Feykir


Feykir - 26.07.2017, Qupperneq 8

Feykir - 26.07.2017, Qupperneq 8
AKO B140 Rafhlöðustöð 9/12V AKO B240 MULTI Rafhlöðustöð 9/12/230V AKO S180 Sólarafhlöðustöð 12V,7Ah / 230V AKO S550 Sólarafhlöðustöð 12V,12Ah / 230V AKO N5000 Rafmagnsstöð 230V AKO Randbeitarþráður Ω/m 0,11 AKO Þurrrafhlaða 9V, 130Ah AKO Randbeitarborði Ω/m 0,467 AKO Teygjuhlið 4,5-9m AKO Þráðspóla Með Gír Heilir og sælir lesendur góðir. Byrjum þáttinn að þessu sinni með fallegum kvöldvísum eftir Magnús J. Jóhannsson. Yfir voga blíður blær blæju togar gára. Geislum logar svalur sær sandi að rogast bára. Döggin mjúka leggst í laut lindir strjúka bakka. Ferðasjúkur þeyr ei þaut þá um hnjúk og klakka. Svanir vogum synda á sig í bogum hneigja. Aldan sogast hleinum hjá hún er og að deyja. Kemur ótta hljóð og hlý húmið fljótt að skundar. Sína nóttin sveipar í svæfla, rótt allt blundar. Tvær vísur koma hér í viðbót eftir Magnús. Munu þær ortar þegar fréttist af garpinum Hannibal að störfum á býli sínu Selárdal. Situr nú í Selárdal síst þó elski friðinn. Hafið þið séð Hannibal höggva rekaviðinn? Þegar lundin gerist grá - gleymdur krata bubbum, skaðræðis hann skeytir þá skapi á viðarkubbum. Valdimar Lárusson horfir til baka yfir lífshlaupið og yrkir svo: Löngum kátt ég lék og dátt lífs að sáttaboðum. Nú er fátt um fínan drátt fækkar máttarstoðum. Óðs af staupi oft ég saup orðaskaupið hressti geðið. Annars hlaup og engin kaup aðeins raup þá skást var kveðið. Að lokum þessi góði sannleikur eftir Valdimar: Þegar bjátar eitthvað á eða lengist vaka, gaman er að geta þá gripið til þín staka. Það er Stefán Stefánsson frá Móskógum sem er höfundur að þessari: Margt ég prófað misjafnt hef en mestan halla gerði, er hamingjunnar hlutabréf hröpuðu úr öllu verði. Falleg er þessi vísa Stefáns: Þeim ég sýni vinarvott sem vel ég þekki. Og vildi öllum gera gott en get það ekki. Um sættir ónefndra hjóna að kvöldi dags, mun Stefán hafa ort svo: Vísnaþáttur 693 Nú hefur storminn loksins lægtljúfur saminn friður. Yfirsængin hægt og hægt hreyfist upp og niður. Var það ekki sá kunni ljóðasmiður, Steinn Steinarr, sem orti þessa gamalkunnu vísu: Margt er það sem milli ber mikinn þótt ég rói. Ekki má ég unna þér álfakroppurinn mjói. Minnir að það hafi verið Egill Jónasson sem orti einhverju sinni svo: Áður rann Laxá hrein í haf við hrifningu Þingeyinga. Nú lyppast hún áfram lituð af leirburði Mývetninga. Kristján Ólason, sem var skrifstofumaður á Húsavík, var talinn afbragðs hagyrðingur á sinni tíð. Þessi mun vera eftir hann: Minninga að ganga garð gleður okkur flesta, en oft er það sem aldrei varð eftirsjáin mesta. Um fljótfæran samferðamann varð þessi til: Þegar hann er fallinn frá fólkið ber í minni, viðbrögð snögg og oftast á undan hugsuninni. Þá held ég að þessi þjóðkunna vísa sé einnig eftir Kristján: Þetta finn ég – því er ver það er sinni og skinni þraut, að kynnast sjálfum sér sífellt minni og minni. Ein ágæt vorvísa rifjast upp í viðbót eftir Kristján. Sólin yljar mó og mel mönnum léttir sporin. Svellin gráta sig í hel - sárt er að deyja á vorin. Það er Jakob Jónsson, áður bóndi á Varma- læk í Borgarfirði, sem er höfundur að næstu vísu. Við eigum stöku og stuðluð ljóð sterk í formi og línum. Það sem engin önnur þjóð á í fórum sínum. Gott að leita þá til Jakobs með lokavísuna. Þegar sál mín frá þér flyst fóstran aldna og góða, kýs ég helst að hljóta vist í heimi söngs og ljóða. Veriði þar með sæl að sinni. / Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum, 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is 30 ára 8 29/2017

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.