Feykir - 10.05.2017, Síða 10
Í Árskóla á Sauðárkróki fór fram sl.
mánudag hin árlega kokkakeppni
þar sem nemendur 9. og 10.
bekkja kepptust um að útbúa
besta matinn bæði hvað bragð og
útlit varðar. Einbeitningin leyndi
sér ekki hjá kokkunum og
greinilegt að mikill metnaður fyrir
verkefninu var hjá krökkunum.
Að sögn Ástu Búadóttur, heimilis-
fræðikennara, er mikill áhugi á
matreiðslu hjá krökkunum en sú
grein er valáfangi hjá þeim.
Undirbúningur keppninnar er góður
grunnur fyrir framtíðina og eykur
færni þeirra á þessu sviði. Haldin er
undankeppni og fimm lið komast
áfram í úrslitakeppnina.
Að þessu sinni sigruðu þær
Berglind Björg Sigurðardóttir, Karen
Lind Skúladóttir og Dagmar Lilja
Hreiðarsdóttir, í öðru sæti lentu Birta
Líf Hauksdóttir, Eyvör Pálsdóttir og
Bjarney Lind Elefsen og í því þriðja
enduðu Ragnar Ágústsson, Herjólfur
Hrafn Stefánsson og Anna Sóley
Jónsdóttir.
Kokkakeppni Árskóla
Eldað af list
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Liðin þrjú sem unnu til verðlauna, f.v.: Dagmar, Karen, Berglind, Birta, Eyvör, Bjarney, Herjólfur, Anna
og Ragnar. MYNDIR: PF
10 18/2017