Feykir


Feykir - 10.05.2017, Blaðsíða 10

Feykir - 10.05.2017, Blaðsíða 10
Í Árskóla á Sauðárkróki fór fram sl. mánudag hin árlega kokkakeppni þar sem nemendur 9. og 10. bekkja kepptust um að útbúa besta matinn bæði hvað bragð og útlit varðar. Einbeitningin leyndi sér ekki hjá kokkunum og greinilegt að mikill metnaður fyrir verkefninu var hjá krökkunum. Að sögn Ástu Búadóttur, heimilis- fræðikennara, er mikill áhugi á matreiðslu hjá krökkunum en sú grein er valáfangi hjá þeim. Undirbúningur keppninnar er góður grunnur fyrir framtíðina og eykur færni þeirra á þessu sviði. Haldin er undankeppni og fimm lið komast áfram í úrslitakeppnina. Að þessu sinni sigruðu þær Berglind Björg Sigurðardóttir, Karen Lind Skúladóttir og Dagmar Lilja Hreiðarsdóttir, í öðru sæti lentu Birta Líf Hauksdóttir, Eyvör Pálsdóttir og Bjarney Lind Elefsen og í því þriðja enduðu Ragnar Ágústsson, Herjólfur Hrafn Stefánsson og Anna Sóley Jónsdóttir. Kokkakeppni Árskóla Eldað af list UMSJÓN Páll Friðriksson Liðin þrjú sem unnu til verðlauna, f.v.: Dagmar, Karen, Berglind, Birta, Eyvör, Bjarney, Herjólfur, Anna og Ragnar. MYNDIR: PF 10 18/2017

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.