vorvísa fylgdi innsend- um botnum sem ekki var tæk í keppnina en vel þess virði að birta hér þar sem hún gefur ágæt fyrirheit um vorkomuna. Þiðna móar mildast tíð minnka snjóalögin. Bráðum gróa grund og hlíð grænka flóadrögin. Vel gerð hringhenda hjá Jóni Gissurarsyni í Víðimýrarseli. Þá fengu þátttakendur fyrirmæli um að semja vísu um þátt Skagfirðinga í raunverulegum eða ímynduðum afrekum hvers konar. Tvenn peningaverðlaun voru veitt eins og fyrr, annars vegar fyrir besta botninn og hins vegar fyrir bestu vísuna. Enn er það svo að góðar vísur berast í keppnina sem og botnar og þarf talsverða yfirlegu til að velja það sem dómnefndin telur standa upp úr. Það er ekki auðvelt val því margt af því sem berst kemur til greina. Fyrripartssmiðirnir eru tveir, báðir ættaðir úr Fljótunum, þeir Hreinn Guðvarðarson og Haraldur Smári Haraldsson. Dómnefnd að þessu sinni var skipuð tveimur mönnum, þeim sem hér ritar og Ágústi Guðmundssyni, ættuðum frá Skollatungu í Gönguskörðum. Guðbjörg Bjarnadóttir, sem sæti á í dómnefnd, átti ekki heimangengt að þessu sinni. En snúum okkur að alvörunni. Fyrri partarnir um forseta Banda- ríkjanna hljóma svo: Vitið ekki að vestan hafs var vitlaus maður kosinn. Svoleiðis er álit Hreins á valdamesta manni heims. En Smára fannst illa að manninum vegið austan úr Skagafirði og vildi bæta ímynd hans frekar og sagði: Dæmalaust hvað Dónald er dagfarsprúður sómi. Hinn frjálsi fjallasveinn botnaði svo: Eflaust gerði ég úr honum smér ef hann væri rjómi. Hinn frjálsi fjallasveinn reyndist vera Benedikt Benediktsson á Vatnsskarði. En Gunnar Rögnvaldsson á Löngumýri sló á bjartsýnina og vildi hafa þetta svona: Dæmalaust hvað Dónald er dagfarsprúður sómi. Innan tíðar ugglaust fer af sá dýrðarljómi. Og Ýlustráið, sem Engilráð M. Sigurðardóttir stóð á bak við, jók aftur hróður forsetans. Dæmalaust hvað Dónald er dagfarsprúður sómi. Öðrum mönnum af´ann ber, eðal kvennaljómi. Færri reyndu við vitlausa mann- inn. En Rúnar Kristjánsson á Skagaströnd segir: Vitið ekki að vestan hafs var vitlaus maður kosinn. Hrokastæla og stefnukrafs stundar framagosinn. Og ekki veit ég hvort Hilmir Jóhannesson er að gagnrýna fyrripartinn á vísunni eða bara forsetann sjálfan þegar hann segir: Vitið ekki að vestan hafs var vitlaus maður kosinn. Fyrripartur klúður krafs klaufalegur frosinn. Fleiri botnar um Dónald komu inn en mér finnst betra að við snúum okkur að vorinu. Vorið fyllir vitin mín vangann strýkur blærinn. Yljar líkt og eðalvín allur hlýnar bærinn. Þessi botn kom frá Jóni Gissurar- syni í Víðimýrarseli. Ekki veit ég hvort Alfreð Guð- mundsson á Sauðárkróki sé að hugsa um gróðurhúsaáhrifin er hann botnar svo: Vorið fyllir vitin mín vangann strýkur blærinn. Þá hærra sól á himni skín hlýnar jörð og særinn. Og svo frá Gunnari Rögnvaldssyni. Vorið fyllir vitin mín vangann strýkur blærinn. Bráðum geta börnin mín berað á sér lærin. Reynir Hjörleifsson, sem ættaður er frá Kimbastöðum, segir: Vorið fyllir vitin mín vangann strýkur blærinn. Hugans gull er sólarsýn af sindri glitrar særinn. En Ingólfur Ómar Ármannsson slær botninn í þennan fyrripart svona: Vorið fyllir vitin mín vangann strýkur blærinn. Grösin anga, glóey skín gliti skartar særinn. Þá snúum við okkur að hinum fyrripartinum um vorið. Víst ég yrkja vildi helst um vor í Skagafirði. – efa þó hvort iðjan telst ýkja mikils virði. Þetta sagði Engilráð Sigurðardóttir en ekki skal efast um hennar hæfileika til vísnasmíði. Og Lína í Kleifartúni, sem er nú kannski kunnari sem Lína á Deplum, botnar svo: Víst ég yrkja vildi helst um vor í Skagafirði. Í sólarljósi lífið felst það lán er mikils virði. Og Hjalti Þórðarson hugsar um útiveruna sem fylgir vorinu og rýkur líklega fótgangandi á fjöll áður en langt um líður. Víst ég yrkja vildi helst um vor í Skagafirði. Skóna virkja skylda telst og sporin braga virði. Rúnar Kristjánsson segir: Víst ég yrkja vildi helst um vor í Skagafirði. Þar sem öll sú fegurð felst sem fólki er mikils virði. Og Pétur Stefánsson úr Reykjavík, sem mér skilst að reki ættir sínar í Sléttuhlíðina, yrkir svo: Víst ég yrkja vildi helst um vor í Skagafirði. Til afreka það ekki telst en er þó mikils virði. Fínar vísur bárust í keppnina um afrek Skagfirðinga og ríður Hilmir Jóhannesson á vaðið. Upp skal vekja enn á ný afrek fyrri tíða. Bændur voru bestir í brugga, syngja og ríða. Geri ég þá fastlega ráð fyrir því að hann sé bara að tala um útreiðar, annars væri hún of dónaleg til að fara með í svo virðulegu blaði. Magnús Geir Guðmundsson á Akureyri gerir grein fyrir sjálfum sér svona. Á afreks- sanna velli verka, vísna- á ég sögu merka. Í ættum fáa kenni klerka en kominn er af Hrólfi-Sterka. Ég varð að gúggla þennan sterka Hrólf en þannig er m.a. ritað um hann á Snerpu: „Hrólfur Bjarnason hinn sterki hét maður í Skagafirði. Er ættleggur mikill frá honum kominn og er hann kallaður Hrólfsætt. Auk annarra barna átti Hrólfur tvo Bjarna fyrir sonu; var annar kallaður Verri-Bjarni, en annar Betri-Bjarni.“ Ekki veit ég hvort Magnús er af öðrum þeirra kominn. Pétur Stefánsson kann að lýsa yfirburðum Skagfirðinga. Það er kunnugt vítt um völlu og veldur ýmsum líðan sárri, að Skagfirðingar eru í öllu utan vafa flestum skárri. Og ekki er það verra hjá Gunnari Rögnvaldssyni: Um það vitna verkin öll að vann þau smiður slyngur. Sólargeislar, grundir, fjöll, Guð var Skagfirðingur. Ekki er hægt annað en að lesa hér upp eina limru sem barst, enda fjallar hún um okkar ágætu Sæluviku, eða í það minnsta hvernig Benedikt á Vatnsskarði sér Skagfirðinga haga sér í þeirri gleðiviku. Á „Sælu“ menn sækja í glauminn og sumir sjá rætast þar drauminn. Þeir fullir af losta þar miklu til kosta. Nú losa skal talsvert um tauminn. En dregur nú til tíðinda því komið er að því að upplýsa hverjir áttu besta botninn og bestu vísuna. Besti botninn að mati dóm- nefndar er eftirfarandi. Vorið fyllir vitin mín vangann strýkur blærinn. Fegurst er vor fjallasýn og fallegastur bærinn. Verðlaun fyrir þennan botn fær Magnús Geir Guðmundsson á Akureyri. Besta vísan að mati dómnefndar er á þessa leið. Bera gnægð á Bragavöll búnir kostum flestum. Tengjast þeirra afrek öll ástum, söng og hestum. Það er hinn kunni hagyrðingur sem bjó hér á Sauðárkróki forðum, Ingólfur Ómar Ármannsson, sem lýsir Skagfirðingum svo ágætlega. Þessum heiðursmönnum er óskað til hamingju með verðlaunin og öðrum þökkuð þátttakan. Magnús Geir Guðmundsson (t.v.) frá Akureyri átti besta botninn að mati dómnefndar. Magnús hefur gefið út þrjár kviðlingabækur, Geiravísur 2004, Limrurokk, 2013 og Ljóðstafakrans árið 2016. Ingólfur Ómar Ármannsson (t.h.) átti bestu vísuna að þessu sinni en Ómar hefur látið mikið að sér kveða í gegnum tíðina með góðum og vel ortum vísum eins og unnendur vísnaþáttar Feykis þekkja. UMSJÓN Páll Friðriksson 8 18/2017

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.